Indversk geimflaug á leið til tunglsins

Hið fjög­urra tonna geim­far hefur upp á alla nýj­ustu tækni að bjóða, til að mynda lend­ing­ar­búnað, könn­un­ar­far fyrir tunglið, auk rann­sókn­ar­tækis sem mun fara um spor­braut tungls­ins.

Ómönnuð ind­versk geim­flaug, sem kall­ast Chandrayaan2, er nú á leið til tungls­ins, viku seinna en áætlað var. Sein­kunin var vegna tækni­legra örð­ug­leika en Ind­verska geim­rann­sókn­ar­mið­stöðin segir að allt sé nú í standi fyrir ferða­lagið. Þetta kemur fram í frétt Guardian.

Flaug­inni er ætlað að lenda á suð­ur­pól tungls­ins til rann­sóknar. Indversk yfir­völd eru áfjáð að sýna fram á tækni­lega hæfni Indlands, en landið er nú fimmta stærsta hag­kerfi heims með 1,3 millj­arð íbúa.

[adspot]Allt það nýjasta í hátækni í geimfarinu

Hið fjög­urra tonna geim­far hefur upp á alla nýj­ustu tækni að bjóða, til að mynda lend­ing­ar­búnað, könn­un­ar­far fyrir tunglið, auk rann­sókn­ar­tækis sem mun fara um spor­braut tungls­ins. Könn­un­ar­farið mun eyða tveimur vikum á yfir­borði tungls­ins og safna sýnum, ásamt því að leita að vatni.

Áður hafa Banda­ríkin, Rússland og Kína lent flaug á tungl­inu. Indland hyggst jafn­framt senda þrjá geim­fara út í geim árið 2022.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Geimvísindi

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár