Verðbólgan aftur komin undir þrjú prósent

Verð­bólga hækk­aði á síð­ustu mán­uðum árs­ins 2018 eftir að hafa verið undir verð­bólgu­mark­miði í meira en fjögur ár. Nú hefur hún lækkað aftur þrjá mán­uði í röð og mælist 2,9 pró­sent.

Þróun verðbólgu hefur mikil áhrif á húsnæðislán þorra landsmanna.
Þróun verð­bólgu hefur mikil áhrif á hús­næð­is­lán þorra lands­manna. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Árs­verð­bólga mælist nú 2,9 pró­sent, sam­kvæmt nýjum tölum um þróun vísi­tölu neyslu­verðs sem Hagstofa Íslands birti í morgun. Það er nán­ast sama verð­bólga og mæld­ist fyrir ári síðan, í mars 2018, þegar hún var 2,8 pró­sent.

Verð­bólgan hækk­aði skarpt á síð­ari hluta árs­ins 2018 og mæld­ist 3,7 pró­sent í des­em­ber síð­ast­liðnum. Hún hefur hins vegar hjaðnað hratt síðan og er nú undir þremur pró­sentu­stigum á ný, en árs­verð­bólgan mæld­ist síð­ast undir því marki í októ­ber síð­ast­liðnum.

Verð­bólgu­mark­mið Seðla­banka Íslands er 2,5 pró­sent. Vel hefur gengið á und­an­förnum árum að halda verð­bólg­unni undir því mark­miði. Verð­bólgan fór undir 2,5 pró­sent mark­miðið í febr­úar 2014 og hélst þar þangað til í mars í fyrra.

Frá febr­úar 2014 hefur verð­bólga mælst þrjú pró­sent eða hér­lendis í fjóra mán­uði, þ.e. frá nóv­em­ber 2018 og fram í febr­úar síð­ast­lið­inn.

Í frétt Hag­stof­unnar um hækkum á vísi­tölu neyslu­verðs segir að hún hafi hækkað um 0,52 pró­sent á milli mán­aða. Þar skipti mestu að vetr­ar­út­sölum sé nú lokið og því hafi verð á fötum og skóm hækkað um 9,5 pró­sent milli mán­aða. Þá hækk­aði verð á elds­neyti um 1,8 pró­sent og flug­far­gjöld um 5,4 pró­sent.

Verðbólga hefur áhrif á lán heimila

Þróun verð­bólgu skiptir íslensk heim­ili miklu máli þar sem þorri lána þeirra eru verð­tryggð. Það þýðir að þróun verð­bólgu hefur áhrif á þróun lána þeirra. Því meiri verð­bólga því hærri verð­bætur leggj­ast á lánin, og því meira þarf að greiða til baka af höf­uð­stól þess.

Í skýrslu sem Íslands­banki vann og birti í októ­ber í fyrra kom fram að 77 pró­sent heild­ar­skulda íslenskra heim­ila væru verð­tryggðar.

Slík lán hafa verið hag­kvæm­asti kost­ur­inn sem boð­ist hefur íslenskum neyt­endum á und­an­förnum árum þar sem verð­bólga hefur, líkt og áður sagði, að mestu verið við eða undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miðum Seðla­banka Íslands síð­ast­lið­inn fimm ár.

Samhliða hafa láns­kjör batnað umtals­vert, þótt þau séu enn langt frá því að vera á pari við það sem er í boði hjá öðrum þjóðum sem Ísland ber sig saman við. Þannig eru vextir á ódýr­ustu verð­tryggðu lán­unum sem bera breyti­lega vexti nú 2,15 pró­sent og alls bjóða níu íslenskir líf­eyr­is­sjóðir sjóðs­fé­lögum sínum slík lán með vöxtum sem eru undir þremur pró­sentum.

Verð­tryggðir breyti­legir vextir hjá bönk­unum þremur eru hins vegar á bil­inu 3,55 til 3,89 pró­sent. Ódýr­astir hjá rík­is­bank­anum Lands­banka og dýr­astir hjá hinum rík­is­bank­anum, Íslands­banka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár