Stjórnin klofin í afstöðu til skýrslubeiðni Rósu

Þingmenn ekki á eitt sáttir hvort utan­ríkis- eða sam­göngu­ráð­herra ætti að svara skýrslu­beiðni Rósu Bjarkar Brynj­ólfs­dóttur um fram­kvæmd vopna­flutn­inga. Þrír þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins greiddu atkvæði gegn skýrslu­beiðn­inni en aðrir sátu hjá.

Þing­fundur var hald­inn stutt­lega í dag, þrátt fyrir að vera ekki á dag­skrá, til að greiða atkvæði um skýrslu­beiðni Rósu Bjarkar Brynj­ólfs­dóttur, þing­manns Vinstri grænna, frá utan­rík­is­ráð­herra um fram­kvæmd alþjóð­legra skuld­bind­inga er varða flutn­ing á vopnum. Ásamt Rósu standa að skýrslu­beiðn­inni nokkrir þing­menn Sam­fylk­ingar, Við­reisnar, Mið­flokks­ins og Flokki fólks­ins ásamt Pírötum.

Þingmenn rík­is­stjórn­ar­flokk­anna klofn­uðu í afstöðu sinni til máls­ins, en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn studdi ekki skýrslu­beiðn­ina, að minnsta kosti ekki að henni yrði beint til utan­rík­is­ráð­herra og vildu heldur meina að sam­göngu­ráð­herra ætti að skila umræddri skýrslu. Þeir Óli Björn Kárason, Páll Magn­ús­son og Vil­hjálmur Árnason greiddu atkvæði gegn skýrslu­beiðn­inni, en aðrir þing­menn flokks­ins ýmist sátu hjá eða voru fjar­ver­andi.

Nokkur umræða varð í þing­inu á mánu­dag vegna máls­ins. Stjórn­ar­and­staðan kvart­aði yfir því að utan­rík­is­ráð­herra vildi ekki taka við skýrslu­beiðn­inni, en for­seta þings­ins hafði borist bréf frá ráð­herra þar sem hann hélt því fram að hún beind­ist að hluta til að þáttum sem væri á verk­sviði ann­ars ráð­herra.

Stein­grímur J. Sig­fús­son kann­aði síðan málið sem var tekið til atkvæða í dag og taldi málið tækt til þing­legrar með­ferðar og atkvæða­greiðslu.

„Engu að síður er það svo að í fyr­ir­liggj­andi skýrslu­beiðni er óskað eftir því að fjallað verði um atriði sem falla undir mál­efna­svið utan­rík­is­ráð­herra sam­kvæmt for­seta­úr­skurði um skipt­ingu stjórn­ar­mál­efna milli ráðu­neyta í Stjórn­ar­ráði Íslands, nr. 84/2017. Þar er í 8. grein kveðið á um að utan­rík­is­ráð­herra fari með utan­rík­is­mál, þar á meðal samn­inga við önnur ríki og gerð þeirra. Ábyrgð á fram­kvæmd alþjóða­samn­inga getur þó eftir atvikum verið á hendi, eða að hluta til á hendi, ann­arra ráð­herra eins og kunn­ugt er. Beiðnin varðar opin­bert mál­efni og upp­fyllir að öllu leyti ákvæði þing­skapa. Hún telst því tæk til þing­legrar með­ferðar og atkvæða­greiðslu. Þá hefur þessi skoðun einnig leitt til þess að skýrslu­beið­endur hafa gert nokkrar breyt­ingar á beiðni sinni til að taka betur mið af þeirri verka­skipt­ingu sem á bak við liggur. Hefur málið verið prentað upp og kemur nú þannig til atkvæða­greiðslu,“ sagði Stein­grímur í dag.

Í máli Birgis Ármanns­sonar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, þegar hann gerði grein fyrir hjá­setu sinni, kom fram að hann teldi að málið eigi fremur heima á borði sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra en utan­rík­is­ráð­herra. „Það hefur aldrei verið ágrein­ingur um að eðli­legt væri að kallað væri eftir upp­lýs­ingum af þessu tagi en það hefur hins vegar verið álita­mál með hvaða hætti það væri borið fram hér. Ég tel að það sé að minnsta kosti gott ef lyktir fást í þetta mál, en sit hjá við atkvæða­greiðsl­una í ljósi þeirrar afstöðu minnar að meg­in­efni og kjarni fyr­ir­spurn­ar­innar eða skýrslu­beiðn­innar lúti að mál­efnum sem heyra undir verk­svið sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra og því hefði ég talið eðli­legt að málið færi í þann far­veg.“

Skýrslu­beiðnin er svohljóð­andi:

Með vísan til 54. greinar þing­skap­ar­laga er óskað eftir skrif­legri skýrslu utan­rík­is­ráð­herra, í sam­vinnu við sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra eftir því sem við á, um alþjóð­legar skuld­bind­ingar Íslands er varða leyf­is­veit­ingar eða und­an­þágur vegna vopna­flutn­inga.

Í skýrsl­unni verði dregin fram ábyrgð ráðu­neyt­is­ins, og ann­arra ráðu­neyta og stofn­ana ef við á, um veit­ingar á leyfum og und­an­þágum til vopna­flutn­inga um íslenska loft­helgi eða til íslenskra aðila sem starfa á alþjóða­vett­vangi. Í því felist að skýrt verði hvernig íslensk stjórn­völd fram­fylgja því þegar Ísland und­ir­gengst alþjóð­legar skuld­bind­ingar varð­andi vopna­við­skipti eða vopna­flutn­inga, svo sem við­skipta­bann alþjóða­stofn­ana, alþjóð­lega samn­inga og sátt­mála, álykt­anir örygg­is­ráðs Sam­ein­uðu þjóð­anna og álykt­anir Evr­ópu­ráðs­ins.

Óskað er eftir því að í skýrsl­unni verði verk­ferlar skýrðir sem og ábyrgð­ar­keðjan innan stjórn­sýsl­unnar, og einnig hið póli­tíska verk­lag þegar íslenska ríkið und­ir­gengst alþjóð­legar skuld­bind­ingar af þessu tagi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár