Smitsprengja á Akranesi – skólar lokaðir á morgun

Fimmtíu manns greindust með COVID-19 á Akranesi í gær og 144 greindust sam­tals á land­inu öllu. Fimm eru á gjör­gæslu­deildum á Akureyri og á Land­spít­al­anum með sjúk­dóm­inn.

Vel yfir hundrað smit greindust í gær samkvæmt upplýsingum Kjarnans.
Vel yfir hund­rað smit greindust í gær sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans. Mynd: EPA

Vel á annað hund­rað smit greindust inn­an­lands í gær, eða alls 144 sam­kvæmt tölum á vefnum Covid.is. Tala má um spreng­ingu í smitum á Akranesi, þar greindust 50 smit­aðir í gær og hefur bæj­ar­ráð Akraness ákveðið að fella niður alla starf­semi í skólum, tón­list­ar­skóla og frí­stunda­starfi bæj­ar­ins á morgun, segir í frétt Skaga­frétta um málið.

Fimm eru á gjör­gæslu með sjúk­dóm­inn, fjórir á Land­spít­ala og einn á Akureyri. Þrír þess­ara sjúk­linga eru í önd­un­ar­vél og einn í hjarta- og lungna­vél. Meiri­hluti þeirra sem liggur á gjör­gæslu Land­spít­al­ans nú er bólu­settur. Yngsti sjúk­ling­ur­inn er á fer­tugs­aldri og sá elsti um sex­tugt.

Tólf COVID-sjúk­lingar liggja á smit­sjúk­dóma­deild Land­spít­al­ans og er um helm­ingur þeirra óbólu­settur.

Samkvæmt því sem Kjarninn kemst næst greindust um 130 full­orðnir með veiruna í sýna­tökum gær­dags­ins, aðal­lega ungt fólk og að auki um tutt­ugu börn. Eitt barn liggur á Land­spít­al­anum með COVID-19.

Síðustu daga hefur smit­fjöldi auk­ist hratt hér á landi. Í fyrra­dag greind­ist 91 inn­an­lands. Frá 1. októ­ber og þar til í fyrra­dag höfðu 1.932 greinst með veiruna. .

Fréttin hefur verið upp­færð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár