Áreitti borgara með ólögmætum bréfasendingum en sleppur við áminningu

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir dóms­mála­ráð­herra ætlar ekki að veita Haraldi Johann­es­sen rík­is­lög­reglu­stjóra áminn­ingu vegna fram­göngu sem ráðu­neytið telur að hafi verið ámæl­is­verð og jafn­vel snú­ist um að vernda per­sónu­lega hags­muni Haraldar á kostnað emb­ætt­is­ins. „Hvaða skila­boð eru það til almenn­ings og emb­ætt­is­manna ef það hefur engar afleið­ingar að brjóta á rétti borg­ar­anna?“ spyr Björn Jón Bragason.

Ekki áminntur
Ekki áminntur Þórdís Kolbrún, æðsti yfir­maður lög­gæslu á Íslandi, ætlar ekki að áminna Harald Johann­es­sen þótt hann hafi mis­notað bréfs­efni emb­ættis síns og áreitt borg­ara með ólög­mætum bréfa­send­ingum. Mynd: Pressphotos.biz / Geirix

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir dóms­mála­ráð­herra ætlar ekki að áminna Harald Johann­es­sen rík­is­lög­reglu­stjóra þótt Haraldur hafi mis­notað aðstöðu sína og sent borg­urum vill­andi og til­efn­is­laus bréf í nafni emb­ættis síns með ásök­unum um lög­brot. 

Við­tak­endur bréf­anna voru Björn Jón Bragason sagn­fræð­ingur og Sigurður K. Kol­beins­son, þátta­stjórn­andi á Hring­braut, en málið varðar frá­sögn af fundi sem birt­ist í bók Björns Jóns, Gjald­eyr­is­eft­ir­litið – vald án eft­ir­lits? árið 2016 og vísað var til í sjón­varps­þætti Sigurðar í októ­ber 2017. Byggir umfjöll­unin á frá­sögn Valtýs Sig­urðs­sonar, fyrr­ver­andi rík­is­sak­sókn­ara, sem stað­festi hana í sjón­varps­þætt­inum á Hring­braut.

Í mars 2018 bár­ust Birni og Sigurði bréf, rituð á bréfs­efni rík­is­lög­reglu­stjóra­emb­ætt­is­ins, þar sem full­yrt er að frá­sögnin sé „mark­leysa“ og „sýnt að [þeir beri] ábyrgð á ólög­mætri mein­gerð gagn­vart þeim sem umfjöll­unin bein­ist gegn“. 

Undir bréfið rita bæði Haraldur og tveir fyrr­ver­andi starfs­menn emb­ætt­is­ins, Guð­mundur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár