Rekstur Reykjavíkurborgar lakari en á áætlunum

Lægri hækkun fast­eigna­verðs en gert var ráð fyrir og samn­ingar Orku­veit­unnar skil­uðu síðri nið­ur­stöðu. Hreinar vaxta­ber­andi skuldir lækk­uðu.

Rekstur sam­stæðu Reykja­vík­ur­borgar á fyrri hluta árs­ins var 115 millj­ónum króna lak­ari en gert hafði verið ráð fyrir. Í heild var rekstr­ar­nið­ur­staðan jákvæð um rúma 9 millj­arða króna. Hreinar vaxta­ber­andi skuldir borg­ar­innar lækk­uðu hins vegar, bæði í krónum talið og sem hlut­fall af rekstr­ar­tekjum. Þetta kemur fram í árs­hluta­reikn­ingi sem borg­ar­ráð afgreiddi í dag.

Rekstur A-hluta var hins vegar tæpum 2 millj­örðum betri en búist var við. Betri rekstr­ar­nið­ur­stöðu A-hluta má helst rekja til sölu á bygg­inga­rétti, sem var 2,1 millj­örðum krónum umfram áætlun. Verri nið­ur­stöðu sam­steypunnar má hins vegar rekja til minni hækk­unar fjár­fest­inga­eigna Félags­bú­staða og hærri fjár­magns­gjalda vegna raf­orku­samn­inga hjá Orku­veitu Reykja­víkur. Rekstr­ar­nið­ur­staða fyrir fjár­magnsliði var 2,9 millj­örðum betri en áætlun gerði ráð fyrir.

„Fjár­magns­gjöld voru 1,9 makr hærri en áætlun gerði ráð fyrir en þar vegur þungt 4 makr gjald­færsla gang­virð­is­breyt­inga inn­byggðra afleiða í raf­orku­sölu­samn­ingum (álaf­leiðan),“ segir í skýrslu með árs­hluta­reikn­ingnum. „Fast­eigna­verð á tíma­bil­inu hækk­aði minna en gert var ráð fyrir sem leiddi til að mats­breyt­ing eigna Félags­bú­staða var tæpum 1,3 makr undir áætlun.“

Hreinar vaxta­ber­andi skuldir borg­ar­innar lækk­uðu um 3 millj­arða króna á tíma­bil­inu og eru nú 105% sem hlut­fall af rekstr­ar­tekjum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár