Karl Wernersson skýtur lyfjakeðju undan...aftur

Lyf og heilsa er nú skráð í eigu rétt rúm­lega tví­tugs sonar Karls Wernerssonar. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem faðir hans færir lyfja­keðj­una milli eig­enda með hætti sem orkað hefur tví­mælis. Það gerði hann líka í kringum hrunið.

Karl Wernerson
Karl Wernerson Mynd: Tryggvi Aðalbjörnsson

Í vik­unni var greint frá því að Karl Wernersson hefði fært lyfja­fyr­ir­tækið Lyf og Heilsu yfir rúm­lega tví­tugan son sinn dag­inn eftir að Karl var dæmdur í þriggja og hálfs árs fang­els­is­dóm í Hæsta­rétti og tveir dómar féllu í einka­málum gegn honum. Engar upp­lýs­ingar hafa feng­ist um hvað var greitt fyrir Lyf og heilsu.

Karl, bróðir hans Stein­grímur og Guð­mundur Ólason, fyrr­ver­andi for­stjóri Milestone, skulda þrota­búi þess félags um tíu millj­arða króna. Sú skuld er gjald­fall­inn og í inn­heimtu. Ef Karl reyn­ist ekki borg­un­ar­maður þá verður hann að öllum lík­indum lýstur gjald­þrota og skip­aður skipta­stjóri yfir honum. Við­mæl­endur Kjarnans innan lög­fræð­i­stétt­ar­innar segja ein­boðið að sá muni reyna að rifta söl­unni á Lyfjum og heilsu ef í ljós komi að ekki hafi verið greitt sann­virði fyrir fyr­ir­tækið. Reynist salan á Lyfjum og heilsu hafa verið gjafagjörn­ingur gæti það einnig verið refsi­vert.

Samkvæmt efna­hags­reikn­ingi Lyfja og heilsu voru eignir fyr­ir­tæk­is­ins 3,5 millj­arðar króna í árs­lok 2015 og lang­tíma­skuldir um 1,2 millj­arðar króna.

[links]

En þetta er ekki fyrsti snún­ing­ur­inn sem Karl hefur tekið með Lyf og heilsu á und­an­förnum árum. Þvert á móti.

Færðu Lyf og heilsu til félags í sinni eigu

Karl og bróðir hans Stein­grímur voru aðal­eig­endur fjár­fest­inga­fé­lags­ins Milestone á upp­gangs­ár­unum fyrir banka­hrun. Félagið fór mik­inn í fjár­fest­ingum. Þegar mestur völlur var á Milestone voru eignir þess sagðar vera 392 millj­arðar króna og eigið féð um 66 millj­arðar króna. Þar mun­aði mest um stóran hlut í Glitni banka, allt hlutafé í Sjóvá, Moderna í Svíþjóð, bank­inn Askar Capital og Lyf og heilsa.

Mikið loft reynd­ist hins vegar vera í Milestone og félagið var tekið til gjald­þrota­skipta árið 2009. Lýstar kröfur í búið voru allt að 95 millj­arðar króna en lítið sem ekk­ert var til upp í þær af eignum. Þess vegna réðst þrotabú Milestone í fjöl­mörg mál vegna ákvarð­ana sem teknar voru áður en Milestone var sett í þrot.

[adspot]

Eitt þeirra mála var vegna „sölu“ á Lyfjum og heilsu. Þann 31. mars 2008 keypti nefni­lega Aurláki ehf., félag í eigu Karls og Stein­gríms, 99,9 pró­senta eign­ar­hlut í Lyf og Heilsu á um 3,4 millj­arða króna. Selj­and­inn var L&H eign­ar­halds­fé­lag, sem aftur var í 100 pró­sent eigu Milestone.

Kaup­and­inn, Aurláki ehf., var stofn­aður snemma árs 2008 og hét þá GÓ1 ehf. Þann 24 októ­ber 2008, nokkrum dögum eftir fall íslensku við­skipta­bank­anna, barst Fyr­ir­tækja­skrá til­kynn­ing um að á aðal­fundi félags­ins þann 31. mars 2008 hefði nafni félags­ins verið breytt í Aurláka og þeir Karl og Stein­grímur sest í stjórn þess. Í þeirri til­kynn­ingu kemur auk þess fram að Aurláki hefði keypt allt hlutafé í Lyf og Heilsu ehf.

Greitt var fyrir með yfir­töku skulda upp á 2,5 millj­arða króna og 970 millj­óna króna selj­enda­láni sem átti að greið­ast við fyrsta hent­ug­leika. Guð­mundur Ólason, fyrr­ver­andi for­stjóri Milestone, sagði við Morg­un­blaðið árið 2009 að lánið hafi verið gert upp fljót­lega eftir að við­skiptin hefðu átt sér stað. Stuðst hafi verið við verð­mat KPMG þegar kaup­verðið á Lyf og Heilsu var ákveðið.

Dæmdir til að greiða Milestone um milljarð

Selj­enda­lánið var hins vegar aldrei greitt með hefð­bundnum hætti. Þvert á móti. „Greiðsla“ þess fór þannig fram að gerður var kaup­samn­ingur milli Milestone og félags sem hét Leiftri Ltd., og var einnig í eigu bræðr­anna Kars og Stein­gríms og skráð á Tortóla. Samkvæmt honum keypti Leiftri við­skipta­kröfu Milestone á hendur Aurláka. Kaup­verðið var greitt með nið­ur­fell­ingu á við­skipta­kröf­unni sem Leiftri átti á hendur Milestone. Vert er að minna á að öll félögin þrjú voru á ein­hverjum tíma­punkti í eigu sömu aðila, Karls og Stein­gríms.

Skipta­stjóri Milestone vildi ekki una þessu og rifti gjöf Milestone á 970 millj­ónum króna og krafð­ist greiðslu þeirra, enda hafi Lyf og heilsa verið færð út úr Milestone til félags bræðr­anna án þess að nokkur greiðsla hafi komið í stað­inn. Fyrir dómi hélt Karl Wernersson því fram að „þeir gern­ingar sem um ræðir hafi verið fylli­lega lög­mætir og fram­kvæmdir í eðli­legum við­skipta­legum til­gangi. Allar ákvarð­anir hans hafi því verið teknar á við­skipta­legum for­sendum en ekki með ann­ar­lega hags­muni í huga“.

Hér­aðs­dómur Reyka­víkur var ósam­mála og í sept­em­ber 2016 var Aurláka gert að greiða Milestone 970 millj­ónir króna auk drátt­ar­vaxta.

Skulda Milestone tíu milljarða

Þegar hér var komið við sögu sátu þeir Karl og Stein­grímur, og Guð­mundur Ólason, reyndar í fang­elsi. Þeir höfðu verið dæmdir fyrir að nota 4,8 millj­arða króna af pen­ingum Milestone til að borga systur sína, Ingunni, út úr Milestone á árunum 2006 og 2007. Hæsti­réttur komst að þeirri nið­ur­stöðu að gern­ing­ur­inn hefði verið umboðs­svik. Karl hlaut þriggja og hálfs árs dóm, Guð­mundur þriggja ára dóm og Stein­grímur tvö og hálft ár. Þá hlutu Mar­grét Guð­jóns­dóttir og Sig­ur­þór C. Guð­munds­son, end­ur­skoð­endur hjá KPMG, bæði níu mán­aða skil­orðs­bund­inn dóm.

Á grund­velli þessa dæmdi Hér­aðs­dómur Reykja­víkur Karl, Stein­grím og Guðmund til að greiða þrota­búi Milestone 5,2 millj­arða króna auk drátt­ar­vaxta með dómi sem féll 8. mars síð­ast­lið­inn. RÚV greindi frá því í síð­ustu viku að menn­irnir þrír skuldi þrota­bú­inu um tíu millj­arða króna alls að með­töldum vöxtum, að sú skuld sé gjald­fallin og sé í inn­heimtu­ferli. Komi í ljós að menn­irnir eigi ekki eignir til að greiða skuld­ina sé við­búið að þeir verði úrskurð­aðir gjald­þrota. Það gæti þó frest­ast ef þeir ákveða að áfrýja nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms til Hæsta­réttar. Frestur til þess rennur út snemma í næsta mán­uði.

Rúmlega tvítugur sonur eignast lyfjakeðju

Aurláki, sem „keypti“ Lyf og heilsu í kringum hrunið, er nú í 100 pró­sent eigu Karls Wernerssonar. En Lyf og heilsa er ekki lengur í eigu Aurláka.

RÚV greindi frá því í lið­inni viku að rúm­lega tví­tugur sonur Karls hefði eign­ast fyr­ir­tækið og aðrar eignir móð­ur­fé­lags þess. Þetta gerð­ist sama dag og Karl var dæmdur til fang­els­is­vistar í Hæsta­rétti í fyrra.

Dag­inn eftir að sá dóm­ur féll var nýjum og leið­réttum árs­reikn­ingi fyrir móð­ur­fé­lag Lyfja og heilsu skilað til árs­reikn­inga­skrár. Félagið heitir Faxar ehf., en það er í eigu ann­ars félag sem heitir Faxi ehf. Faxi ehf. er svo í eigu félags­ins Toska ehf. Það félag, þ.e. Toska, var eini sinni í eigu Karl Wernerssonar og komst í fréttir árið 2012 þegar það nýtti sér fjár­fest­inga­leið Seðla­banka Íslands til að flytja hund­ruð millj­óna króna erlendis frá hingað til lands. Með þessu fékk Karl greiða leið inn í landið fyrir pen­inga sem komið hafði verið fyrir utan land­stein­anna og um 20 pró­sent virð­is­aukn­ingu fyrir að skipta evrum í krónur.

Karl hafði verið skráður eig­andi Toska þegar árs­reikn­ingi fyrir árið 2014 var skilað inn í nóv­em­ber 2015. Í apríl 2016 var leið­réttum árs­reikn­ingi skilað inn, og þar kom fram að í árs­lok 2014 hefði sonur Karls, Jón Hilm­ar, verið 100 pró­sent eig­and­i.

Inni í félag­inu eru yfir þrjá­tíu fast­eign­ir, þar á meðal heim­ili Karls, og bíl­ar. Ekki mun reyna á riftun á sölu Lyfja og heilsu frá Karli til sonar síns nema að Karl verði sjálfur lýstur gjald­þrota. Það mun ger­ast ef hann getur ekki greitt millj­arða­skuld­ina við Milestone og þá mun það koma í hlut skipta­stjóra sem skip­aður verður yfir þrotabú Karls að ákveða hvort að söl­unni á lyfja­keðj­unni verði rift eða ekki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár