Óska eftir tillögum til aðgerða í loftslagsmálum

Verk­efna­stjórn um aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum leitar til almenn­ings um til­lögur til aðgerða.

Loftslagsprófíll Íslands er frábrugðin öðrum löndum vegna þess hversu lítið útstreymi er frá vegna orkuframleiðslu. Björt Ólafsdóttir er umhverfisráðherra.
Lofts­lags­prófíll Íslands er frá­brugðin öðrum löndum vegna þess hversu lítið útstreymi er frá vegna orku­fram­leiðslu. Björt Ólafs­dóttir er umhverf­is­ráð­herra. Mynd: Samsett mynd

Umhverfis- og auð­linda­ráðu­neytið hvetur almenn­ing til þess að senda inn hug­myndir og til­lögur að aðgerðum í lofts­lags­málum. Frá þessu er greint á vef Stjórn­ar­ráðs­ins.

Nú er unnið að nýrri aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum sem á að liggja fyrir í lok þessa árs. Sú aðgerð­ar­á­ætlun sem er í gildi var unnin árið 2009 og tók gildi árið 2010.

[links]Nýja aðgerða­á­ætl­unin á að fjalla um þær leiðir sem Ísland getur farið til þess að standa við skuld­bind­ingar sínar gagn­vart Par­ís­ar­samn­ingnum í lofts­lags­málum.

Markmið Íslands, sem íslensk stjórn­völd sendu inn til lofts­lags­stofn­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna í aðdrag­anda Par­ís­ar­fund­ar­ins 2015, er að minnka losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda um 40 pró­sent árið 2030 miðað við losun árs­ins 1990.

Í skýrslu Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands sem kynnt var síð­ast­lið­inn vetur kemur fram að Ísland er fjarri því að ná þessum mark­miðum. Þvert á móti hefur útstreymi gróð­ur­húsa­loft­teg­unda auk­ist á árunum síðan 1990.

Áður en mark­mið Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins taka við þá gilda skuld­bind­ingar sem Ísland hefur geng­ist undir á seinna skuld­bind­ing­ar­tíma­bili Kýótó-bók­un­ar­innr svoköll­uðu. Ísland þarf að draga úr losun um 20 pró­sent til árs­ins 2020. Ljóst er að þau mark­mið muni ekki takast.

[adspot]

Óska eftir tillögum til aðgerða

Umhverf­is­ráðu­neytið óskar nú eftir hug­myndum frá almenn­ingi um aðgerðir sem ráð­ast má í svo að lofts­lags­mark­miðin náist. Senda má til­lög­urnar á veffangið loftslag@uar.is.

Til­lög­urnar verða birtar jafn óðum á vef­svæð­inu co2.is, þar sem einnig verður hægt að finna ýmsar upp­lýs­ingar sem tengj­ast vinn­unni við aðgerða­á­ætl­un­ina.

Verk­efna­stjórn aðgerða­á­ætl­un­ar­innar var skipuð af sex ráð­herrum í rík­is­stjórn Íslands í vor, eftir að þeir skrif­uðu undir vilja­yf­ir­lýs­ingu um gerð áætl­un­ar­innar. Þetta er í fyrsta sinn sem aðgerða­á­ætlun á borð við þessa er unnin þvert á ráðu­neyti. Það er auð­vitað gert vegna þess að lofts­lags­mál eru ekki aðeins umhverf­is­mál, heldur einnig mik­il­vægt efna­hags­legt mál­efni sem og félags­legt.

Miklu munar um stóriðju

Þegar rýnt er í lofts­lags­prófíl Íslands sést að mestu munar um stór­iðju hér á landi. Um 45 pró­sent allrar los­unar, sé land­notkun (LULUCF) und­an­skilin, má rekja til iðn­að­ar­fram­leiðslu. Það er ein­kenni á losun frá Íslandi að eitt verk­efni getur haft mikil áhrif á heild­ar­losun á árs­grund­velli.

Ástæða þessa er smæð íslenska hag­kerf­is­ins. Eitt meng­andi álver til við­bótar í kerfið getur aukið heild­ar­losun frá Íslandi um meira en 15 pró­sent, að því er kemur fram í los­un­ar­bók­haldi Umhverf­is­stofn­un­ar.

Í skýrslu Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands sem kynnt var í vetur segir að ábata­mestu aðgerð­irnar fel­ast í orku­skiptum í sam­göngum. Mestu mundi muna um raf­bíla­væð­ingu íslenska bíla­flot­ans.

Los­un­ar­bók­hald Íslands er frá­brugðið bók­höldum að því leyti að hér er ekki mik­ill útblástur frá orku­fram­leiðslu. Ísland hefur „for­skot“ í þeim efnum, ef svo má að orði kom­ast. Nærri því 80 pró­sent útstreymis frá því sem heitir orku­geiri (e. Energy sect­or) í alþjóð­legum sam­an­burði er þess vegna frá sam­göng­um. Þar ber helst að nefna bíla­um­ferð og fiski­skipa­flot­ann sem gengur meira og minna fyrir jarð­efna­elds­neyti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár