Danskir menntaskólar endurhugsi drykkjumenninguna

Danska heil­brigð­is­stofn­unin hefur sent mennta­skólum lands­ins bréf þar sem óskað er eftir því að hætt verði að gera áfengi hátt undir höfði á við­burðum á vegum skól­anna.

Áfengi spilar afar stjórt hlutverk í danskri unglingamenningu.
Áfengi spilar afar stjórt hlut­verk í danskri ung­linga­menn­ingu. Mynd: EPA

Danskir ung­lingar drekka mest allra í Evrópu og hafa gert í áraraðir, enda þurfa danskir ung­lingar ekki að vera nema 16 ára til þess að mega versla sér vín, bjór og aðra bland­aða drykki úti í búð, svo lengi sem áfeng­is­magn fer ekki yfir 16,5 pró­sent.

Þó að þessi mikla drykkju­menn­ing hafi hingað til ekki valdið Dönum nægi­lega miklum áhyggjum til þess að þeir hafi ákveðið að hækka ald­ur­inn til áfeng­is­kaupa, en þess má geta að ekk­ert ald­urs­tak­mark er sett á áfeng­is­drykkju almennt, hefur danska heil­brigð­is­stofn­unin nú séð ástæðu til þess að hvetja til þess að hætt verði að setja sama­sem­merki á milli mennta­skóla­við­burða og mik­illar áfeng­is­neyslu og ráðið gegn áfeng­is­neyslu ung­menna undir 18 ára.

Þannig fengu skóla­meist­arar allra danskra mennta­skóla bréf á dög­unum þar sem þeir voru hvattir til þess að end­ur­skoða drykkju­menn­ingu á við­burðum tengdum skól­unum. Þá var sér­stak­lega minnst á nem­endur í fyrsta bekk og voru skól­arnir hvattir til þess að banna áfeng­is­neyslu á öllum við­burðum fyrir nýja nem­endur frá skóla­byrjun og fram að haust­frí­inu. Þannig gætu nem­endur kynnst bekkj­ar­fé­lögum sínum án þess að hafa áfengi um hönd.

Drykkja í öruggum aðstæðum

Tilmæli heil­brigð­is­yf­ir­valda hafa fengið nokkuð jákvæð við­brögð þó fæstum þyki bann við áfeng­is­neyslu, líkt og það sem lagt er til fyrir nem­endur á fyrsta ári, raun­hæft. Þannig hefur TV2 haft eftir for­manni danskra nem­enda­sam­taka að þau hafi lengi talað fyrir því að ekki yrði boðið upp á drykki með áfeng­is­magni yfir 5 pró­sentum á mennta­skóla­við­burðum. Hins vegar geti bann við áfengi á slíkum við­burðum leitt til þess að mennta­skóla­nemar eigi fyrstu kynni sín af áfengi í ótryggum aðstæðum utan við­burða á vegum skól­ans.

Þá taki sam­tökin vel í aukið sam­tal á milli skóla­yf­ir­valda og nem­enda um áfeng­is­menn­ingu og þær afleið­ingar sem áfeng­is­neysla í óhófi getur haft, auk þess sem þau segja það góða hug­mynd að skól­arnir bjóði einnig upp á áfeng­is­lausa drykki á við­burðum sínum. Um sé að ræða rót­gróna danska menn­ing­ar­hefð sem ekki verði upp­rætt með því að banna fyrstu­bekk­ingum að drekka áfengi á skóla­við­burðum í örfáar vikur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár