Þrír karlar fá milljón fyrir að læra til leikskólakennara

Verkefni sem miðar að því að auka hlut karla í yngri barna kennslu ætlar að borga þremur körlum milljón á mann fyrir að ljúka meist­ara­námi í leik­skóla­kenn­ara­fræðum.

Þrír karlar munu fá styrk upp á eina milljón króna fyrir að fara í nám á meist­ara­stigi í leik­skóla­kenn­ara­fræðum í annað hvort Háskóla Íslands eða Háskól­anum á Akureyri í haust.

Þetta er gert á vegum Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga, Mennta­vís­inda­sviðs Hákóla Íslands, Kenn­ara­deildar Háskól­ans á Akureyri, Félags leik­skóla­kenn­ara og Félags stjórn­enda leik­skóla, en þessir aðilar fengu styrk úr Jafn­rétt­is­sjóði Íslands til að vinna að verk­efni undir yfir­skrift­inni „Karlar í yngri barna kennslu.“

Meg­in­mark­miðin með verk­efn­inu eru að vekja athygli ungra karla á starfi kenn­ara í leik­skólum, og að fjölga þeim í starfi.

Karl­arnir þrír verða ráðnir sem verk­efn­is­stjórar í verk­efn­inu og munu sinna verk­efnum í sam­ráði við stýri­hóp með því mark­miði að vekja athygli á nám­inu. Þeir munu fá styrk­inn greiddan þegar námi er lokið og þeir hafa skilað inn afriti af leyf­is­bréfi til kennslu á leik­skóla­stigi ásamt grein­ar­gerð. Karl­arnir eiga að kynna hug­myndir sínar um hvernig þeir hygg­ist kynna námið og starfið, en engin kvöð er um að þeir starfi sem leik­skóla­kenn­arar þegar þeir hafa fengið styrk­inn.

Karlar eru innan við tvö pró­sent mennt­aðra leik­skóla­kenn­ara á land­inu, og ýmis­legt hefur verið reynt í gegnum tíð­ina til að fjölga þeim, en með litlum árangri, að því er fram kemur í Morg­un­blað­inu í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár