Þrjú morð á klukkkustund: Eiturlyfjastríðið í Mexíkó verður blóðugra

Fleiri og smærri glæpa­gengi, aukin eft­ir­spurn eftir ópíum og rík­is­stjóra­breyt­ingar skýra meðal ann­ars þriðj­ungs aukn­ingu í fjölda morða í Mexíkó. Oddur Stef­áns­son fjallar um eit­ur­lyfja­stríðið.

Morðtíðni hefur aukist mikið í Mexíkó undanfarin misseri vegna innbyrðis átaka glæpagengja. Hér sjást íbúar smábæjar í landinu hylja andlit sín og undirbúa sig undir komu glæpagengis.
Morð­tíðni hefur auk­ist mikið í Mexíkó und­an­farin miss­eri vegna inn­byrðis átaka glæpa­gengja. Hér sjást íbúar smá­bæjar í land­inu hylja and­lit sín og und­ir­búa sig undir komu glæpa­gengis. Mynd: EPA

Á fyrstu fimm mán­uðum árs­ins áttu sér stað rúm­lega ell­efu þús­und morð í Mexíkó eða um eitt morð hverjar tutt­ugu mín­útur og nemur aukn­ingin um 31% miðað við sama tíma­bil í fyrra. Ástæður þró­un­ar­innar eru margar en fleiri og smærri glæpa­gengi, aukin eft­ir­spurn eftir ópíumi og rík­is­stjóra­breyt­ingar á síð­asta ári hafa skipt sköpum.

Inn­byrðis bar­átta á milli glæpa­sam­taka vegna eit­ur­lyfja­smygls hefur verið til staðar í Mexíkó í ára­tugi en þó versnað til muna eftir þús­ald­ar­mótin bæði vegna gríð­ar­legrar eft­ir­spurnar eftir eit­ur­lyfjum í grann­ríki Mexíkó til norð­urs, Banda­ríkj­unum, og aðgerðir stjórn­valda til að berj­ast gegn starf­sem­inni.

Morð­tíðnin sem afleið­ing af „eit­ur­lyfja­stríð­inu“ svo­kall­aða náði hámarki í for­seta­tíð Felipe Calderón (2006-2012) en harð­línu­stefna hans gegn skipu­lagðri glæp­a­starf­semi gerði það að verkum að átökin stig­mögn­uð­ust; Meira 164 þús­und morð (þó tengj­ast ekki öll endi­lega eit­ur­lyfja­stríð­inu) áttu sér stað í Mexíkó á milli 2007 og 2014. Til sam­an­burðar var tala lát­inna í stríð­unum í Írak og Afghanistan sam­an­lagt um 103 þús­und á sama tíma­bili.

Núver­andi for­seti Mexíkó, Enrique Peña Nieto, vann sigur í kosn­ing­unum árið 2012 með því að ein­blína ekki á eit­ur­lyfja­stríðið heldur með því að leggja áherslu á atriði á borð við mennt­unar-, orku-, og sam­skipta­mál. Peña Nieto vildi breyta orð­ræð­unni í kringum eit­ur­lyfja­stríðið en minnk­andi afskipti rík­is­stjórnar hans í sam­an­burði við Calderón leiddu til lækk­andi morð­tíðni á fyrstu tveim árum stjórn­ar­tíðar hans. Síðan 2015 hefur morð­tíðnin hins vegar farið vax­andi á nýjan leik og benda sumar spár til þess að 2017 verði blóð­ug­asta árið til þessa.

[adspot]

El Chapo, ópíóíðar og Pax Mafiosa

Ástæð­urnar fyrir aukn­ing­unni eru margar. Ópíum­fram­leiðsla í Mexíkó hefur auk­ist í sam­hengi við aukna eft­ir­spurn í Banda­ríkj­unum eftir ópíóíðum og þar að auki hefur metam­fetamín­fram­leiðsla fyrir Banda­ríkja­markað færst nán­ast að öllu leyti til Mexíkó. Stórir mark­aðir og aukin sam­keppni á milli glæpa­sam­taka hefur stuðlað að hækk­andi morð­tíðni.

Sú þróun hefur átt sér stað á sama tíma og breyt­ing hefur orðið á fjölda og stærð glæpa­sam­taka í Mexíkó sem afleið­ing af aðferðum stjórn­valda í eit­ur­lyfja­stríð­inu. Mikil áhersla hefur verið lögð á að hand­sama höf­uð­paura glæpa­sam­tak­anna og hefur það leitt til að stærri glæpa­sam­tök skipt­ist upp í minni ein­ingar. Þegar hinn alræmdi Joaquín „El Chapo“ Guzmán var hand­tek­inn á ný í fyrra leiddi það til bar­áttu inn­byrðis í hinum gríð­ar­stóru Sinaloa-glæpa­sam­tökum. Þegar glæpa­sam­tökin skipt­ast niður í fjöl­mörg gengi hefur þró­unin verið sú að hvert gengi hefur ekki haft mann­afl­ann eða get­una til að sinna öllum þáttum virð­is­keðju eit­ur­lyfja­smygls­ins og ein­blína frekar á afmörkuð svæði. Sam­keppnin milli þeirra hefur ekki ein­ungis leitt til aukn­ingu í morð­tíðni lands­ins heldur hefur vett­vangur ofbeld­is­ins færst frá landamæra­hér­uðum lands­ins í norðri til hér­aða í suð­ur­hluta lands­ins.

Þá er talið að rík­is­stjóra­kosn­ingar sem fram fóru í land­inu í fyrra hafi raskað tengslum á milli meintra spilltra rík­is­stjóra og glæpa­sam­taka. Fjöl­margir rík­is­stjórar úr stjórn­ar­flokki Peña Nieto (sem heitir því þver­sagna­kennda nafni Partido Revolucionario Institucional (PRI), eða „stofn­ana­væddi bylt­ing­ar­flokk­ur­inn“) misstu sæti sín eftir að kjós­endur létu í ljós óánægju sína með spillta stjórn­ar­hætti þeirra í kjör­klef­anum. Þessi breyt­ing gæti hafa ollið því að leyni­leg sam­bönd stjórn­mála­manna við glæpa­sam­tök, Pax Mafiosa svo­kallað, sem höfðu hemil á beit­ingu ofbeldis, flosn­uðu upp.

Illt er öðrum ólán sitt að kenna

Aukin morð­tíðni síð­ustu ára hefur leitt til þess að stefna Peña Nieto, sem tók mið af því að vanda­mál Mexíkó væru ekki kerf­is­bundin heldur að orð­ræðan í kringum ofbeldi þyrfti að breyt­ast, er talin hafa mis­tek­ist. Ólíklegt er að miklar breyt­ingar verði á stefnu stjórn­valda í eit­ur­lyfja­stríð­inu á næst­unni; Peña Nieto á ein­ungis átján mán­uði eftir í for­seta­stól og hefur rík­is­stjórnin ekki náð að tefla fram skil­virkum val­kosti við harð­línu­stefnu Calderón enda er hún ásökuð um spill­ingu og ofsóknir gegn and­stæð­ingum í frjálsum félaga­sam­tökum. Þá hefur rík­is­stjórn Peña Nieto lagt áherslu á að rót ofbeld­is­vanda Mexíkó sé að miklu leyti hin gríð­ar­lega eft­ir­spurn eftir eit­ur­lyfjum í Banda­ríkj­unum.

Mark­að­ur­inn fyrir smygl­uðum eit­ur­lyfjum í Banda­ríkj­unum er met­inn á um 64 millj­arða Banda­ríkja­dala á ári en hinar gríð­ar­legu tekjur sem glæpa­sam­tök hafa af starf­sem­inni fara bæði til vopna­kaupa og til að við­halda víð­feðmu spill­ing­ar­neti í Banda­ríkj­unum, Mexíkó og gjör­vallri Mið-Ameríku. Um 70% þeirra skot­vopna sem voru gerð upp­tæk í Mexíkó á árunum 2009 til 2014 voru rekin til Banda­ríkj­anna. Straumur pen­inga og vopna frá norðri til suð­urs er að minnsta kosti jafn stór hluti af vanda­mál­inu og straumur með­lima glæpa­sam­taka til Banda­ríkj­anna, eða „bad hombres“ eins og Donald Trump Banda­ríkja­for­seti kallar þá.

Á dög­unum tísti Trump um að Mexíkó væri næst hættu­leg­asta átaka­svæði heims á eftir Sýrlandi og vitn­aði þannig óbeint í könnun sem fram­kvæmd var af rann­sókn­ar­setr­inu International Institute for Strategic Studies (IISS). Trump end­aði tístið eins og honum einum er lagið með „_We will BUILD THE WALL!_“ en stefna hans sem miðar að bygg­ingu múrs með­fram landa­mærum Mexíkó og brott­vísun þús­unda ólög­legra inn­flytj­enda virð­ist setja í for­gang að gera Mexíkó að blóra­böggli eit­ur­lyfja­smygls og ofbeldi tengt því frekar en að reyna að takast á við rót vand­ans. Hegðun stjórn­valda bæði í Mexíkó og Banda­ríkj­anam gefa því litla von um að hinu gríð­ar­lega ofbeldi sem fylgir eit­ur­lyfja­smygli muni linna á næstu miss­erum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár