Einstaklingur með yfir 700 þúsund á mánuði á ekki að fá persónuafslátt

Þor­steinn Víglunds­son, vara­for­maður Við­reisnar, vill að horft verði til þess við skatt­kerf­is­breyt­ingar að taka upp útgreið­an­legan per­sónu­af­slátt sem muni nýt­ast lægstu tekju­hópum best.

Þor­steinn Víglunds­son, vara­for­maður Við­reisnar, segir að hann vilji að horft verði til þess að taka upp útgreið­an­legan per­sónu­af­slátt þegar skatt­kerf­inu verði breytt. Sá per­sónu­af­sláttur myndi svo minnka eftir því sem tekjur yrðu hærri og þeir sem væru með hærri tekjur en 700-800 þús­und krónur á mán­uði myndu ekki fá neinn per­sónu­af­slátt. Þetta yrði leið sem myndi gagn­ast lægstu tekju­hóp­unum best. Þor­steinn var annar gesta síð­asta sjón­varps­þáttar Kjarnans á Hring­braut. Hinn gestur þátt­ar­ins var Drífa Snædal, fram­kvæmda­stjóri Starfs­greina­sam­bands­ins. Þáttinn í heild sinni er hægt að sjá hér að neðan:

Í þætt­inum sagði Þor­steinn að þegar hann hafi verið félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra þá hafi verið lögð áhersla á að vinna að úrbótum hvað varðar hús­næð­is­mál og milli­færslu­kerfa í ráðu­neyti hans.

Auknir erf­ið­leikar fólks við að koma þaki yfir höf­uðið og minnk­andi hlut­verk bóta­kerfa skipti klár­lega máli við að skapa þá stöðu sem nú er uppi. Mikið af hús­næði vanti inn í flór­una sem ætlað sé þeim helm­ingi þjóð­ar­innar sem er með minnst á milli hand­anna. „Þar þurfa sveit­ar­fé­lögin að koma miklu sterkara inn með fram­boð því þrátt fyrir alla þá kosti sem fylgja þétt­ingu byggðar hér á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þá má samt ekki gleyma því að þetta eru dýrar íbúðir sem við erum að byggja. Hópurinn sem líður fyrir skort­inn er lág­tekju­hóp­ur­inn. Þarna þarf að gera braga­bót á.“

Að hans sögn hafa tekju­til­færslu­kerfi, á borð við barna- og hús­næð­is­bóta­kerfi, veikst hér­lendis. Hann vill horfa til til­lagna sem komu fram á vett­vangi Sam­ráðs­vett­vangs um aukna hag­sæld á sínum tíma. „„Þær voru ekki galla­lausar en þær mið­uðu að því að það væri mun hærri útgreið­an­legur per­sónu­af­sláttur sem myndi nýt­ast lægsta hópnum hvað mest. Hann myndi síðan bara þrep­ast niður þannig að ein­stak­lingur með 700--800 þús­und krónur á mán­uði hefði engan per­sónu­af­slátt lengur. Meðal ann­ars var líka lagt upp með að aleggja af sam­sköttun hjóna, sem er gríð­ar­legt jafn­rétt­is­mál á vinnu­mark­aði. Að ein­stak­lingar séu bara skatt­lagðir hver um sig. Það er gríð­ar­lega atvinnu­þátt­töku­hvetj­andi fyrir bæði kynin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár