Ríkislögmanni gert að afhenda Kjarnanum stefnur sjávarútvegsfyrirtækja

Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál segir að hags­munir almenn­ings af aðgangi að upp­lýs­ingum um stefnur útgerða á hendur íslenska rík­inu, sem krefja rík­is­sjóð um millj­arða­bætur, vegi þyngra en hags­munir fyr­ir­tækj­anna af því að þær fari leynt.

Embætti rík­is­lög­manns hefur verið gert skylt að veita rit­stjórn Kjarnans aðgang að stefnum nokk­urra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja á hendur íslenska rík­inu þar sem þau fara fram á bætur vegna fjár­tjóns sem þau telja sig hafa orðið fyrir vegna mak­ríl­kvóta sem fór ekki til þeirra. Þetta kemur fram í úrskurði sem úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál kvað upp 1. apríl síð­ast­lið­inn.

Um er að ræða Stefnur Gjögurs hf., Ísfélags Vest­manna­eyja hf., Skinn­eyjar-Þinga­ness hf., Loðnu­vinnsl­unnar hf. og Hugins ehf., sem lagðar voru fram í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur þann 27. júní 2019, stefnur Eskju hf. og Vinnslu­stöðv­ar­innar hf., sem lagðar voru fram í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur þann 10. sept­em­ber 2019 og Stefnur Eskju hf. og Vinnslu­stöðv­ar­innar hf., sem lagðar voru fram í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur þann 10. des­em­ber 2019. Þó skal afmá hluta upp­lýs­inga sem koma fram í tveimur síð­ast­nefndu stefn­unum fyrir afhend­ingu.

Í úrskurði nefnd­ar­innar segir að það sé nið­ur­staða hennar „að hags­munir almenn­ings af aðgangi að upp­lýs­ingum um mála­til­búnað einka­að­ila á hendur íslenska rík­inu vegi í þessu til­viki þyngra en hags­munir þeirra síð­ar­nefndu af því að þær fari leynt.“

Aðgangi hafnað í desember

Í fyrra var mak­ríll færður í kvóta á grund­velli veið­i­­­reynslu þar sem afla­heim­ild­ir, eða kvót­­ar, voru að mestu færðar til stór­út­­­gerða. Mak­ríl­kvót­inn er tal­inn vera 65 til 100 millj­­arða króna virð­i.

Þrátt fyrir þetta ákváðu nokkur stór sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tæki að fara í mál við íslenska ríkið vegna fjár­­tjóns sem þau töldu sig hafa orðið fyrir vegna úthlutar á mak­ríl­kvóta á árunum 2011 til 2014.

[adspot]Sam­­kvæmt fréttum síð­­asta sumar munu bóta­­kröfur þeirra nema allt að 35 millj­­örðum króna. Verði þær sam­­þykktar, og reyn­ist þær tölur réttar, geta útgerð­­irnar því náð til baka um 55 pró­­sent af því sem allar útgerðir lands­ins hafa greitt í veið­i­­­gjöld á und­an­­förnum árum.

Kjarn­inn sendi í júní 2019 fyr­ir­spurn á upp­lýs­inga­full­trúa rík­is­stjórn­ar­innar þar sem óskað var eftir því að fá stefnur fyr­ir­tækj­anna afhentar auk þess sem beðið var um upp­lýs­ingar um hversu háar kröfur þeirra væru.

Erindið var sent til sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neyt­is­ins sem brást ekki við því í á aðra viku. Þegar við­brögð komu fólst í þeim að áfram­senda erindið á emb­ætti rík­is­lög­manns.

Hann taldi rétt að bera það undir lög­menn fyr­ir­tækj­anna sem um ræddi hvort þeir myndu sam­þykkja að upp­lýs­ingar um málin yrðu veittar og stað­festi í kjöl­farið við Kjarn­ann að fyr­ir­spurnir þess efnis hefðu verið sendar á umrædd fyr­ir­tæki.

Síðan barst ekk­ert við­bót­ar­svar í rúma fimm mán­uði, eða þar til 20. des­em­ber 2019, þegar rík­is­lög­maður sendi svar þess efn­ist að hann teldi ekki heim­ilt að afhenda stefn­urn­ar. Hann hefði óskað eftir afstöðu umræddra fyr­ir­tækja gagn­vart því að fjöl­miðlar myndu fá stefn­urnar með því að beina spurn­ingum til lög­manna þeirra. „Liggur ekki fyrir sam­þykki stefn­enda um að afhenda stefn­urnar og verður að skilja afstöðu þeirra í ljósi seinni máls­liðar 9. gr. upp­lýs­inga­laga nr. 140/2012 og telur emb­ættið því gögnin und­an­þegin upp­lýs­inga­rétt­i.“

Auk þess sagði í svar­inu að rík­is­lög­maður mæti það „óraun­hæft að rýmri aðgangur sé fyrir hendi þótt kröfu um afhend­ingu sé beint að stjórn­valdi ef um sömu gögn er að ræða. Gögnin eru því eðli sínu sam­kvæmt und­an­þegin upp­lýs­inga­rétt­i.“

Kjarn­inn kærði synjun rík­is­lög­manns á aðgengi að umræddum upp­lýs­ingum til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál strax í kjöl­farið.

Augljósir almannahagsmunir

Beiðni Kjarnans um aðgang að gögn­unum byggði á 5. gr. upp­lýs­inga­laga. Í kærunni sagði að aug­ljósir almanna­hags­munir væru af því að fjöl­miðlar og almenn­ingur fái upp­lýs­ingar um það þegar fyr­ir­tæki stefni rík­inu til greiðslu bóta vegna úthlut­unar á gæðum sem sam­kvæmt fyrstu grein laga um stjórn fisk­veiða séu sam­eign íslensku þjóð­ar­innar. því geti vart stað­ist að tak­marka upp­lýs­inga­rétt vegna einka­hags­muna. Bæði sé sú „eign“ sem sé undir sam­eign þjóð­ar­innar auk þess sem sá stefndi sé íslenska ríkið, og þar af leið­andi almenn­ingur. Réttur þeirra sem stefna til að halda gögnum sem þeir telja einka- og fjár­hags­mál­efni sín geti ekki talist æðri rétti almenn­ings til að vita hvað sé undir í mál­inu.

Til við­bótar liggi fyrir mat for­manns stjórnar Lands­sam­bands smá­báta­eig­enda þess efnis að krafa umræddra fyr­ir­tækja á ríkið sé um það bil 35 millj­arðar króna. Í ljósi þess hversu há upp­hæð af almannafé sé undir geti ekki stað­ist að leyna eig­endur þeirrar fjár­hæðar, almenn­ing í land­inu, upp­lýs­ingum um mála­vexti.

Sögðu almenning og fjölmiðla ekki eiga lögvarða hagsmuni

Úrskurð­ar­nefndin sendi bréf til þeirra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­ækja sem stefndu rík­inu í lok jan­úar síð­ast­lið­ins og óskaði eftir afstöðu þeirra til afhend­ingar gagn­anna. Í bréfum þeirra sem svör­uðu er í öllum til­vikum lagst gegn því að stefn­urnar yrðu afhentar.

Þar er sá tónn sleg­inn að fjöl­mið­ill eða almenn­ingur séu ekki lögvar­inn aðili máls þrátt fyrir að hinn stefndi sé íslenska ríkið. Í einu svar­bréf­inu sagði meðal ann­ars að málið væri „venju­legt einka­mál sam­kvæmt lögum um með­ferð einka­mála, þótt stefndi sé opin­ber aðili. Umrædd stefna stafi ekki frá stjórn­valdi og sé ekki þáttur í með­ferð stjórn­sýslu­máls heldur dóms­máls, þó það sé á könnu rík­is­lög­manns. Kærandi hafi ekki sýnt fram á að hafa neinna sér­stakra lögvar­inna hags­muna að gæta í dóms­mál­inu.“

[adspot]Kærandi gæti ein­fald­lega fengið þær upp­lýs­ingar sem hann sækt­ist eftir þegar dómur hefði verið birtur opin­ber­lega eftir dóms­upp­kvaðn­ingu.

Þá var því haldið fram að í stefn­unum kæmu fram marg­vís­legar fjár­hags­legar og rekstr­ar­legar upp­lýs­ingar um starf­semi fyr­ir­tækj­anna, umfram þær sem lesa megi úr árs­reikn­ingum frá þeim árum sem fjallað sé um í mál­inu.

Úrskurð­ar­nefndin hafn­aði þessum mála­til­bún­aði og komst að þeirri nið­ur­stöðu að hags­munir almenn­ings af aðgangi að upp­lýs­ingum um mála­til­búnað einka­að­ila á hendur íslenska rík­inu veg­iþyngra en hags­munir sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna af því að þær fari leynt.

Kjarninn fór fram á það síð­degis á fimmtu­dag, 2. apríl, við emb­ætti rík­is­lög­manns, að fá stefn­urnar afhentar. Þrátt fyrir ítrekun um liðna helgi þá hafa þær ekki feng­ist enn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár