„Útrýmingarstefnan“ búið spil

Nýja-Sjáland hefur gef­ist upp á því að reyna að útrýma delta-afbrigði veirunnar úr sam­fé­lag­inu. Það þýðir þó ekki að hömlu­laust líf bíði íbúa þar í bráð. Stífar tak­mark­anir verða áfram í gildi í fjöl­menn­ustu borg lands­ins næstu vikur.

Jacinda Ardern forsætisráðherra Nýja-Sjálands.
Jacinda Ardern for­sæt­is­ráð­herra Nýja-Sjálands. Mynd: EPA

Á mánu­dag dró til tíð­inda í Nýja-Sjálandi, en þá við­ur­kenndu stjórn­völd í fyrsta sinn að ljóst væri að ekki yrði hægt að útrýma kór­ónu­veirunni algjör­lega úr sam­fé­lag­inu í kjöl­far þess að delta-afbrigði veirunnar komst inn í veiru­laust landið í lok ágúst.

Jacinda Ardern for­sæt­is­ráð­herra flutti lands­mönnum frétt­irnar, eftir að afar stífar sam­komu­tak­mark­anir höfðu verið í gildi í Auckland, stærstu borg lands­ins, í heilar sjö vikur.

Enn voru að grein­ast smit á hverjum degi og þau orðin fleiri en 1.300 alls frá ágúst­lokum. Ardern sagði ljóst að þetta langa tíma­bil strangra tak­mark­ana hefði ekki náð smit­fjöld­anum niður í núll, en sagði að það væri í lagi.

„Útrým­ingin var mik­il­væg af því að við vorum ekki með bólu­efni. Nú höfum við það, svo við getum byrjað að breyta því hvernig við gerum hlut­ina,“ sagði for­sæt­is­ráð­herr­ann, en stór­auk­inn kraftur var settur í bólu­setn­ingu þjóð­ar­innar eftir að þessi nýja bylgja far­ald­urs­ins fór af stað.

Afar varfærnar afléttingar í Auckland

Um það bil ein og hálf milljón manna býr í Auckland og hefur þeim meira og minna verið gert að halda sig heima und­an­farnar vikur, nema til þess að sækja allra brýn­ustu þjón­ustu. Sam­gangur á milli heim­ila hefur verið bann­aður.

Skrefin þrjú sem á að stíga til aflétt­ingar aðgerða eru afar var­færin, sam­kvæmt útlistun á þeim á vef nýsjá­lenskra stjórn­valda.

Í fyrsta aflétt­ing­ar­skref­inu, sem tók gildi strax á þriðju­dags­kvöld, er fólki af tveimur heim­ilum að hámarki leyft að koma saman utandyra, en þó ekki í fjöl­menn­ari hópum en tíu manna. Þá stendur til að opna skóla fyrir yngstu börnin og fólki verður að nýju heim­ilt að ferð­ast um borg­ina og nágrenni hennar í afþrey­ing­ar­skyni, til dæmis ef það vill fara á strönd­ina eða að veiða.

[adspot]

Búið er að setja fram tvö skref til aflétt­inga til við­bótar, en þau eru ekki tíma­sett og ekki verður ráð­ist í þau nema að ljóst sé að fyrri aflétt­ingar séu að halda útbreiðslu veirunnar í skefjum. Rík­is­stjórnin mun meta þá stöðu viku­lega næstu vikur.

Annað skrefur felur í sér að hefð­bundnum versl­unum verður heim­ilt að opna dyr sínar að nýju, en þar mun þurfa að nota grímur og halda fjar­lægðar við aðra. Sund­laugar og dýra­garðar mega opna að nýju og fjöldi þeirra sem mega koma saman utandyra verður hækk­aður í 25.

Þriðja skrefið felur síðan í sér að veit­inga­staðir mega opna dyr sínar fyrir allt að 50 manns. Hár­greiðslu­stofur og aðrir staðir þar sem þjón­usta er veitt í návígi við við­skipta­vini má einnig opna að nýju og 50 manns munu mega koma saman.

Á öðrum stöðum í land­inu er áfram við­bún­að­ar­stig 2 af 4 í gildi, en reglum um að ein­ungis 100 manns megi koma saman á veit­inga­stöðum hefur þó verið aflétt utan Auckland.

Stjórn­völd segja að þegar aflétt­ing­ar­skrefin hafa öll verið stigin í Auckland muni landið færa sig yfir í áætl­anir á lands­vísu sem taki mið af því að hærra hlut­fall íbúa hafi fengið bólu­setn­ingu og til stendur að taka upp ein­hvers­konar bólu­setn­ing­ar­vega­bréf til þess að geta haldið stærri við­burði.

„Bólu­setn­ingar voru alltaf að fara að breyta því hvernig við tækj­umst á við COVID-19 inn í fram­tíð­ina, en okkar leið hefur virkað og mun áfram verða til staðar – við viljum stjórna veirunni, forð­ast smit og sjúkra­húsinn­lagnir, njóta frelsis okkar og end­ur­tengj­ast heim­inum,“ segir í til­kynn­ingu stjórn­valda frá því á mánu­dag­inn.

27 manns hafa lát­ist af völdum COVID-19 í Nýja-Sjálandi frá því veirunnar varð fyrst vart þar í mars árið 2020.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár