Tíu staðreyndir um Hildi Þórðardóttur

Hildur Þórðardóttir gefur kost á sér til embættis forseta Íslands.
Hildur Þórð­ar­dóttir gefur kost á sér til emb­ættis for­seta Íslands. Mynd: Hákon Davíð Björnsson

1. Hildur Þórð­ar­dóttir er fædd árið 1967 og er 48 ára gömul. Hún á tvo syni.

2. Hún er rit­höf­undur og hefur gefið út fjórar sjálfs­hjálp­ar­bækur und­an­farin ár og eina hljóð­bók. Hún er mennt­aður tísku­mark­aðs­fræð­ingur og þjóð­fræð­ingur.

3. Hildur seg­ist aldrei hafa verið tengd stjórn­mála­flokki eða verið í póli­tík. Hún er í þjóð­kirkj­unni.

4. Hún seg­ist standa fyrir friði í sam­fé­lag­inu og vill brúa bilið á milli þings og þjóðar. Hún vill taka allt það besta úr öllum stefnum svo öllum líði vel. Hildur vill að vest­ræn heil­brigð­is­vís­indi not­ist meira við aust­rænar lækn­ingar, eins og heilun eða orku­lækn­ingar með­fram alls konar öðrum lækn­ingum, eins og fram kom í NOVA spjall­inu við hana um dag­inn.

5. Hildur hélt úti bloggi um tíma, áður en hún fór í for­seta­fram­boð, þar sem hún skrif­aði meðal ann­ars að orsakir krabba­meins ætti rætur að rekja til orku­stöðv­ar­innar og meint brjóstakrabba­mein muni bara finna sér annan far­veg ef ekk­ert verði að gert. Konur fái þá bara lungna­krabba­mein í stað­inn fyrir hjarta­á­fall ef ekk­ert verði að gert. „Gena­rann­sóknir eru á villi­götum því það eru engin gen sem valda sjúk­dómum,“ skrif­aði Hildur. Á sömu síðu lýsti hún þegar hún upp­lifði 200 ára gamla ást­ar­sorg vegna maka­missis úr fyrra lífi í Englandi. Hún hefur nýlega sagt að áhugi hennar á fyrri lífum sé ein­ungis áhuga­mál.

6. Hildur á fjöl­breyttan starfs­feril að baki og hefur unnið sem skrif­stofu­stjóri á lög­manns­stofu, skrifað leik­rit, unnið hjá Lista­safni Reykja­víkur og verið sjálf­boða­liði hjá Rauða kross­inum, á kaffi­stofu Sam­hjálpar og Hug­ar­afli.

7. Hún vill setja siða­reglur fyrir for­seta­emb­ættið og verði hún for­seti ætlar hún að gera það eitt af sínum fyrstu verkum, nái hún kjöri. Hún vill koma auð­lindum í þjóð­ar­eign.

8. Í For­seta­grill­inu hjá NOVA kom einnig fram að Hildur er mik­ill dýra­vinur og elskar sér­stak­lega hunda. Hún má þó ekki hafa hund­inn sinn, Pílu, hjá sér þar sem hún býr í blokk þar sem má ekki hafa hunda.

9. Und­an­farna mán­uði hefur Hildur verið með í kring um 200 þús­und krónur á mán­uði í laun.

10. Hún talar mörg tungu­mál; íslensku, ensku, þýsku og dönsku og getur bjargað sér á spænsku og ítölsku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár