Loðnumælingar: Enn ekki forsendur fyrir veiðikvóta

Mæling á hrygn­ing­ar­stofni loðnu í febr­úar er mun hærri en fyrri mæl­ingin í jan­úar og því þykir full ástæða til að gera þriðju mæl­ing­una.

Heild­ar­magn hrygn­ing­ar­loðnu sam­kvæmt bráða­birgða­nið­ur­stöðu loðnu­mæl­inga dag­ana 1. til 9. febr­úar er 250 þús­und tonn og hefur þá ekki verið tekið til­lit til áætl­aðra affalla úr stofn­inum vegna afráns fram að hrygn­ingu.

Þetta kemur fram á vef Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar í dag.

Mælingin byggir á yfir­ferð sem RS Árni Frið­riks­son og upp­sjáv­ar­veiði­skipin, Aðal­steinn Jónsson SU, Börkur NK, Margrét EA og Polar Amaroq, tóku þátt í. Mest reynd­ist vera af loðnu við Kol­beins­eyj­ar­hrygg­inn en einnig fannst loðna við land­grunns­kant­inn norð­austur og norð­vestur af land­inu.

[links]Samkvæmt stofn­un­inni er nið­ur­staða þess­arar mæl­ingar tölu­vert undir því marki sem gefur Haf­rann­sókna­stofnun til­efni, sam­kvæmt afla­reglu, til að mæla með veiði­kvóta. Svo það ger­ist má gróf­lega áætla að það þurfi að minnsta kosti 150 þús­und tonn til við­bótar að mæl­ast.

„Þessi mæl­ing á hrygn­ing­ar­stofni loðnu í febr­úar er mun hærri en fyrri mæl­ingin í jan­úar upp á 64 þús­und tonn og því þykir full ástæða til að gera þriðju mæl­ing­una. Árni Frið­riks­son byrj­aði þá mæli­yf­ir­ferð 11. febr­úar og munu veið­skip bæt­ast við í mæl­ing­una um og eftir helgi þegar óveður helg­ar­innar gengur niður,“ segir á vef stofn­un­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár