Margt verður eins eftir Brexit 2019 segir fjármálaráðherrann

Fjár­mála­ráð­herra Bret­lands, Philip Hammond, segir Breta hafa óskað eftir þriggja ára umbreyt­ing­ar­tíma­bili eftir að Brexit á sér form­lega stað árið 2019.

Philip Hammond er fjármálaráðherra Bretlands.
Philip Hammond er fjár­mála­ráð­herra Bret­lands. Mynd: EPA

Samband Bret­lands og Evr­ópu­sam­bands­ins verður hugs­an­lega mjög líkt því sem nú er, eftir að Bretland gengur form­lega úr Evr­ópu­sam­band­inu í mars 2019. Philip Hammond, fjár­mála­ráð­herra í bresku rík­is­stjórn­inni, hefur stað­fest að breska samn­inga­nefndin sæk­ist eftir því að ákveðið umbreyt­ing­ar­tíma­bil eigi sér stað í þrjú ár eftir form­legt Brexit.

Frá þessu var greint á vef breska dag­blaðs­ins The Guardian í morgun.

Í þessu felst að eftir að Brexit á sér stað muni Bretar enn hafa aðgang að sam­eig­in­lega mark­aði ESB, enn leyfa frjálst flæði fólks inn og út úr Bret­landi og að það geti ekki gert versl­un­ar­samn­inga við önnur lönd eitt og sér.

Þetta umbreyt­ing­ar­tíma­bil mun svo renna út árið 2022, í aðdrag­anda næstu þing­kosn­inga eftir fimm ár. Með þessu er í raun verið að fram­lengja þann tíma sem Bret­landi er gef­inn til þess að ganga úr Evr­ópu­sam­band­inu.

Hammond segir að það sé víð­tækur stuðn­ingur við þetta í rík­is­stjórn Theresu May, for­sæt­is­ráð­herra í minni­hluta­stjórn Íhalds­flokks­ins. Þessi þrjú ár muni gera útgöngu Bret­lands mun „mýkri“.

May er nú í þriggja vikna sum­ar­fríi og þess vegna hefur ekki verið sagt frá þessum áformum breskra stjórn­valda opin­ber­lega, jafn­vel þó liðin sé vika síðan ákveðið var að óska eftir við ESB að þessi leið verði farin. Hammond stað­festi sögu­sagnir um þetta í útvarps­við­tali í dag.

Myrk veraldarsýn Mick Jagger

Þrátt fyrir að útlit sé fyrir að Bretland verði í Evr­ópu­sam­band­inu í fimm ár í við­bót er Brexit þegar farið að seytla í hina ýmsu kima bresks sam­fé­lags.

Mick Jagger, best þekktur sem söngv­ari goð­sagna­kenndu rokksveit­ar­innar The Rolling Stones, gaf frá sér tvö lög á fimmtu­dag sem lýsa myrkri ver­ald­ar­sýn Jaggers í kjöl­far ákvörð­unar Breta um að segja sig úr Evr­ópu­sam­starf­inu.

Lögin England Lost og Gotta Get A Grip seg­ist Jagger hafa samið eftir að hafa verið hald­inn kvíða og óvissu um breyt­ingar á stjórn­mála­lands­lag­inu. Lögin tvö eru þau fyrstu sem Jagger gefur út einn síðan árið 2011.

England Lost

Gotta Get A Grip

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár