Þrjú hætta í stjórnum lífeyrissjóða vegna nýrra reglna SA

Þrír stjórn­ar­menn SA í Birtu og Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna hafa ákveðið að hætta, til að koma í veg fyrir hags­muna­á­rekstra. Þau sitja öll í stjórnum skráðra hluta­fé­laga líka.

Halldór Benjamín Þorbergsson er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Halldór Benjamín Þor­bergs­son er fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Úlfar Stein­dórs­son, Anna Guðný Ara­dóttir og Anna G. Sverr­is­dóttir hafa sagt sig úr stjórnum Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna og Birtu líf­eyr­is­sjóði frá og með deg­inum í dag.

Þetta er gert vegna þess að þau sitja einnig í stjórnum skráðra hluta­fé­laga, og það sam­ræm­ist ekki nýjum reglum Samtaka atvinnu­lífs­ins um skipan full­trúa SA í stjórnir líf­eyr­is­sjóða. Í til­kynn­ingu frá Samtökum atvinnu­lífs­ins tóku þau þessa ákvörðun að eigin frum­kvæði, en þetta er gert til að girða fyrir mögu­lega hags­muna­á­rekstra.

Regl­urnar voru settar og sam­þykktar af stjórn SA í byrjun árs­ins, til þess að koma í veg fyrir hags­muna­á­rekstra, grun um hags­muna­á­rekstra og til að tryggja óhæði stjórn­ar­manna líf­eyr­is­sjóða.

Í Frétta­blað­inu í dag kom fram að ekki hefði verið rætt um að Úlfar Stein­dórs­son léti af stjórn­ar­setu í Líf­eyr­is­sjóði versl­un­ar­manna eftir að hann var kjör­inn stjórn­ar­for­maður Icelandair, þrátt fyrir regl­urnar. Úlfar hefur setið í stjórn Icelandair frá árinu 2010, og var end­ur­kjör­inn í stjórn­ina síð­ast­lið­inn föstu­dag, í fyrsta sinn eftir að regl­urnar hjá SA tóku gildi. Úlfar segir í Frétta­blað­inu að hann hafi ekki vitað af regl­unum. „Þegar ég var beð­inn um að setj­ast í stjórn LV þá var ég fyrir í stjórn Icelandair. Ef SA hafa sett þessar reglur þá hljóta þeir að koma til mín og láta mig vita af þeim.“

Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri SA, sagði jafn­framt í Frétta­blað­inu að regl­urnar hafi verið hugs­aðar fyrir nýja stjórn­ar­menn sem yrðu skip­aðir í stjórnir líf­eyr­is­sjóða eftir setn­ingu regln­anna, en ekki fyrir eldri stjórn­ar­menn. Til greina kæmi að fara yfir stöðu Úlfars.

Nú hefur Úlfar sagt sig úr stjórn LV, og það gerði Anna G. Sverr­is­dóttir, vara­maður í stjórn­inni, líka. Þá hættir Anna Guðný í stjórn Birtu líf­eyr­is­sjóðs.

Í til­kynn­ingu frá SA segir að ljóst sé að betur hefði mátt standa að kynn­ingu á breyt­ing­unum til stjórn­ar­fólks, og hlut­að­eig­andi eru beðnir vel­virð­ingar á því. „Aðal­at­riðið er að fag­lega er staðið að skipan stjórn­ar­manna í líf­eyr­is­sjóði af hálfu SA. Nýjar reglur gefa hæfum ein­stak­lingum tæki­færi á að bjóða fram krafta sína til starfa í stjórnum líf­eyr­is­sjóða með hags­muni sjóðs­fé­laga að leið­ar­ljósi. Líf­eyr­is­sjóð­irnir og við­fangs­efni þeirra eru gríð­ar­lega mik­il­væg fyrir fram­tíð­ar­vel­ferð þjóð­ar­innar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár