Sala á jurtamjólk aukist um tæplega 400 prósent

Bæði eft­ir­spurn og úrval jurta­mjólkur hafa auk­ist til muna hér á landi á síð­ustu árum. Sala á jurta­mjólka hefur auk­ist um 386 pró­sent hjá mat­vöru­versl­unum Krón­unnar á síð­ustu þremur árum.

Ýmsar jurtamjólk­urtegundir eru fá­an­leg­arhér á landi.
Ýmsar jurta­mjólk­urteg­undir eru fá­an­leg­arhér á landi. Mynd: Bára Huld Beck

Sala á mjólk sem unnin er úr plöntu­af­urðum hefur auk­ist gríð­ar­lega á síð­ustu árum. Hjá mat­vöru­versl­un­inni Krónunni jókst salan um 386 pró­sent á tíma­bil­inu 2015 til 2018. Eft­ir­spurn eftir jurta­mjólk og þá sér­stak­lega hafra­mjólk hefur verið það mikil að fram­leið­endur hafa ekki séð sér fært að anna henni.

Skortur á vörum hefur haft áhrif á sölu

[links] Jurta­mjólk er mjólk sem unnin er úr plöntu­af­urðum, þar á meðal er soja­mjólk, möndlu­mjólk, hrís­mjólk og kókos­mjólk. Á árinu 2016 jókst salan á jurta­mjólk hjá Krónunni um 95 pró­sent á milli ára. Árið eftir jókst salan um 92 pró­sent frá árinu á undan en árið 2018 jókst salan um 30 pró­sent. Sigurður Gunnar Mark­ús­son, fram­kvæmda­stjóri inn­kaupa­sviðs hjá Krónunni, bendir þó á í sam­tali við Kjarnann að skortur á vöru­fram­boði hafi haft ein­hver áhrif á söl­una í fyrra.

Hafra­mjólkin frá sænska fyr­ir­tæk­inu Oatly var til að mynda ófá­an­leg í versl­unum hér á landi um hríð í fyrra. Eft­ir­spurn eftir Oatly vörum hefur vaxið svo gíf­ur­lega um allan heim að til að svara þeirri eft­ir­spurn var farið í að auka fram­leiðslu­get­una með því að bæta við fram­leiðslu­línum.

Eft­ir­spurnin hér á landi eftir hafra­mjólk hefur einnig auk­ist á síð­ustu árum. Í sam­tali við Morg­un­blaðið í des­em­ber sagði Jó­hanna Ýr Hall­gríms­dótt­ir, mark­aðs­stjóri hjá Innn­es sem hefur síð­ast­liðin tvö ár flutt inn hafra­vörur frá Oatly, að þegar fyr­ir­tækir voru að fá allar vörur frá fyr­ir­tæk­inu þá voru nokkrir gámar að koma til lands­ins í viku.

Brynjar Ing­ólfs­son, inn­kaupa­stjóri Hagkaups, sagði í sam­tali við Kjarnann að vegan-ostar, sósur, drykkir unnir úr plöntu­af­urðum og til­búnir réttir sem flokk­ast sem vegan hafi stækkað umtals­vert í veltu og úrvali á und­an­förnum árum og þá sér­stak­lega drykkirnir.

Sala á kúamjólk dregist saman um 25 prósent

Mjólk­ur­neysla lands­manna hefur farið minnk­andi á síð­ustu árum og hefur heild­ar­sala á drykkj­ar­mjólk, þ.e. nýmjólk, létt­mjólk, und­an­rennu og fjör­mjólk, dreg­ist saman um 7,9 millj­ónir lítra eða 25 pró­sent frá árinu 2010. Í fyrra nam heild­ar­salan á drykkj­ar­mjólk 23,8 milljón lítrum og dróst saman um 2,8 pró­sent á milli ára. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Sam­bands afurða­stöðva í mjólkur­iðn­að­i.

Alls dróst heild­ar­sala mjólk­ur­vara frá aðild­ar­fé­lög­um ­SAM ­saman um 2,2 pró­sent frá árinu 2017 til 2018 eða um 1290 tonn, sam­kvæmt árs­reikn­ingi sam­tak­anna. Aðild­ar­fé­lög ­SAM eru Auð­humla og Kaup­fé­lag Skag­firð­inga sem eiga Mjólk­ur­sam­söl­una og rek­ur KS ­mjólk­ur­sam­lag KS á Sauð­ar­ár­króki. Sam­dráttur var í öllum vöru­flokkum nema rjóma og duft­i.

Alls hefur sala á rjóma, dufti, ostum og við­biti auk­ist tölu­vert frá árinu 2010 en í heild­ina hefur sala á mjólk­ur­vörum dreg­ist saman um 4,1 pró­sent á síð­ustu 9 ár­um. Sala á rjóma hefur auk­ist hvað mest eða um 30,4 pró­sent frá árinu 2010 og jókst um 7,1 pró­sent í fyrra. Sala skyr­teg­unda dróst saman um 169 tonn í fyrra og sala á osti um 102 tonn í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár