Bandalag Merkel stærst en stuðningurinn minni

Angela Merkel leiðir enn stærsta stjórn­mála­aflið í Þýska­landi eftir þing­kosn­ingar. Stuðn­ing­ur­inn hefur hins vegar minnkað og öfga­hægri­flokkur hefur náð góðri fót­festu.

Angela Merkel, kanslari Þýskalands, verður eflaust áfram kanslari en stuðningurinn hefur minnkað.
Angela Merkel, kansl­ari Þýska­lands, verður eflaust áfram kansl­ari en stuðn­ing­ur­inn hefur minnkað. Mynd: EPA

Flokka­banda­lag Kristi­legra demókrata og syst­ur­flokks­ins í Bæj­ara­landi fékk 33 pró­sent atkvæða í kosn­ingum til þýska sam­bands­þings­ins í gær. Angela Merkel, kansl­ari Þýska­lands og leið­togi banda­lags­ins, seg­ist ætla að mynda nýja rík­is­stjórn fyrir jól.

Banda­lagið hlaut verri kosn­ingu en í kosn­ing­unum árið 2013 þegar það hlaut 41,5 pró­sent atkvæða eða 9,5 pró­sentu­stigum minna. Sósíal demókratar, sam­starfs­flokkur Banda­lags­ins í rík­is­stjórn síð­ustu fjögur árin, hlaut einnig verri kosn­ingu en síð­ast, og fékk nú 20,4 pró­sent atkvæða.

Bæði Banda­lagið og Sósíal demókratar fengu verstu kosn­ingu í þing­kosn­ingum í gær síðan um miðja síð­ustu öld. Miðað við skoð­ana­kann­anir þá hefur fylgis­tapið verið tölu­vert á und­an­förnum vikum, á kostnað öfga­hægri­flokks­ins Val­kostur fyrir Þýska­land (þ. Alt­ernative für Deutschland) sem er nú þriðji stærsti flokk­ur­inn á Sam­bands­þing­inu.

Martin Schulz, for­maður Sósíal demókrata, seg­ist ekki ætla að starfa með Merkel í rík­is­stjórn að nýju og stillir flokki sínum upp í stjórn­ar­and­stöðu á því kjör­tíma­bili sem nú fer í hönd.

Það er því ljóst að Merkel þarf að mynda nýja sam­steypu­stjórn í Þýska­landi. Takist Merkel að mynda stjórn verður það fjórða kjör­tíma­bilið í röð sem hún gegnir stöðu kansl­ara í Þýska­landi.

Öfgaflokkur fékk góða kosningu

Á vef þýska dag­blaðs­ins Süddeutsche Zeitung eru taldir til fjögur meg­in­at­riði sem lesa má úr kosn­inga­nið­ur­stöð­unum.

  1. Banda­lagið hefur tapað miklu, en það er enn nógu sterkt gagn­vart öðrum stjórn­mála­öflum að Angela Merkel getur myndað nýja rík­is­stjórn og verið kansl­ari fjórða kjör­tíma­bilið í röð.
  2. Það er ekki hægt að mynda meiri­hluta á vinstri væng þýskra stjórn­mála. Það helg­ast ekki aðeins af slæmri nið­ur­stöðu Sósíal demókrata, því bæði Vinstri­flokk­ur­inn og Græn­ingjar fengu alls ekki nóg.
  3. Það er heldur ekki hægt að mynda meiri­hluta í íhalds­sama- og frjáls­lynda armi þýskra stjórn­mála.
  4. Róttæka and­spyrnan gegn Merkel er svo sterk að „skelfi­legur“ fjöldi fólks kaus öfga­hægriöfl á þýska sam­bands­þingið.

Þetta eru því nokkur tíma­mót í þýskri stjórn­mála­sögu. Þó allar líkur séu á að Merkel verði áfram kansl­ari, þá er staða hennar veik­ari en áður.

Sú stað­reynd að öfga­hægri­flokk­ur­inn Val­kostur fyrir Þýska­land sé nú þriðji stærsti flokk­ur­inn á þýska þing­inu er einnig sögu­leg, enda hafa rót­tækar stjórn­mála­hreyf­ingar á hægri­vængnum ekki náð fót­festu í Þýska­landi eftir lok seinni heim­styrj­ald­ar­innar.

Öfga­öflin eru hins vegar enn ein­angruð í þýskum stjórn­málum. Enn er stór meiri­hluti Þjóð­verja sem telur Valkost fyrir Þýska­land vera skammar­legan fyrir þingið. Það má geta þess að þó kosn­ing öfga­afl­ana hafi verið góð þá eru enn fjórir fimmtu hlutar kjós­enda sem völdu ekki Valkost fyrir Þýska­land. Ólíklegt þykir að aðrir stjórn­mála­flokkar vilji starfa með Valkosti fyrir Þýska­land.

Margir Þjóð­verjar líta á að ris öfga­afl­anna í kosn­ing­unum sé af sama popúl­íska meiði og í Bret­landi og Banda­ríkj­unum þar sem kjós­endur ákváðu að hafna við­var­andi ástandi með því að kjósa gegn því hefð­bundna. Þýska stjórn­mála­kerfið stóð storm­inn betur af sér en breska eða banda­ríska kerfið. Hinn almenni kjós­andi í Þýska­landi hefur haft hag af auk­inni hnatt­væð­ingu og mörgum þykja öfgar í stjórn­málum ekki heill­andi, í sögu­legu til­liti.

Það virð­ist þó vera grunnt á sam­stöð­unni innan flokks­ins Val­kostur fyrir Þýska­land. Eftir að nið­ur­stöður kosn­ing­anna lágu fyrir var fögn­uð­ur­inn fljótur að breyt­ast í inn­an­flokksá­tök. Frauke Petry, einn leið­toga flokks­ins og and­lit flokks­ins útá­við, sagð­ist ekki ætla að taka sæti á þing­inu undir merkjum flokks­ins. Ekki er enn á hreinu hvers vegna hún ákvað að gera þetta.

Merkel reynir við smærri flokka

Sú rík­is­stjórn sem Merkel mun að öllum lík­indum reyna að mynda verður sam­steypu­stjórn þriggja flokka, Banda­lags­ins, Frjálsra demókrata og Græn­ingja. Slíkt stjórn­ar­sam­starf hefur þegar fengið nafnið „Jamaíka“ enda eru litir flokk­ana þeir sömu og í jama­íska fán­anum; Svartur, gulur og grænn.

Við­bragðið við nið­ur­stöðum kosn­ing­anna á mörk­uðum var að mestu nei­kvætt, enda er búist við því að stjórn­ar­myndun muni taka tölu­verðan tíma. Þá ótt­ast mark­að­ur­inn að langt stjórn­ar­mynd­un­ar­ferli muni flytja ein­beit­ing­una frá samn­inga­við­ræðum Evr­ópu­sam­bands­ins um útgöngu Breta úr sam­band­inu til samn­inga­við­ræðna í Berlín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár