Útflutningur þjónustu stórjókst í desember

Þrátt fyrir hrun í stærstu útflutn­ings­greinnni flytjum við enn meira út af þjón­ustu en við kaupum frá öðrum löndum. Þjón­ustu­af­gang­ur­inn var mik­ill á síð­asta árs­fjórð­ungi, sér í lagi vegna mik­ils útflutn­ings í des­em­ber.

Þjónustuútflutningur jókst hratt í desember, þrátt fyrir að ferðaþjónustan hafi enn verið í lamasessi.
Þjón­ustu­út­flutn­ingur jókst hratt í des­em­ber, þrátt fyrir að ferða­þjón­ustan hafi enn verið í lama­sessi. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Útflutn­ingur þjón­ustu var 26,4 millj­örðum krónum meiri en inn­flutn­ingur hennar hér á landi á síð­asta árs­fjórð­ungi, sam­kvæmt nýlegum tölum Hagstofu um þjón­ustu­jöfnuð. Nær allur afgang­ur­inn er til­kom­inn vegna við­skipta í des­em­ber, en í þeim mán­uði jókst útflutn­ingur þjón­ustu um rúm­lega helm­ing miðað við mán­uð­inn á undan.

Afgangur vegna viðsnúnings í desember

Samkvæmt nýjum hag­tölum Seðla­banka Íslands var 22,1 millj­arða króna afgangur á við­skipti við útlönd á síð­asta árs­fjórð­ungi 2020. Stærstan hluta þessa við­skipta­af­gangs má rekja til mik­ils afgangs á þjón­ustu­við­skiptum við útlönd, en hann nam 26 millj­örðum króna á tíma­bil­inu.

Þessum mikla afgangi var þó ekki dreift jafnt milli mán­aða,sam­kvæmt tölum Hagstofu um inn- og útflutn­ing þjón­ustu. Þar sést að virði þjón­ustu­út­flutn­ings var nokkuð lítið á haust­mán­uðum síð­asta árs, en rúm­lega tvö­fald­að­ist svo í des­em­ber og náði rúmum 50 millj­örðum króna. Aukning þjón­ustu­inn­flutn­ings á sama tíma var mun minni og því stórjókst þjón­ustu­af­gang­ur­inn við útlönd í des­em­ber.

Af þeim 26,4 millj­arða króna þjón­ustu­af­gangi á síð­asta árs­fjórð­ungi komu 24,4 millj­arðar frá við­skiptum í des­em­ber, eða . í októ­ber var afgang­ur­inn aðeins þrír millj­arðar og raunar var halli á þjón­ustu­við­skiptum í nóv­em­ber, í fyrsta skiptið í að minnsta kosti tvö ár.

Fallið hefur stórminnkað

Þjón­ustu­út­flutn­ingur tók mikla dýfu um leið og sótt­varn­ar­að­gerðir voru fyrst hertar með komu heims­far­ald­urs­ins í fyrra­vor. Ef miðað er við útflutn­ings­tölur á sama mán­uði árið á undan féllu útflutn­ings­tekjur vegna þjón­ustu um 38 pró­sent í mars, en fallið nam 58 pró­sentum í apríl og 63 pró­sentum í maí árið 2020. Líklegt er að þessi minnkun sé að miklu leyti vegna hruns í komu erlendra ferða­manna til lands­ins.

Líkt og sést á mynd hér að ofan var rúm­lega helm­ings­fall í þjón­ustu­út­flutn­ingi frá apríl til nóv­em­ber. Í des­em­ber mátti hins vegar greina mik­inn við­snún­ing, þar sem útflutn­ings­tekj­urnar juk­ust úr 24 millj­örðum króna í 52 millj­arða króna mán­uð­inn á undan. Þá var útflutn­ing­ur­inn “ein­ungis” 23 pró­sentum minni heldur en í sama mán­uði árið 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár