Reglur úr hinu daglega lífi

Bryn­hildur Bolla­dóttir er lög­fræð­ingur að mennt og hefur verið að velta reglum fyrir sér nokkuð lengi. Hún vill líka titla sig lista­konu sem er í sífelldri leit að list. Hún fékk hug­mynd að bók eða bók­verki um reglur sem tengj­ast bæði lög­fræð­inni og list­inni og fannst til­valið að gefa þessar vanga­veltur sínar út. Tak­markið er að fólk velti reglum fyrir sér og spyrji sig hvað reglur séu og hvers vegna við förum eftir þeim, auk þess auð­vitað að fólk hafi gaman af lestr­inum. Kjarninn hitti Bryn­hildi og tók hana tali.

Um hvað fjallar reglu­bókin?

„Reglu­bókin er bók með reglum úr dag­legu lífi, flestar regl­urnar eru skemmti­legar og tengj­ast lífi les­anda á einn eða annan hátt. Fæstar eru háal­var­legar og brot á þeim varða ekki við lög. Auk regln­anna eru vanga­veltur um hvað reglur eig­in­lega séu. Þannig er svo­lítið rétt­ar­heim­speki­legur inn­gangur að bók­inni, en á manna­máli þó, áður en regl­urnar mæta hver á eftir annarri. Við sjálf setjum okkur reglur, sam­fé­lagið setur okkur reglur, lög­gjaf­inn setur okkur reglur og jafn­vel æðri mátt­ar­völd. Mörkin þarna á milli eru afar óljós og við vitum ekki alltaf hvers vegna ein eða önnur regla er til, eða hvers vegna við teljum okkur þurfa að fara eftir þeim.

Flestir ættu að kann­ast við regl­urnar sem skrá­settar eru, þetta eru ýmsar reglur úr hvers­dags­líf­inu. Öll fylgjum við reglum með­vitað eða ómeð­vitað á degi hverjum. Ég hef sagt að ef fólk er ósam­mála regl­unum og fer að rök­ræða hvers vegna þær gildi ekki þá sé til­gangi bók­ar­innar náð því fólk fer þannig að velta fyrir sér hvers vegna ákveðnar reglur gildi og hvers vegna ekki.“

Hvaðan kemur hug­myndin um Reglu­bók­ina?

„Hug­myndin að Reglu­bók­inni spratt upp frá því að kærast­inn minn sagði að ég væri alltaf að setja ein­hverjar reglur. Ég fór að skrá­setja þær reglur sem ég set sjálfri mér og fólki nánu mér. Ég er lög­fræð­ingur að mennt og hef þannig velt reglum svo­lítið fyrir mér. Það er svo merki­legt hvernig sam­fé­lög setja sér reglur sem við förum eftir, jafn­vel þótt þær séu óskráðar.“

Hvaða áhrif hafði það á hug­myndir þínar um skrif­aðar og óskrif­aðar reglur að setja þær niður á bók?

„Hug­myndir mínar um skráðar og óskráðar reglur breytt­ust í raun ekk­ert við það að ég skrá­setti þær, en ég velti reglum enn meira fyrir mér og hversu merki­legt er að til séu óskráðar reglur sem við fylgjum lang­flest sem sam­fé­lag. Það er eig­in­lega alveg ótrú­legt. Jafnvel þegar fangar gera upp­þot í fang­elsi búa þeir sér til sínar eigin reglur í frí­rík­inu sem þeir hafa myndað, því við getum ein­hvern veg­inn ekki fún­kerað í stjórn­leysi.“

Fjár­öfl­unin fer fram á Karolina­fund og allur styrkur er vel þeg­inn. Það verður eng­inn svik­inn af þess­ari bók!

Verk­efnið er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár