Umboðsmaður Alþingis skoðar upplýsingagjöf úr stjórnsýslunni

Umboðs­maður Alþingis telur ekki til­efni til að taka til athug­unar hvort Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra og núver­andi for­sæt­is­ráð­herra, hafi brotið gegn siða­reglum ráð­herra með því að birta ekki skýrslu um eignir Íslend­inga í aflands­fé­lögum fyrr en raun bar vitni. Ástæðan er fyrst og fremst að Bjarni hefur við­ur­kennt að það hafi verið mis­tök af hans hálfu að birta ekki skýrsl­una mun fyrr en gert var.

Umboðs­maður hefur engu að síður unnið að frum­kvæð­is­at­hugun á upp­lýs­inga­gjöf stjórn­sýsl­unnar, og ætlar að skila nið­ur­stöðum í síð­asta lagi í mars næst­kom­andi. Hann er að skoða með almennum hætti þær skyldur og heim­ildir sem sjtórn­völd hafa til að veita almenn­ingi, og þá fjöl­miðlum og kjörnum full­trúum fyrir hönd almenn­ings, aðgang að upp­lýs­ingum og gögnum. Hann hefur óskað eftir ýmsum upp­lýs­ingum frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu um til­tekin atriði vegna þess.

Þetta kemur fram í tveimur bréfum Tryggva Gunn­ars­sonar, umboðs­manns Alþingis, ann­ars vegar til Svan­dísar Svav­ars­dóttur, þing­flokks­for­manns VG, sem óskaði eftir því við umboðs­mann að hann skoð­aði málið, og hins vegar til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins.

Ætlar að taka út upplýsingagjöf almennt

Umboðs­maður segir hins vegar einnig í bréf­inu að hann hafi á und­an­förnum árum stað­næmst við ýmis til­vik sem hann hafi rek­ist á í starfi sínu og í frá­sögnum fjöl­miðla þar sem tregðu hefur gætt af hálfu fyr­ir­svars­manna í stjórn­sýsl­unni, þar með talið ráð­herra, að veita upp­lýs­ingar um ein­stök mál eða gögn sem safnað hefur verið hjá þeim. „Einkum hefur þetta lotið að beiðnum fjöl­miðla um aðgang að slíkum gögnum og einnig eru dæmi um að kjörnir full­trúar bæði á Alþingi og í sveit­ar­stjórnum hafi átt í erf­ið­leikum með að fá slíkan aðgang.“ Hann segir að enn sé þörf á því að umboðs­maður Alþingis dragi fram hvaða skyldur hvíli á stjórn­völdum þegar kemur að upp­lýs­inga­gjöf, og að umboðs­maður lýsi við­horfi sínu til þess hvernig eigi að túlka ákæði laga og reglna sem fjalla um þessi mál. „Þá ekki síst með til­liti til þess fyr­ir­vars almanna­hags­muna sem stjórn­völd fara með og þátt­töku almenn­ings í umræðu um þau mál og stefnu­mörkun.“

Umboðs­maður Alþingis hefur óskað eftir því að fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið afhendi honum afrit af skip­un­ar­bréfi starfs­hóps­ins um eignir Íslend­inga í aflands­fé­lögum, skila­bréfi hóps­ins eða öðrum gögnum sem segja til um hvenær skýrsl­unni var skilað til ráðu­neyt­is­ins og hún komin í birt­ing­ar­hæft form. Hann óskar jafn­framt eftir upp­lýs­ingum um það hvort skýrslan hafi verið kynnt í rík­is­stjórn, og þá hvenær. Hann óskar einnig eftir afritum af erindum fjöl­miðla vegna skýrsl­unnar og svörum við þeim erindum. Að lokum óskar umboðs­maður eftir upp­lýs­ingum um það hvað réði því að skýrslan var birt þann 6. jan­úar síð­ast­lið­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár