Þennan mann verður að stöðva

Ísland mætir Portúgal í dag klukkan 19:00 á EM í Frakk­landi. Þar er Cristiano Ronaldo fremstur meðal jafn­ingja.

Maður er nefndur Cristiano Ronaldo. Þessi 31 árs Portú­gali hefur ásamt Argent­ínu­mann­inum Lionel Messi verið allra besti fót­bolta­maður heims­ins í næstum heilan ára­tug. Sjaldan hafa tveir leik­menn haft jafn mikla yfir­burði yfir aðra leik­menn, þegar horft er til marka sér­stak­lega og alþjóð­legra við­ur­kenn­inga.

Ronaldo hefur í þrí­gang verður knatt­spyrnu­maður árs­ins hjá FIFA, 2008, 2013 og 2014.

En eins ótrú­lega og það hljómar - miðað við mark­sækni hans - þá eru það ekki mörkin sem eru aðal­at­riðið hjá Ronaldo.

Hann er óút­reikn­an­legt vopn á vell­inum. Sem sýnir sig best á því hve illa and­stæð­ingum hans gengur að stöðva hann í hverri viku.

Hann skorar eig­in­lega alltaf. Hægri, vinstri, skalli. Beint úr auka­spyrnu. Víti. Langskot. Hann er með öll þessi vopn í búr­inu, ofan á gríð­ar­legan hraða, lík­am­legan styrk og tækni.

Stundum er eins og hann sé vél­menni, þegar hann þeys­ist upp völl­inn og kemur sér í færin þar sem bolt­inn kemur síðan.

Markið sem hann skor­aði á Laug­ar­dals­velli, 12. októ­ber 2010, var dæmi­gert fyrir hann. Frábær óút­reikn­an­leg auka­spyrna sem Gunn­leifur Gunn­leifs­son réð ekki við.

Tölurnar segja sitt: Hjá Real Madrid hefur hann skorað 260 deild­ar­mörk, í 238 leikjum. Það er meira en mark að með­al­tali í hverjum ein­asta leik. Þá hefur hann skorað 37 þrennur á ferl­inum hjá Real Madrid, sem verður að telj­ast með ólík­indum, en hann kom til félags­ins frá Manchester United árið 2009. Hann er eini leik­mað­ur­inn í sögu spænsku deild­ar­keppn­innar sem hefur skorað meira en 30 deild­ar­mörk á tíma­bili, sex tíma­bil í röð.

Hann er þegar orð­inn marka­hæsti leik­maður félags­ins í sög­unni, og stendur öllum öðrum framar, hvert sem litið er. Þá er hann líka marka­hæsti leik­maður Portú­gals frá upp­hafi, með 58 mörk í 126 leikjum.

En eng­inn er óstöðv­andi, eins og Íslend­ingar hafa sýnt. Þeim tókst að halda hinum eldsnögga Arjen Robben í skefjum, og það sama má segja um marga sterka leik­menn Tyrk­lands og Tékk­lands, í und­ankeppn­inni.

Það er ekki gott að segja hvernig best er að stöðva Ronaldo, en eitt er alveg öruggt: mikla sam­stöðu þarf að sýna í varn­ar­leiknum, ef ekki á illa að fara, og ein­beit­ingin verður að vera hjá leik­mönnum allan leik­inn. Hverja ein­ustu sek­úndu. Ef það tekst, þá er allt hægt. Íslenska liðið er sterkt þegar allir verj­ast og sækja sem lið. Enginn einn leik­maður getur skákað góðri liðs­heild.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

em2016

Fréttirem2016

Starfs­fólk KSÍ fær bón­us­greiðslur vegna EM

Starfs­fólk Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands (KSÍ) fær greitt launa­upp­bót sökum álags í tengslum við þátt­töku A-lands­liðs karla á EM í Frakk­landi í sumar, þar sem liðið komst í átta liða úrslit. Uppbótin mun sam­svara mán­að­ar­launum hvers starfs­manns. Stjórn KSÍ sam­þykkti þetta á fundi í júlí. Frá mál­inu er greint í Frétta­blað­inu í dag. Geir Þor­steins­son, for­maður KSÍ, bar fram til­lög­una þegar hún...
Fréttirem2016

Eft­ir­spurn eftir gist­ingu í Frakk­landi jókst mest meðal Íslend­inga

Tífalt fleiri Íslend­ingar leit­uðu eftir gist­ingu í Frakk­landi á fyrri hluta þessa árs en í fyrra á vef Hotels.com, enda náði íslenska landsiðið í knatt­spyrnu langt á Evr­ópu­meist­ara­mót­inu sem fram fór í Frakk­landi í júní. Sam­an­borið við önnur lið sem náðu jafn langt og Ísland í keppn­inni juk­ust leitir Íslend­inga mest. Að jafn­aði fjölg­aði leitum að hót­el­her­bergjum í Frakk­landi um...
Pistillem2016

Þórður Snær Júlíusson

Þegar Arnór Ingvi tryggði Portú­gölum Evr­ópu­meist­ara­titil

Úrslita­leikir hafa til­hneig­ingu til að vera leið­in­legir. Þeir sem hafa ekki verið það eru telj­andi á fingrum ann­arar handar. Mexíkó 1986, kannski úrslita­leikur EM 2000, úrslita­leikur meist­ara­deild­ar­innar í Istanbúl árið 2005 koma upp í hug­ann. Þótt ýmsir leikir hafi inni­haldið hádramat­ísk augna­blik, t.d. magn­aður sigur Manchester United á Bayern Munich árið 1999, þá var leik­ur­inn sjálfur að mestu hund­leið­in­legur. Úrslita­leikur...
Erlentem2016

Portúgal Evr­ópu­meist­arar eftir sigur á Frökkum

Portúgal er Evr­ópu­meist­ari eftir að hafa sigrað Frakk­land 1-0 í úrslita­leik EM 2016. Eina mark leiks­ins var skorað af vara­mann­inum Eder, sem á 109 mín­útu leiks­ins. Heima­menn í Frakk­landi höfðu þótt mun sig­ur­strang­legri fyrir leik­inn og sig­ur­líkur þeirra þóttu ekki minnka þegar Cristiano Ronaldo, einn besti knatt­spyrnu­maður sög­unnar, þurfti að fara meiddur af velli um miðjan fyrri hálf­leik. Fyrir leik­inn...
Erlentem2016

Kolbeinn við það að verða kos­inn leik­maður EM á vef Sky

Kolbeinn Sig­þórs­son, fram­herji íslenska lands­liðs­ins og franska liðs­ins Nantes, er í efsta sæti í kosn­ingu á leik­manni EM hjá Sky. Kolbeinn hefur fengið yfir 20 þús­und atkvæði en Antoine Griezmann, helsta stjarna franska lands­liðs­ins, situr í öðru sæti með um 18 þús­und atkvæði. EM lýkur síðar í dag með úrslita­leik heima­manna í Frakk­landi gegn liði Portúgal. Íslenska lands­liðið datt sem...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár