Málefni Seðlabankans færð til forsætisráðuneytis til að tryggja sjálfstæði hans

Æskilegt þykir að yfir­stjórn Seðla­banka Íslands og sam­þykkt pen­inga- og geng­is­stefnu sé í öðru ráðu­neyti en því sem fer með fjár­mál rík­is­ins. Þess vegna var mála­flokk­ur­inn færður milli ráðu­neyta.

Málefni Seðlabanka Íslands voru færð frá ráðuneyti Benedikts Jóhannessonar til ráðuneytis Bjarna Benediktssonar.
Málefni Seðla­banka Íslands voru færð frá ráðu­neyti Bene­dikts Jóhann­es­sonar til ráðu­neytis Bjarna Bene­dikts­sonar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Rökin fyrir flutn­ingi mál­efna Seðla­banka Íslands yfir til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins fel­ast í því að vegna sjálf­stæðis Seðla­bank­ans sé æski­legt að yfir­stjórn hans og sam­þykkt pen­inga- og geng­is­stefnu sé í öðru ráðu­neyti en því sem fer með fjár­mál rík­is­ins. Þetta kemur fram í svari for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið.

Ný rík­is­stjórn ákvað að færa mál­efni Seðla­bank­ans frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins þegar verka­skipt­ing milli ráðu­neyta var ákveðin. Bjarni Bene­dikts­son, sem færði sig úr fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu yfir í for­sæt­is­ráðu­neytið þegar Sjálf­stæð­is­flokkur, Viðreisn og Björt fram­tíð mynd­uðu rík­is­stjórn í jan­úar, mun því áfram fara með mál­efni Seðla­bank­ans.

Málefni Seðla­banka Íslands heyrðu undir fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið frá 2012 til 2017. Þar áður höfðu þau heyrt undir efna­hags- og við­skipta­ráðu­neyti, for­sæt­is­ráðu­neytið og við­skipta­ráðu­neytið. Í svari for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um flutn­ing­inn segir að náin tengsl séu milli fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins og Seðla­bank­ans á ýmsum sviðum. „Þar má nefna fjár­hags­leg sam­skipti Seðla­banka og rík­is­sjóðs, geng­is­mál og nú á síð­ustu árum losun fjár­magns­hafta, sam­skipti um efna­hags­mál og sam­skipti við láns­hæf­is­mats­fyr­ir­tæki og alþjóða­stofn­anir. Rökin fyrir flutn­ingi mál­efna Seðla­bank­ans yfir til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins fel­ast í því að vegna sjálf­stæðis Seðla­bank­ans sé æski­legt að yfir­stjórn hans og sam­þykkt pen­inga- og geng­is­stefnu sé í öðru ráðu­neyti en því sem fer með fjár­mál rík­is­ins.“

Engar breytingar fyrirhugaðar á stjórnskipulaginu

Már Guð­munds­son, núver­andi seðla­banka­stjóri, hefur gengt starf­inu frá því að hann var skip­aður 20. ágúst 2009. Þá var Már skip­aður til fimm ára og sum­arið 2014 var starfið aug­lýst til umsóknar. Alls sóttu tíu um starfið en Már var á end­anum end­ur­skip­aður.

Nokkrum mán­uðum áður en Már var end­ur­ráð­inn hafði Bjarni Bene­dikts­son skipað starfs­hóp sem ætlað var að gera til­lögur að breyt­ingum á stjórn­skipu­lagi Seðla­bank­ans.

Hópurinn skil­aði til­lögum í mars 2015 og lagði þar til að seðla­banka­stjórum yrði fjölgað úr einum í þrjá. Einn yrði seðla­banka­stjóri en með honum myndu starfa banka­stjóri pen­inga­mála og banka­stjóri fjár­mála­stöð­ug­leika.

Frétta­blaðið greindi frá því 18. jan­úar síð­ast­lið­inn að allar til­lögur um breyt­ingar á Seðla­bank­anum væru enn á ís. Þar var haft eftir Svan­hildi Hólm Vals­dóttur, aðstoð­ar­manni for­sæt­is­ráð­herra, að henni væri ekki kunn­ugt um að stjórn­skipu­lag bank­ans hafi verið rætt sér­stak­lega í við­ræðum Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar.

Í svari for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans er þessi skiln­ingur stað­festir. Þar segir að engar breyt­ingar á stjórn­skipu­lagi Seðla­bank­ans hafi verið ræddar eða ákveðnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár