Mynd: Heiða Helgadóttir

Draumur um fjárhagslegt frelsi

Hjördís Halla Eyþórs­dóttir ætlar að lifa lífi þar sem hún er frjáls og getur leikið sér, notið stundarinnar og nátt­úrunnar. Hún hefur því fest kaup á húsi í sveit, þangað sem hún ætlar að flytja með tímanum til að flýja neyslu­hyggju nútíma­samfélags.

„Draumurinn er að eignast heimili í sveit og vera frjáls frá fjárhags­skuld­bindingum,“ segir Hjördís Halla Eyþórs­dóttir.

Frá árinu 2012, eða í heil sjö ár, hefur Hjördís Halla verið á svo miklu flakki að hún hefur aldrei náð að festa rætur eða eignast heimili. Á þessum sjö árum hefur hún leigt húsnæði á tólf mismun­andi stöðum, búið inni á vinum sínum og úti á landi í íbúð í boði vinnu­veitanda. Í gegnum allt þetta flakk og flandur hefur hún öðlast þann draum að fá að festa rætur og eignast sitt eigið heimili. „Mig dreymir um að eiga mitt eigið húsnæði, þar sem ég ræð mér sjálf og get lifað mínu lífi, út frá mínum hugsjónum og mínum gildum. Ég vil fjárhagslegt frelsi svo ég geti verið frjáls og gert það sem ég vil. Mér finnst svo margir vera í þeirri stöðu að vera skuld­bundnir bankanum í gegnum lána­viðskipti alla ævi. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár