Tólf þúsund störf hurfu við hrunið - 16.300 hafa komið í staðinn

Bróð­ur­partur rúm­lega 16 þús­und nýrra starfa sem orðið hafa til á Íslandi frá banka­hruni er til­kom­inn vegna ferða­þjón­ust­unnar. Störfin virð­ast að miklu leyti mönnum með erlendu vinnu­afli og Íslend­ingar flytja frekar burt en til lands­ins.

Fyrir þau tólf þús­und störf sem töp­uð­ust á árunum 2008 til 2010 á Íslandi hafa orðið til 16.300 ný í stað­inn. Á árinu 2015 einu saman fjölg­aði störfum um sex þús­und. Bróð­ur­partur allra nýrra starfa sem orðið hafa til á Íslandi eftir banka­hrun er til­kom­inn vegna ferða­þjón­ustu og þau svör virð­ast ekki mæta nema að hluta til vænt­ingum Íslend­inga um starfs­vett­vang og starfs­kjör. Þess vegna virð­ist fjölgun starfa að miklu leyti hafa verið mætt með erlendu vinnu­afli á sama tíma og fleiri Íslend­ingar flytja af landi brott en til lands­ins. Þetta kemur fram í nýrri grein­ingu Arion banka á vinnu­mark­að­inum þá og nú, sem birt var í dag.

Atvinnu­leysi á Íslandi mælist nú 3,5 pró­sent sam­kvæmt könn­unum Hag­stof­unnar og 2,6 pró­sent sam­kvæmt skrán­ingum Vinnu­mála­stofn­unar. Í þjóð­hags­lík­ani Seðla­banka Íslands er miðað við 4 pró­sent jafn­væg­isat­vinnu­leysi og því ljóst að skortur er á vinnu­afli hér­lendis í kjöl­far hins mikla upp­gangs í ferða­þjón­ustu.

Íslendingar fara, erlent vinnuafl kemur

Í grein­ingu Arion banka er bent á að þrátt fyrir þennan skort sem mynd­ast hefur á vinnu­mark­aði þá flytja Íslend­ingar frekar úr landi, og því velt fyrir sér hvað valdi. Eitt sem spili þar inn í er aukin menntun vinnu­afls, en hlut­fall háskóla­mennt­aðra á meðal starf­andi ein­stak­linga hefur auk­ist úr 11 pró­sentum í tæp 34 pró­sent frá árinu 1991 til loka síð­asta árs.

Í grein­ing­unni segir: „Á síð­asta ári voru brott­fluttir Íslend­ingar umfram aðflutta 1.265. Fjölgun starfa virð­ist því að miklu leyti hafa verið mætt með erlendu vinnu­afli en á sama tíma voru aðfluttir erlendir rík­is­borg­arar umfram brott­flutta 2.716. Auðvitað eru marg­vís­legar ástæður fyrir því að fólk flytur búferlum til lengri eða skemmri tíma og það er óneit­an­lega jákvæð þróun að fólk hafi tæki­færi til að freista gæf­unnar í öðru landi. Þessi þróun gefur til kynna að sú sköpun starfa sem orðið hefur síð­ustu ár sé enn sem komið er aðeins að hluta til að mæta vænt­ingum Íslend­inga um starfs­vett­vang og starfs­kjör.“

Nið­ur­staða grein­ing­ar­deildar Arion banka er sú að flest bendi til þess að störfum muni halda áfram að fjölga mikið á næstu miss­erum. Á sama tíma sækja sífellt fleiri Íslend­ingar sér fram­halds- og háskóla­mennt­unar og því sé spurn­ingin sem þjóðin standi frammi fyrir sú hvort mennt­unin sem Íslend­ingar eru að sækja sér falli að vinnu­mark­að­inum og umhverfi atvinnu­sköp­unar „eða hvort texti Spil­verks­ins muni eiga við: „Hér vantar tólin og tækin og réttu vanda­málin.“ Spenn­andi verður að fylgj­ast með fram­vind­unni á vinnu­mark­aði, hvort að ferða­þjón­ustan haldi áfram að vera leið­andi í sköpun nýrra atvinnu­tæki­færa eða hvort aðrar atvinnu­greinar taki við kefl­inu, og hvernig fyllt verður upp í hinar nýju stöður.“

Konur og landsbyggð sækja á

Í grein­ing­unni er einnig sagt frá því að atvinnu­þátt­taka kvenna hafi verið 79,3 pró­sent í fyrra og hafi aldrei mælst hærri. Á sama tíma er atvinnu­þátt­taka karla 85,7 pró­sent, sem er umtals­vert lægri en hún hefur verið áður.

Þótt flest ný störf hafi orðið til á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þá fjölgar störfum hraðar á lands­byggð­inni. Í grein­ing­unni segir: „Utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins ber fræðslu­starf­semi höfuð og herðar yfir aðrar atvinnu­greinar í atvinnu­sköpun. Þannig hefur störfum í tengslum við fræðslu­starf­semi fjölgað um 40 pró­sent frá árinu 2011, eða um 2.600 störf sem er mesta fjölg­unin í stöðu­gildum talið, utan sem innan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Þá hefur störfum er snúa að rekstri gisti­heim­ila og veit­inga­rekstri fjölgað umtals­vert sem og störfum í flutn­ingum og versl­un­ar­geir­anum. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur ýmis sér­hæfð þjón­usta verið umsvifa­mikil sem og upp­lýs­inga- og fjar­skipta­geir­inn sem sópað hefur til sín starfs­fólki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár