Raddir um að vöxtur ferðaþjónustu skili sér ekki að fullu í ríkiskassann

Ferðamenn við Skógafoss.
Ferða­menn við Skóga­foss. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Raddir heyr­ast um að vöxtur ferða­þjón­ustu sé ekki að skila sér að fullu í hag­vexti á Íslandi né í tekju­aukn­ingu hins opin­bera. Þetta kemur fram í skýrslu starfs­hóps um eignir Íslend­inga á aflands­svæðum og tekju­tap hins opin­bera sem birt var á föstu­dag.

Í skýrsl­unni kemur fram að áætlað tekju­tap rík­is­sjóðs vegna aflands­fé­laga og skattaund­an­skota sé 56 millj­arðar króna á árunum 2006-2014 og að á hverju ári geti við­bót­artap vegna van­tal­inna skatta verið á bil­inu 4,6 til 15,5 millj­arðar króna.

Í skýrsl­unni er rakið nokkuð ítar­lega hvern áætlað tap rík­is­sjóðs vegna skattsvika eða lög­legrar skatta­snið­göngu var á árunum fyrir hrun, þegar hröð fjár­mála­væð­ing og útrás voru helstu ein­kenni hag­þró­unar á Íslandi.

Starfs­hóp­ur­inn skoð­aði hins vegar einnig þá hag­þróun sem átt hefur sér stað eftir hrun, þegar hinn öri vöxtur ferða­þjón­ustu hefur verið alls­ráð­andi. Í skýrsl­unni segir: „Nú þegar heyr­ast raddir um að hann [vöxtur ferða­þjón­ustu] sé ekki að skila sér að fullu í hag­vexti heima fyrir og tekju­aukn­ingu hins opin­bera. Und­ir­strika ber að eng­inn dómur er lagður á þetta hér. Í ljósi reynsl­unnar er hins vegar ágæt og almenn þum­al­fing­urs­regla, að ef ætl­unin er að fyr­ir­byggja tjónið áður en það verður að veru­leika sé best að beina sjónum framar öðru að þeim greinum milliríkja­við­skipta þar sem virð­is­auk­inn er mestur og vex hrað­ast hverju sinni."

Hátt í 1,8 millj­ónir ferða­manna komu til lands­ins í fyrra, eða um 40 pró­sent fleiri en árið 2015. Í ný­liðnum des­em­ber fóru nærri 125 þús­und erlendir ferða­menn um Leifs­stöð, eða 54 þús­undum fleiri en í sama mán­uði árið áður. Aukn­ingin er 76 pró­sent á milli­ ára á þessum árs­tíma. Frá árinu 2010 hefur fjöldi ferða­manna til lands­ins í des­em­ber sexf­ald­ast. Það ár komu alls 488 þús­und ferða­menn til lands­ins, eða rúmur fjórð­ungur þess fjölda sem sótti landið heim á árinu 2016.

Hægt er að lesa frétta­skýr­ingu Kjarnans um helstu nið­ur­stöður í skýrslu starfs­hóps­ins hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár