Undir 60 prósent landsmanna skráðir í þjóðkirkjuna

Alls hafa 2.310 manns yfir­gefið þjóð­kirkj­una á tíu mán­uðum. Nú eru fjórir af hverjum tíu lands­mönnum ekki í henni. Kaþ­ólikkum fjölgar hins vegar hratt, enda fleiri Pól­verjar á Íslandi en íbúar í Garðabæ.

Þjóðkirkjan er hluti af íslenska ríkinu.
Þjóð­kirkjan er hluti af íslenska rík­inu. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Hlutfall þeirra Íslend­inga sem skráðir eru í þjóð­kirkj­una er í fyrsta sinn komið niður fyrir 60 pró­sent. Í nýjum tölum frá Þjóðskrá kemur fram að 59,4 pró­sent lands­manna séu nú í kirkj­unni, eða 270.190 manns. Um er að ræða alla skráða ein­stak­linga, óháð búsetu og rík­is­fangi. Því eru nær öruggt að hluti þeirra sem skráðir eru í þjóð­kirkj­una búi erlendis.

Þjóðskrá segir að alls hafi 2.310 manns gengið úr þjóð­kirkj­unni frá því í byrjun des­em­ber 2017 og fram að síð­ustu mán­aða­mótum.

Sú fækkun er mjög í takti við það sem átt hefur sér stað á síð­ustu miss­erum. Undir lok síð­ustu aldar voru til að mynda um 90 pró­sent lands­manna skráðir í þjóð­kirkj­una. Á alm­an­aks­ár­inu 2017 fækk­aði til að mynda þegnum þjóð­kirkj­unnar um 3.019. Þar af sögðu 2.246 sig úr henni á síð­ustu þremur mán­uðum þess árs. að er næst­­mesti fjöldi sem hefur sagt sig úr kirkj­unni á einu ári. Metið var sett á árinu 2010, þegar ásak­­anir um þöggun þjóð­­kirkj­unnar yfir meintum kyn­­ferð­is­­glæpum Ólafs Skúla­­son­­ar, fyrr­ver­andi bisk­­ups, voru settar fram. Þá fækk­­aði um 4.242 í þjóð­­kirkj­unni á einu ári.

Ekki eins talning

Hagstofa Íslands birtir einnig tölur um skrán­ingu í trú­fé­lög. Sá munur er þó á tölum hennar ann­ars vegar og Þjóð­skrár hins vegar að tölur Hag­stof­unnar ná ein­ungis yfir ein­stak­linga sem skráðir eru með búsetu hér­lendis, á meðan að tölur Þjóð­skrár byggja á skrán­ingu í Þjóðskrá, óháð búsetu og rík­is­fangi.

Þess vegna eru t.d. 270.190 manns skráðir í þjóð­kirkj­una sam­kvæmt tölum Þjóð­skrár en 234 þús­und manns voru skráðir í hana í byrjun árs sam­kvæmt Hagstofu Íslands. Þá er það hlut­fall skráðra sem eru í þjóð­kirkj­unni lægra hjá Þjóðskrá en það er hjá Hagstofu Íslands.

Kaþólikkum fjölgar hratt með fjölgun Pólverja

Flestir þeirra sem standa utan ríkis­kirkj­unnar eru utan trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga, eða rúm­lega 28 þús­und manns. Þeim fjölg­aði um 1.974 frá 1. des­em­ber 2017. Hlut­falls­lega fjölgar mest í kaþ­ólska söfn­uð­inum, eða um 2,8 pró­sent. Alls bætt­ust 530 manns við hann. Þá aukn­ingu má rekja beint til gríð­ar­legrar aukn­ingar á fjölda erlendra rík­is­borg­ara sem flytja til Íslands frá löndum þar sem kaþ­ólska kirkjan er sterk, t.d. Póllandi.

Þann 1. jan­úar 1998 bjuggu 820 ein­stak­lingar sem fæddir voru í Pól­landi á Íslandi. Í lok árs 2017 voru þeir orðnir rúm­lega 17 þús­und og fjölg­aði um 3.234 á því ári einu saman. Það eru fleiri en búa í t.d. Garðabæ. Fjöldi þeirra sem annað hvort eru fæddir í Pól­landi eða eru pólskir rík­is­borg­arar en búa á Íslandi hefur því 21fald­ast á 20 árum.

Mest fækkun varð á meðal félags­manna í trú­fé­lag­inu Zuism, sem vakti athygli á sínum tíma fyrir að ætla að end­ur­greiða með­limum sínum sókn­ar­gjöld en síðar urðu miklar deilur um yfir­ráð í félag­inu sem end­aði með því að fyrr­ver­andi öld­unga­ráð Zúista hvatti með­limi ein­dregið til að skrá sig úr félag­inu. Alls fækk­aði zúistum um 148 í fyrra, eða um 7,2 pró­sent, og eru nú 1.900.

Stjórnarskrárbundinn rekstur

Til­veru­réttur þjóð­kirkj­unnar er tryggður í stjórn­ar­skrá lands­ins. Þar segir að hin evang­el­íska lút­­erska kirkja skuli vera þjóð­­kirkja á Íslandi og að rík­­is­­valdið eigi bæði að styðja hana og vernda. Auk þess er í gildi hið svo­­kall­aða kirkju­jarð­­ar­­sam­komu­lag frá árinu 1997, sem í felst að þjóð­­kirkjan afhenti rík­­inu um 600 jarðir til eignar en á móti átti ríkið að greiða laun 138 presta og 18 starfs­­manna Bisk­­ups­­stofu.

Í krafti þessa fær þjóð­­kirkja umtals­verða fjár­­muni úr rík­­is­­sjóði. Þaðan er til að mynda greitt fram­lag til Bisk­­ups Íslands, í Kirkju­­mála­­sjóð og Jöfn­un­­ar­­sjóð sókna. Sam­tals er áætlað að þessi upp­­hæð verði 2.830 millj­­ónir króna í ár. Til við­­bótar fær þjóð­­kirkjan greidd sókn­­ar­­gjöld í sam­ræmi við þann fjölda sem í henni er. Ætla má að sú upp­­hæð verði um 1.750 millj­­ónir króna í ár. Sam­tals mun rekstur þjóð­­kirkj­unnar því kosta tæp­­lega 4,6 millj­­arða króna í ár. Þá er ekki með­­talið rúm­­lega 1,1 millj­­arðs króna fram­lag til kirkju­­garða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár