„Mig langar að segja frá því hvernig lífið getur breyst á örskotsstundu, hvernig ein nótt getur breytt öllu,“ segir Sigurbjörg. „Ég var átján ára áhyggjulaus unglingur úti að skemmta mér í miðborg Parísar, ástarborginni sem þekkt er fyrir fegurð sína og sjarma, þegar þetta gerðist. Hvernig atburðir geta átt sér stað sem þú hefðir aldrei getað ímyndað þér, trúað að væru svo erfiðir og mikil vinna að yfirstíga þá. Að þú getir varla trúað því að þú komist nokkurn tímann yfir þessar endalausar endurupplifanir, martraðir og svefnleysi. Að einn daginn áttar þú þig á því að þú ert ekki lengur að hugsa um þetta allan daginn alla daga. Að þú getir sofið, borðað og verið glöð. Það er kannski stærsti sigurinn sem þú getur upplifað eftir svona stranga baráttu, því hún hefur kannski ekki verið mjög löng, bara fögur ár, en vissulega ströng og mikið drama, miklar sveiflur, sterkar tilfinningar …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.






















Athugasemdir