Vill taka friðlýsingarverkefni af Minjastofnun og sjá um þau sjálfur

Samkvæmt frum­varpi sem er í smíðum í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu fær Sig­mundur vald til að taka fram fyrir hend­urnar á sveit­ar­stjórnum og meta sjálfur varð­veislu­gildi byggðar. Þá fær­ast frið­lýs­ing­ar­verk­efni Minja­stofn­unar beint til ráð­herra.

For­sæt­is­ráð­herra vill færa öll verk­efni er lúta að frið­lýs­ingu húsa og mann­virkja frá Minja­stofnun til sín. Hið sama gildir um hlut­verk sem stofn­unin fer með sam­kvæmt lögum um vernd­ar­svæði í byggð. 

Þetta er á meðal þess sem fram kemur í frum­varpi sem er í vinnslu innan for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins. Stundin hefur drögin undir höndum. Þar er lagt til að inn í lög um vernd­ar­svæði í byggð komi ákvæði sem veitir for­sæt­is­ráð­herra vald til að taka fram fyrir hend­urnar á sveit­ar­stjórnum og meta sjálfur varð­veislu­gildi byggðar. Ákvæðið hljóðar svo: „Sinni sveit­ar­stjórn ekki skyldu skv. 1. mgr. um mat á gildi byggðar getur ráð­herra metið gildi byggðar innan stað­ar­marka sveit­ar­fé­lags­ins og tekið ákvörðun um að hún verði gerð að vernd­ar­svæði í byggð enda hafi byggðin varð­veislu­gildi á lands­vísu.“ 

Mun einnig valdið til að afnema frið­lýs­ingu húsa og mann­virkja fær­ast til ráð­herra. „Verður þar með frið­lýs­ing­ar­ferlið á einni hendi frá und­ir­bún­ingi frið­lýs­ing­ar­til­lögu til ákvörð­unar um frið­lýs­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Skipulagsvald forsætisráðherra

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár