Verktakar verða fyrir tugmilljóna tjóni vegna þjófnaðar

Bygg­inga­verk­takar verða fyrir ítrek­uðu tjóni vegna þjófn­aðar á verk­færum og tækjum. Ástand­inu er lýst sem far­aldri. Lögregla og tolla­yf­ir­völd segja að um skipu­lagða glæp­a­starf­semi sé að ræða. Sjálf­stæður raf­verk­taki lenti í því að öllum hans tækjum var stolið í tvígang á hálfu ári.

Verk­takar í bygg­ing­ar­iðn­aði sem Stundin hefur rætt við segja stuld á verk­færum, tækjum og jafn­vel bygg­ing­ar­efni svo umfangs­mik­inn að tala megi um far­aldur í þeim efnum. Inn­kaupa­stjóri ÞG Verks, eins stærsta verk­taka­fyr­ir­tækis lands­ins, segir að fyr­ir­tækið verði fyrir alvar­legu inn­broti á hverjum verk­stað sem það rekur einu sinni til tvisvar á verk­tíma, svo tjón vegna þess hlaupi á hund­ruðum þús­unda eða millj­ónum í hvert sinn. Er það sam­dóma álit þeirra sem rætt var við að stærstur hluti þjófn­að­ar­ins sé skipu­lagður og verk­færi, tæki og tól séu send úr landi til sölu þar.

Samtök iðn­að­ar­ins full­yrða að tjón bygg­ing­ar­iðn­að­ar­ins vegna þessa hlaupi á hund­ruðum millj­óna á und­an­förnum árum og vitað sé um ein­staka verk­taka sem hafi orðið fyrir tug­millj­óna króna tjóni í þjófn­að­ar­hr­inu sem reið yfir snemma á þessu ári. Ekkert lát virð­ist á þjófn­aði og skemmd­ar­verkum.

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu kann­ast við vanda­málið og að sögn Skúla Jóns­sonar aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjóns …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár