Viktor Orbán, for­sæt­is­ráð­herra Ung­verja­lands. Mynd: EPA

Eitruð ræða Orbáns

Viktor Orbán for­sæt­is­ráð­herra Ung­verja­lands hefur reynt að lægja öldur vegna ræðu sem hann hélt í Rúmeníu undir lok júlí­mán­aðar. Hann seg­ist nú hreint ekki hafa verið að tala um að blöndun kyn­þátta væri óæski­leg, þó að erfitt sé að lesa annað úr ræð­unni.

Viktor Orbán, for­sæt­is­ráð­herra Ung­verja­lands, hefur verið harð­lega gagn­rýndur fyrir ræðu sem hann flutti á stjórn­mála­ráð­stefnu í Rúmeníu 23. júlí. Gagn­rýnendur hafa jafn­vel verið á meðal banda­manna hans, en ráð­gjafi sem starf­aði við hlið Orbán í rúm tíu ár sagði af sér vegna inni­halds ræð­unnar.

Í afsagn­ar­bréfi ráð­gjafans, félags­fræð­ings­ins Zsuzsa Hegedüs, sem hefur starfað fyrir Orbán í rúman ára­tug, sagði meðal ann­ars að ummæli leið­tog­ans hefðu vel getað sómað sér í ræðu eftir Joseph Göbbels, áróð­urs­mála­ráð­herra Þýska­lands nas­ism­ans. „Algjör­lega nasískur texti,“ sagði í afsagn­ar­bréfi Hegedüs, sem sjálf er af gyð­inga­ættum.

Það skal þó tekið fram að Orbán hefur ögn dregið úr ummælum sínum og heldur því nú fram að hann hafi ekki verið að tala um blöndun kyn­þátta sem slíkra, heldur blöndun menn­ing­ar­heima.

„Ég vil ekki að Ung­verja­land verði inn­flytj­enda­land. Það er ekki spurn­ing um kyn­þætti fyrir okkur. Þetta snýst um menn­ing­ar­mun,“ sagði Orbán við fjöl­miðla í heim­sókn til Vín­ar­borgar undir lok síð­ustu viku og stát­aði sig síðan af góðum árangri í bar­áttu gegn ras­isma heima fyrir.

Ráð­gjaf­inn Hegedüs hefur sagt að hún taki þessa útskýr­ingu góða og gilda – og að hún muni enn taka á móti vini sínum Orbán í kaffi hvenær sem hann vilji líta við, þó að hún snúi ekki aftur í form­legt hlut­verk sitt sem ráð­gjafi.

En hvað sagði ung­verski for­sæt­is­ráð­herr­ann í ræðu sinni, sem minnti hans eigin ráð­gjafa á orð­færi nas­ista og hefur upp­skorið for­dæm­ingu stjórn­mála­manna í öðrum ríkjum Evrópu?

„Þessi lönd eru ekki lengur þjóðir“

Ræðu Orbáns í heild má lesa í enskri þýð­ingu á vef ung­verskra stjórn­valda. Ummælin sem vakið hafa úlfúð og for­dæm­ingu snerta bæði fólks­flutn­inga og blöndun kyn­þátta.

Í ræð­unni sagði Orbán meðal ann­ars að fólks­flutn­inga til Evrópu mætti kalla „end­ur­nýjun mann­fjöld­ans“ (e. population replacement), eða þá að tala mætti um að með fólks­flutn­ingum frá öðrum heims­hornum væri verið að „sökkva“ núver­andi íbúum. Talaði hann um lága fæð­ing­ar­tíðni og fólks­flutn­inga sem vanda­mál sem steðj­uðu að bæði Ung­verja­landi og Evrópu.

„Fólks­flutn­ingar hafa skipt Evrópu í tvennt – eða ég gæti sagt að þeir hefðu skipt Vest­ur­löndum í tvennt. Annar helm­ing­ur­inn er heimur þar sem Evr­ópu­búar og fólk sem er ekki frá Evrópu býr saman. Þessi lönd eru ekki lengur þjóðir, þau eru ekk­ert meira en sam­an­safn fólks. Ég gæti líka sagt að þetta væri ekki lengur hinn vest­ræni heimur, heldur síð-vest­rænn heimur. Og um árið 2050 munu lög­mál stærð­fræð­innar leiða til síð­ustu lýð­fræði­legu vend­ing­anna: borgir í þessum hluta heims­álf­unnar munu sjá hlut­fall íbúa með bak­grunn utan Evrópu rísa yfir 50 pró­sent af heild­inni. Og hér erum við í Mið-Evrópu – í hinum hluta Evrópu, eða Vest­ur­landa,“ sagði Orbán í ræðu sinni og bætti við að hann áliti að það væri „bar­dagi í gangi á milli þess­ara tveggja hluta Evrópu.“

„Við gáfum síð-vest­ur­landa­bú­unum (e. Post-Westerners) til­boð sem byggði á skiln­ingi og því að leyfa hvorum að vera í friði og taka sjálf­stæðar ákvarð­anir um með hverjum við viljum lifa, en þeir neita þessu og halda áfram að berj­ast gegn Mið-Evrópu, með það mark­mið að gera okkur eins og þau,“ sagði Orbán, og bætti því svo við að yfir­stjórn ESB í Brussel og „her­lið“ með tengsl við auð­kýf­ing­inn George Soros vildi „ein­fald­lega neyða upp á okkur far­and­fólki“.

„Allt sem við biðjum um er að þeir reyni ekki að troða upp á okkur örlögum sem við sjáum ekki ein­ungis sem eðli­legt hlut­skipti þjóðar, heldur sem enda­lok þjóðar. Þetta er allt sem við biðjum um, og ekk­ert meira,“ sagði Orbán.

Hann bætti því svo við að „vinstri­menn á alþjóða­vísu“ beittu upp­skáld­uðum sögu­skýr­ingum þess efnis að heims­álfan Evrópa væri nátt­úru­leg heim­kynni „fólks af blönd­uðum kyn­þáttum“.

„Þetta eru sögu­legar og merk­ing­ar­legar sjón­hverf­ingar, þar sem þetta blandar tveimur mis­mun­andi hlutum saman. Það er heimur þar sem Evr­ópu­menn bland­ast þeim sem flytj­ast þangað frá öðrum heims­hornum. Það er heimur bland­aðra kyn­þátta. Og svo er það okkar heimur, þar sem fólk innan Evrópu bland­ast hvoru öðru, vinnur, og kemur sér fyrir á nýjum stað,“ sagði Orbán og bætti því við að íbúar í aust­an­verðri Mið-Evrópu, Ung­verja­landi og nágrenni, væru ekki „af blönd­uðum kyn­þáttum“ heldur „ein­fald­lega blanda af fólki sem lifir í okkar eigin evr­ópska heima­landi“.

„Þetta er ástæðan fyrir því að við höfum alltaf barist, við erum viljug til þess að bland­ast hvoru öðru, en við viljum ekki verða þjóð­fé­lög bland­aðra kyn­þátta,“ sagði Orbán og bætti því við að vegna þessa hefðu margar bar­áttur verið háðar fyrr á öldum og inn­rásum Ottóman­veld­is­ins verið hrundið bæði í Belgrad og Vín­ar­borg á 15. og 16. öld.

Sagði hann að í dag væri staðan sú að „íslamska sið­menn­ingin“, sem sífellt væri að fær­ast að Evrópu, hefði áttað sig á því að óhent­ugt væri að reyna að fara í gegnum Ung­verja­land og þaðan áfram inn í Evrópu. Því væri „áhlaupið“ ekki frá austri, heldur úr suðri, „þaðan sem þeir eru að her­taka og flæða yfir vestrið“.

„Þetta kann ef til vill ekki að vera orðið mik­il­vægt verk­efni fyrir okkur núna, en þetta verður það fyrir börn okkar, sem munu þurfa að verja sig, ekki ein­ungis frá suðr­inu, heldur einnig frá vestr­inu. Sá tími mun koma er við munum ein­hvern­veg­inn þurfa að taka á móti kristnu fólki sem kemur til okkar þaðan og sam­þætta þau við líf okkar. Þetta hefur gerst áður, og þau sem við viljum ekki hleypa inn munu þurfa að vera stöðvuð á vest­ur­landa­mærum okkar – með Schengen eða án. En þetta er ekki verk­efni dags­ins, og ekki verk­efni okkar lífs­hlaups. Okkar verk­efni er ein­ungis að búa börnin okkar undir að verða til­búin að gera þetta,“ sagði Orbán.

Orbán sé „harmleikur Ungverjalands“

Töluverð gagn­rýni hefur sem áður segir komið fram á þessi orð Orbáns, bæði heima fyrir og að heiman. Fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Ung­verja­lands frá 2004-2009, Ferenc Gyurcsány, brást við orðum hans með því að kalla Orbán „harm­leik Ung­verja­lands“. „Orð nas­ist­ans í gær úti­loka okkur frá heimi heið­ar­legs fólks,“ sagði Gyurcsány sömu­leiðis í færslu á Facebook.

Þá komu full­trúar allra helstu flokka í Evr­ópu­þing­inu sér saman um yfir­lýs­ingu undir lok síð­ustu viku, þar sem orð Orbáns voru kölluð „óaf­sak­an­leg“ og rasísk. Þess var kraf­ist að rík­is­stjórnir Evr­ópu­sam­bands­ríkja og fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins myndu grípa til aðgerða gegn Ung­verja­landi vegna orða Orbáns, sem sögð voru ganga í ber­högg við ákvæði um mann­rétt­indi allra hópa, sem kveðið er á um í sátt­mála Evr­ópu­sam­bands­ins.

Bandarískir íhaldsmenn bjóða Orbán velkominn

Orbán er á far­alds­fæti þessa dag­ana. Hann er í Banda­ríkj­unum, en þar hitti hann fyrr­ver­andi for­set­ann og vin sinn Donald Trump á þriðju­dag og mun svo flytja ræðu á stórri ráð­stefnu banda­rískra íhalds­manna, CPAC, sem hefst í Dallas í dag.

Í ljósi þeirra orða sem Orbán lét falla í ræðu sinni í Rúmeníu hafa skipu­leggj­endur CPAC verið spurðir hvort þeir hafi íhugað að taka Orbán af mæl­enda­skrá. Það hafa þeir ekki gert.

Donald Trump og Viktor Orbán hittust í á þriðjudag.
Donald Trump og Viktor Orbán hitt­ust í á þriðju­dag.

„Hlustum á mann­inn tala,“ sagði Matt Schlapp stjórn­ar­for­maður CPAC og bætti við að ef ein­hverjir hefðu athuga­semdir við mál­flutn­ing Orbáns væri um að gera að koma þeim á fram­færi.

Eins og bent er á í nýlegum leið­ara Washington Post er þó ólík­legt að margir sem verða við­staddir CPAC-ráð­stefn­una í Dallas hafi miklar athuga­semdir við mál­flutn­ing Orbáns, þó hann yrði af sama meiði og í ræð­unni umdeildu í Rúmeníu.

Innan raða íhalds­manna í Banda­ríkj­unum, og þá sér­stak­lega þess hóps sem hefur fylgt sér um Donald Trump, hefur það nefni­lega orðið útbreidd skoðun á und­an­förnum árum að elítur vinstri­manna vilji ýta undir fjölgun inn­flytj­enda og fjöl­breyti­leika sam­fé­laga til þess að ryðja úr vegi vest­rænni – og hvítri – menn­ingu.

Sögðu leið­ara­höf­undar Washington Post að ras­ismi Orbáns sem opin­ber­að­ist í orðum hans um blöndun kyn­þátta í Evrópu væri á skjön við banda­rísk gildi. „Þetta ætti að leiða til þess að boð hans á CPAC yrði end­ur­kallað. Í stað­inn bendir allt til þess að honum verði fagnað við kom­una til Dallas,“ sagði í leið­ara blaðs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár