Vilja nýtt starfsheiti ráðherra – Það ávarpar enginn biskup „herra Agnes“

Þingmenn úr þremur flokkum vilja að for­sæt­is­ráð­herra skipi nefnd sem finni nýtt orð yfir ráð­herra­starfið sem end­ur­spegli betur veru­leika dags­ins. Sam­bæri­leg til­laga var flutt fyrir næstum 15 árum en hlaut ekki braut­ar­gengi.

Guðmundur Andri Thorsson, varaþingmaður Samfylkingarinnar, er fyrsti flutningsmaður tillögunnar.
Guð­mundur Andri Thorsson, vara­þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, er fyrsti flutn­ings­maður til­lög­unnar. Mynd: Bára Huld Beck

Þingmenn úr þremur stjórn­ar­and­stöðu­flokkum hafa lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu þess efnis að Alþingi feli for­sæt­is­ráð­herra að skipa nefnd um nýtt starfs­heiti ráð­herra sem end­ur­spegli betur veru­leika og hugs­un­ar­hátt dags­ins í dag.

Í til­lög­unni segir að verði nefnda­skip­anin sam­þykkt skuli umfjöllun nefnd­ar­innar lokið eigi síðar en 1. sept­em­ber 2022 og liggi þá fyrir til­lögur sem for­sæt­is­ráð­herra hafi til hlið­sjónar við end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar.

Fyrsti flutn­ings­maður til­lög­unnar er Guð­mundur Andri Thorsson, vara­þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, en þing­menn úr hans eigin flokki, Pírötum og Flokki fólks­ins eru einnig á til­lög­unni.

Í grein­ar­gerð sem fylgir til­lög­unni er bent á að þegar Íslend­ingar fengu heima­stjórn árið 1904 hafi upp­haf­lega staðið til að starfið kall­að­ist „ráð­gjafi“ en því var breytt áður en fyrsti íslenski ráð­herr­ann tók til starfa. „Þess má geta að árið 1904 voru konur ekki einu sinni komnar með kosn­ing­ar­rétt og það var því fjar­lægur mögu­leiki að kona gegndi starfi ráð­herra þegar starfs­heitið varð til. Í erlendum málum eru sam­bæri­leg starfs­heiti ekki kyn­bundin á sam­bæri­legan hátt. Í sumum málum er talað um „kansl­ara“ eða „chancellor“ í þessu sam­bandi, eða „mini­ster“, sem kall­ast á við prest­þjón­ustu. Í Færeyjum eru að störfum „lands­stýr­is­menn“ og „l.gmaður“, og þannig má áfram telja.“

„Engum datt heldur í hug að ávarpa frú Vigdísi forseta sem herra“

Flutn­ings­menn segja að und­an­farin ár hafi átt sér stað vit­und­ar­vakn­ing í sam­fé­lag­inu um hvernig tungu­málið hefur um aldir end­ur­speglað valda­hlut­föll kynj­anna, þar sem karl­kynið sé hið ráð­andi kyn. „Þannig er orðið „maður“ í dag­legu tali bæði haft um karl­menn sér­stak­lega og mann­kynið yfir­leitt, sem sýnir okkur að ein­ungis virð­ist hafa verið gert ráð fyrir einu kyni í opin­beru rými. Konur hafa um aldir verið sjald­séðar og lítt sýni­legar á vett­vangi stjórn­mála, þing­starfa, vís­inda, lista, fjöl­miðla, fræða og ann­ars staðar í opin­beru rými. Kvenna­bar­átta síð­ustu aldar breytti þessu. Konur kröfð­ust rétt­inda og rýmis með þeim árangri að þær eru nú áber­andi á ótal sviðum sam­fé­lags­ins ekki síður en karlar. Tungu­málið end­ur­speglar hinar fornu hug­myndir að nokkru leyti. Áberandi er að fólk reynir nú að kom­ast svo að orði að tungu­takið úti­loki ekki aðrar mann­eskjur en karla. Af þeim sökum á karl­kynið sem ráð­andi mál­fræði­kyn í vök að verj­ast. Hér getur Alþingi gengið á undan með góðu for­dæmi.“

[adspot]Í grein­ar­gerð­inni segir að ein birt­ing­ar­mynd þessa gamla ójafn­réttis sem varð­veit­ist í tungu­mál­inu sé starfs­heitið ráð­herra, sem inni­beri fornan virð­ing­ar­titil karl­manns. „Þegar konum hefur fjölgað í hinum svoköll­uðu ráð-„herra“-störfum, eins og öðrum störfum sem voru áður ein­okuð af körlum og herrum, er sér­kenni­legt að halda þeim sið að í starfs­heit­inu sé ein­ungis gert ráð fyrir körlum. Nú þegar biskup er kona þykir ekki fara vel á því að hún sé ávörpuð „herra Agnes“, eins og gilti um fyr­ir­renn­ara hennar í starfi. Engum datt heldur í hug að ávarpa frú Vigdísi for­seta sem herra þótt for­verar hennar hefðu verið nefndir svo. Að sama skapi er það nokkuð afkára­legt að við­hafa ráð-„herra“-titil um þær konur sem gegna því starfi. [...] Það er mat flutn­ings­manna að auð­velt hljóti að vera að finna gott heiti á þetta mik­il­væga starf, heiti sem end­ur­speglar betur breyttan veru­leika og breyttan hugs­un­ar­hátt frá árinu 1904.“

Myndi karlmaður sætti sig við að vera kallaður ráðfrú?

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þings­á­lykt­un­ar­til­laga um nýtt starfs­heiti ráð­herra er lögð fram á Alþingi. Það gerð­ist líka árið 2007, fyrir næstum 15 árum síðan, þegar Steinunn Valdís Ósk­ars­dóttir, þáver­andi þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, lagði fram sam­bæri­lega til­lögu.

Í grein­ar­gerð hennar sagði meðal ann­ars að sú þróun hefði þá átt sér stað í hefð­bundnum kvenna­stéttum þegar karlar hefðu haslað sér þar völl að starfs­heitum hefði verið breytt til þess að bæði kynin geti borið þau. „Þannig urðu hjúkr­un­ar­konur að hjúkr­un­ar­fræð­ingum, fóstrur urðu leik­skóla­kenn­arar og Fóstru­skóla Íslands var breytt í Fóst­ur­skóla Íslands, m.a. af til­lits­semi við karla því að ekki þótti boð­legt fyrir karl­menn að vera kven­kenndir. Um eðli­lega og sjálf­sagða leið­rétt­ingu var að ræða. Í seinni tíð er það orðið æ algeng­ara að konur kalli sig fram­kvæmda­stýrur og konur sem gegnt hafa aðstoð­ar­manns­störfum m.a. ráð­herra og borg­ar­stjóra hafa tekið upp tit­il­inn aðstoð­ar­kona. Ef orðin ráð­herra og sendi­herra væru t.d. „ráð­frú“ og „sendi­frú“ hefði eflaust einnig þótt sjálf­sagt að breyta starfs­heit­inu um leið og fyrsti karl­mað­ur­inn tók að sér slíkt emb­ætti. Það er því í fyllsta sam­ræmi við þessa þróun að breyta einnig starfs­heitum í hefð­bundnum karla­stéttum, þannig að konur geti borið þau. Ráð­herra­emb­ætti eiga ekki að vera eyrna­merkt körlum.“

Í umræðum um til­lög­una tóku nokkrir karl­kyns­þing­menn til máls og mæltu gegn til­lög­unni af ýmsum ástæðum. Einn þing­maður tók til máls og studdi það, Steinunn Þóra Árna­dóttir úr Vinstri grænum.

Á meðal þeirra sem töl­uðu gegn því að breyta starfs­heit­inu var Árni Johnsen, þáver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks. Hann sagði það út í hött að velta svona hlutum fyrir sér sem væru orðnir alveg kirfi­lega fastir í mál­inu og hafi í raun­inni aldrei truflað neitt nema kannski sér­visku fólks. „En það má til að mynda nefna orðið „hetja“. Hetja er kven­kyns­orð og þess vegna ætti það ekki að eiga við um karla. Karlmenn eru ekki svo ég viti til almennt að kveinka sér undan því að vera kall­aðir hetjur en orðið er kven­kyns. Við þyrftum alveg eins að breyta því og mörgum öðrum ef við ætlum að fara að gera sér­stakan grein­ar­mun á þessu kynja­lega séð.“

Grund­vall­ar­at­riðið væri, að mati Árna, að konur séu líka menn. „Mér finnst bara gaman að þessu inn­leggi en ég er hræddur um að ýmsir karl­menn mundu kvarta yfir því ef þeir ættu ekki lengur kost á því að vera kall­aðir hetjur, því að mörgum er í blóð borið að sækj­ast eftir slíku.“

Tillaga Stein­unnar Valdísar var í kjöl­farið svæfð í nefnd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár