Enginn bólusettur undir fertugu þurft gjörgæslumeðferð

Enginn full­bólu­settur ein­stak­lingur yngri en fjöru­tíu ára hefur þurft að leggj­ast inn á gjör­gæslu vegna COVID-19. Aðeins einn bólu­settur á fimm­tugs­aldri og sömu­leiðis einn á sex­tugs­aldri. Tveir bólu­settir á aldr­inum 60-69 ára hafa þurft gjör­gæslu­með­ferð.

Þrettán liggja nú á Landspítalanum vegna COVID-19.
Þrettán liggja nú á Land­spít­al­anum vegna COVID-19. Mynd: Þorkell Þorkelsson

Frá 1. júlí, um það leyti sem ný bylgja far­ald­urs­ins hófst hér á landi hefur 151 mann­eskja með COVID-19 þurft að leggj­ast inn á Land­spít­al­ann eða greinst með sjúk­dóm­inn á sjúkra­hús­inu. Nokkrar hafa þurft að leggj­ast inn oftar en einu sinni. Á föstu­dag var fjöld­inn 140 og fékk Kjarninn þá þær upp­lýs­ingar að af þeim voru 63 full­bólu­settar eða um 45 pró­sent. Átta voru bólu­settar með bólu­efni Janssen. Í hópnum eru nokkrir ferða­menn með óþekkta stöðu bólu­setn­ingar. Að með­al­tali hafa þessir sjúk­lingar þurft að vera á sjúkra­húsi í 7-8 daga.

[adspot]

Á þessu sama tíma­bili (1. júlí-29. októ­ber) þurftu 28 manns á gjör­gæslu­með­ferð að halda vegna COVID-19, nokkrir oftar en einu sinni. Átta þeirra, eða tæp­lega 29 pró­sent, voru full­bólu­settir en ekki er vitað um bólu­setn­ing­ar­stöðu fimm ferða­manna.

Aðeins einn sjúk­lingur sem fengið hefur örv­un­ar­bólu­setn­ingu, svo vitað sé, hefur þurft á inn­lögn á Land­spít­al­ann vegna COVID-19 að halda.

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir skrifar í nýjum pistli á covid.is að um 2-5 pró­sent þeirra sem sýkj­ast af COVID-19 legg­ist inn á sjúkra­hús, 0,4 pró­sent leggst inn á gjör­gæslu­deild. Hann bendir á að engin vel virk lyf eru til við sýk­ing­unni og virkni bólu­efna sé ein­ungis um 50 pró­sent gegn smiti þótt þau séu um 90 pró­sent virk til að koma í veg fyrir alvar­leg veik­indi.

Hvað sam­an­burð við svínaflens­una sem gekk yfir kárið 2009 varðar skrifar Þórólfur að þá hafi heild­ar­fjöldi gjör­gæslu­rýma á Land­spít­ala verið 20 en í dag séu þau 14.

„Af ofan­greindu má því sjá að alvar­leiki COVID-19 mældur í inn­lögnum á sjúkra­hús, er um tíu sinnum meiri en svínaflensunnar 2009 auk þess eru bólu­efni gegn COVID-19 minna virk, engin vel virk lyf eru til við COVID-19 og fjöldi gjör­gæslu­plássa er nú minni en árið 2009.

Þannig er allur sam­an­burður á COVID-19 og svínaflens­unni 2009 COVID í óhag. Baráttan við COVID-19 er marg­falt erf­ið­ari en bar­áttan var við svínaflens­una 2009.“

[adspot]

Enginn full­bólu­settur ein­stak­lingur innan við tví­tugt þurfti á sjúkra­húsinn­lögn að halda 1. júlí-29. októ­ber. Átján bólu­settir og yngri en fimm­tíu ára hafa þurft inn­lögn og fimm bólu­settir á sex­tugs­aldri hafa verið lagðir inn. Fjöldinn eykst er ofar dregur í aldri. Þannig hafa 13 bólu­settir á sjö­tugs­aldri þurft inn­lögn og sautján á átt­ræð­is­aldri. Níu mann­eskjur, átta­tíu ára og eldri, hafa verið lagðar inn á tíma­bil­inu.

Enginn full­bólu­settur ein­stak­lingur yngri en fjöru­tíu ára hefur þurft að leggj­ast inn á gjör­gæslu vegna COVID-19. Aðeins einn bólu­settur á fimm­tugs­aldri og sömu­leiðis einn á sex­tugs­aldri. Tveir bólu­settir á aldr­inum 60-69 ára hafa þurft gjör­gæslu­með­ferð og fjórir á átt­ræð­is­aldri.

Frá því júlí hafa 6.727 manns greinst með kór­ónu­veiruna inn­an­lands. Um 58 pró­sent þeirra hafa verið full­bólu­sett.

[adspot]

Síðustu daga hefur fjöldi smita í sam­fé­lag­inu auk­ist umtals­vert. Í morgun lágu þrettán sjúk­lingar á Land­spít­ala vegna COVID-19 og sex þeirra voru óbólu­settir. Tveir sjúk­lingar voru þá á gjör­gæslu og þurftu báðir stuðn­ing önd­un­ar­vélar. Með­al­aldur þeirra sem nú liggja inni er 56 ár.

Núna eru 37 börn á aldr­inum 13-17 ára með kór­ónu­veiruna og í ein­angrun en mun fleiri börn á aldr­inum 6-12 ára eru með sjúk­dóm­inn eða 148. Þessi börn eru óbólu­sett enda enn ekk­ert bólu­efnið sam­þykkt í Evrópu fyrir börn yngri en 12 ára. Sótt­varna­læknir sagði í pistli á covid.is á föstu­dag að Vís­bend­ingar væru um að bólu­setn­ing barna kunni að vera áhrifa­rík­ari en bólu­setn­ing full­orð­inna til að koma í veg fyrir smit af völdum COVID-19.

Frá því ný bylgja hófst í júlí hafa þrír lát­ist vegna COVID-19. Um helg­ina lést einn sjúk­lingur sem hafði greinst með kór­ónu­veiruna en hann var lagður inn á Land­spít­al­ann af öðrum orsökum, segir í frétt á vef Land­spít­al­ans.

Í far­aldr­inum hingað til hefur sýnt sig að um 1-2 vikur eftir að smit­hrina byrjar fari það að birt­ast í tölum um inn­lagnir á sjúkra­hús.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár