Umfjöllun Kjarnans um Skæruliðadeild Samherja tilnefnd til blaðamannaverðlauna BÍ

Blaða­manna­verð­launa­nefnd Blaða­manna­fé­lags Íslands hefur birt til­nefn­ingar sínar vegna síð­asta árs. Blaða­menn Kjarnans eru á meðal til­nefndra fyrir umfjöllun sem þeir sæta nú lög­reglu­rann­sókn vegna.

Frétta­skýr­inga­röð Kjarnans um óeðli­lega hags­muna­gæslu svo­kall­aðrar Skæru­liða­deildar Samherja hefur verið til­nefnd til Blaða­manna­verð­launa Íslands (BÍ) í flokki rann­sókn­ar­blaða­mennsku. Umfjöll­unin var unnin af Arnari Þór Ing­ólfs­syni og Þórði Snæ Júl­í­us­syni. Í rök­stuðn­ingi dóm­nefndar fyrir til­nefn­ing­unni segir að frétta­skýr­ingar Kjarnans hafi sýnt „hvernig full­trúar þessa stór­fyr­ir­tækis reyndu til að mynda að hafa áhrif á for­manns­kjör í stétt­ar­fé­lagi blaða­manna og kjör á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í heima­kjör­dæmi fyr­ir­tæk­is­ins. Frétta­skýr­ing­arnar gáfu greina­góða mynd af óvönd­uðum með­ölum fjár­sterks fyr­ir­tækis í hags­muna­bar­áttu þess.“

[links]Verð­launin verða veitt næst­kom­andi föstu­dag, 1. apríl. Þau eru veitt í fjórum flokkum en þeir eru: Besta umfjöllun árs­ins 2021, Viðtal árs­ins 2021, Rann­sókn­ar­blaða­mennska árs­ins 2021 og Blaða­manna­verð­laun árs­ins 2021.

Kjarninn, sem var stofn­aður 2013, hefur hlotið til­nefn­ingu til Blaða­manna­verð­launa á hverju ári sem hann hefur starfað. Alls hafa blaða­menn hans hlotið verð­launin þrí­vegis á því tíma­bili, síð­ast í fyrra fyrir umfangs­mikla umfjöllun um brun­ann á Bræðra­borg­ar­stíg.

Aðal­steinn Kjart­ans­son, blaða­maður á Stund­inni sem fjall­aði einnig um sömu mál, er til­nefndur til Blaða­manna­verð­launa BÍ. Í rök­stuðn­ingi fyrir þeirri til­nefn­ingu segir að hún sé vegna vand­aðra og afhjúp­andi umfjöll­unar „um fjölda mála, svo sem grein­ingu á eignum og eigna­tengslum íslenskra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja sem dráttur var á hjá ráðu­neyti mála­flokks­ins, rann­sókn lög­reglu­yf­ir­valda á Samherja, og um svo­kall­aða skæru­liða­deild Samherja, auk aflandsleka í svo­nefndum Pand­óru­skjölum. Skrif Aðal­steins hafa haft áhrif á sam­fé­lagið og almenna sam­fé­lags­um­ræðu.“

[adspot]Lög­reglan á Norð­ur­landi eystra hefur gefið öllum ofan­greindum blaða­mönnum stöðu sak­born­ings í rann­sókn á nýt­ingu gagna sem mynd­uðu grunn­inn að umfjöllun um Skæru­liða­deild Samherja og vill yfir­heyra þá vegna rann­sókn­ar­innar. Aðal­steinn hefur látið reyna á lög­mæti þeirra aðgerða og bíður nú þess að Hæsti­réttur taki ákvörðun um hvort hann muni taka málið fyrir.

Til­nefn­ingar dóm­nefndar til blaða­manna­verð­launa, og rök­stuðn­ingur fyrir til­nefn­ingum, eru eft­ir­far­andi:

Viðtal ársins

Ásdís Ásgeirs­dóttir, Morg­un­blað­inu. Fyrir við­tal við Óla Björn Pét­urs­son. Hann greinir þar frá grófu kyn­ferð­is­of­beldi sem hann varð fyrir á ung­lings­aldri. Frá­sögnin er slá­andi en afar upp­lýsandi og sækir á les­and­ann sem fær raunsanna lýs­ingu á því hvernig ung­lingur er ginntur af barn­a­níð­ingi. Honum var haldið með hót­unum og ofbeldi en tekst svo að losa sig og end­ur­heimta líf sitt.

Björk Eiðs­dóttir, Frétta­blað­inu. Fyrir við­tal við Sigríði Gísla­dóttur sem lýsir barn­æsku sinni hjá móður með geð­sjúk­dóm. Björk fangar í áhrifa­ríku, per­sónu­legu og vel upp­byggðu við­tali hvernig dóttirin telur kerfið hafa brugð­ist henni. Þá lýsir hún því hvernig reynsla hennar leiddi til þess að hún lætur til sín taka í bar­áttu fyrir börn sem búa með for­eldrum með geð­rænan vanda.

Ingi Freyr Vil­hjálms­son, Stund­inni. Fyrir við­tal við Ásgeir Jónsson Seðla­banka­stjóra. Ingi Freyr veitir í við­tal­inu ein­staka og upp­lýsandi inn­sýn í hug­ar­heim eins áhrifa­mesta emb­ætt­is­manns lands­ins. Við­mæl­and­inn tjáir sig opin­skátt um skoð­anir sínar á sam­fé­lag­inu, dóms­mál á hendur bank­anum og hvernig hann beiti sér í starfi til þess að fjár­mála­kerfið þró­ist í þær áttir sem hann telur þurfa.

Rannsóknarblaðamennska ársins

Birgir Olgeirs­son, Nadine Guðrún Yaghi og Erla Björg Gunn­ars­dóttir, Stöð 2, Bylgj­unni og Vísi. Fyrir frétta­skýr­inga­þætt­ina Kompás um und­ir­heima Íslands þar sem lýst er bar­áttu við skatt- og bóta­svik. Eins þætti þar sem fjallað var um hvernig morð í Rauða­gerði bar merki skipu­lagðrar glæp­a­starf­semi. Myndefni frá lög­reglu og opin­skátt við­tal við ekkju þess myrta gáfu inn­sýn í heim sem oft­ast er lok­aður almenn­ingi.

Aðal­heiður Ámunda­dóttir. Frétta­blað­inu. Fyrir frétta­skýr­ingar um dóma­fram­kvæmd Lands­réttar í nauðg­un­ar­málum. Töl­fræði­legar upp­lýs­ingar sem fram koma í skýr­ing­unum stað­festa bága stöðu kyn­ferð­is­brota innan rétt­ar­kerf­is­ins. Þær sýna að af þeim fáu kyn­ferð­is­brota­málum sem koma til kasta dóm­stóla er þriðj­ungi sak­fell­inga snúið við áfrýjun og meira en helm­ingur mild­aður. Sam­an­tektin leiddi til aðgerða rík­is­sak­sókn­ara, umræðna á Alþingi og gagn­rýni í sam­fé­lag­inu.

Arnar Þór Ing­ólfs­son og Þórður Snær Júl­í­us­son, Kjarn­anum. Fyrir frétta­skýr­ingar þar sem ljóstrað var upp um óeðli­lega hags­muna­gæslu svo­kall­aðrar Skæru­liða­deildar Samherja. Þær sýndu hvernig full­trúar þessa stór­fyr­ir­tækis reyndu til að mynda að hafa áhrif á for­manns­kjör í stétt­ar­fé­lagi blaða­manna og kjör á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í heima­kjör­dæmi fyr­ir­tæk­is­ins. Frétta­skýr­ing­arnar gáfu greina­góða mynd af óvönd­uðum með­ölum fjár­sterks fyr­ir­tækis í hags­muna­bar­áttu þess.

Umfjöllun ársins

Freyr Rögn­valds­son og Margrét Mart­eins­dóttir, Stund­inni. Fyrir umfjöllun um harð­ræði gagn­vart börnum á vist­heim­ilum í Eyja­firði um tíu ára skeið til 2007. Sex konur lýstu í við­tölum and­legu og lík­am­legu ofbeldi, einkum af hálfu for­stöðu­manns heim­il­anna og voru frá­sagnir þeirra studdar gögnum og vitn­is­burðum. Umfjöll­unin leiddi til þess að rík­is­stjórnin fól eft­ir­lits­stofnun félags­þjón­ust­unnar að rann­saka aðstæður barn­anna sem þar voru vistuð.

Sunna Karen Sig­ur­þórs­dóttir, Stöð 2. Fyrir umfjöllun um til­efn­is­lausar lífsloka­með­ferðir af hálfu læknis á Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­nesja. Sunna Karen hóf umfjöllun um málið, fylgdi því eftir og varp­aði ljósi á umfang þess. Málið er til rann­sóknar hjá lög­reglu, sem og hjá land­lækni og í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu. Í kjöl­far umfjöll­un­ar­innar var ákveðið að lækn­ir­inn skyldi ekki lengur starfa í beinum tengslum við sjúk­linga.

Þórdís Arn­ljóts­dóttir, RÚV. Fyrir fræð­andi og skemmti­lega umfjöllun um jarð­hrær­ingar og eld­gos í Fagra­dals­fjalli. Þórdís nýtti myndefni frá gos­s­töðv­unum vel til að skýra mál sér­fræð­inga í tengslum við eldsum­brotin. Frétt­irnar gáfu áhorf­endum lif­andi mynd af því sem á gekk við Fagra­dals­fjall en voru um leið fræð­andi og settu eld­gosið í skýrt sam­hengi við önnur eldsum­brot og jarð­sögu Íslands.

Blaða­manna­verð­laun árs­ins

Aðal­steinn Kjart­ans­son, Stund­inni. Fyrir vand­aða og afhjúp­andi umfjöllun um fjölda mála, svo sem grein­ingu á eignum og eigna­tengslum íslenskra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja sem dráttur var á hjá ráðu­neyti mála­flokks­ins, rann­sókn lög­reglu­yf­ir­valda á Samherja, og um svo­kall­aða skæru­liða­deild Samherja, auk aflandsleka í svo­nefndum Pand­óru­skjölum. Skrif Aðal­steins hafa haft áhrif á sam­fé­lagið og almenna sam­fé­lags­um­ræðu.

Arn­hildur Hálf­dán­ar­dóttir, RÚV. Fyrir gagn­rýna og fræð­andi umfjöllun um lofts­lags­mál. Í Lofts­lags­dæm­inu, átta útvarps­þáttum, fylgdi Arn­hildur eftir fjórum fjöl­skyldum sem áttu að minnka kolefn­is­spor sitt. Birtar voru frétta­skýr­ingar og við­töl við sér­fræð­inga. Þá vann Arn­hildur fyrir þing­kosn­ing­arnar í haust afhjúp­andi greina­röð um árangur rík­is­stjórn­ar­innar í lofts­lags­málum sem leiddi í ljós að hann var um margt óljós og enn mikið verk óunnið.

Berg­hildur Erla Bern­harðs­dóttir, frétta­stofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgj­unnar. Fyrir umfjöllun um barna­heim­ilið á Hjalt­eyri þar sem upp­lýst var um grimmi­legt ofbeldi hjón­anna sem ráku heim­ilið í garð barna á átt­unda ára­tug síð­ustu aldar. Stjórn­völd voru jafn­framt krafin svara enda leiddi aðgerða- og sinnu­leysi þeirra til þess að hjónin gátu opnað dag­vistun og síðar leik­skóla í Garðabæ. Umfjöll­unin leiddi til rann­sóknar dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár