Útgáfa með föður íslenskrar píanómenningar

Safnað á Karolina­fund fyrir útgáfu á geisla­diski þar sem Árni Krist­jáns­son píanó­leik­ari leikur ein­leiks­verk eftir nokkur af höf­uð­tón­skáldum klass­ískrar tón­listar.

Nú stendur yfir söfnun á Karolina­fund til að mæta hluta kostn­aðar við útgáfu á geisla­diski þar sem Árni Krist­jáns­son píanó­leik­ari (1906 – 2003) leikur ein­leiks­verk eftir Mozart, Beethoven og Chopin. Þórarinn Stef­áns­son er einn þeirra sem standa að söfn­un­inni. Kjarninn hitti Þórarinn og tók hann tali.

Hver var Árni Krist­jáns­son og hvað var hann þekkt­astur fyrir?

„Hér er um að ræða merki­lega útgáfu með þeim píanó­leik­ara og kenn­ara frá síð­ustu öld sem lýsa má sem föður íslenskrar píanó­menn­ingar, ef ég má taka svo til orða. Þegar ég segi þetta þá á ég við að Árni hafði lag á gæða kennsl­una og píanó­leik sinni slíku lífi að sam­ferða­menn hans gátu ekki annað en hrif­ist með. Árni var einn atkvæða­mesti píanó­leik­ari og –kenn­ari okkar á síð­ustu öld og hafði afger­andi áhrif á píanó­leik­ara og aðra tón­list­ar­menn sem nú starfa hér á landi. Ekki eru til margar hljóð­rit­anir af ein­leik Árna en þó nokkrar af sam­leiks­verkum og hafa þær verið gefnar út að ein­hverju leyti. Það er því mik­il­vægt að halda á lofti minn­ingu Árna sem ein­leik­ara með útgáfu þessa disks með ein­leiks­verkum. Auk þess má segja að útgáfan varð­veiti per­sónu­lega nálgun Árna í túlkun á tón­list og einnig ákveð­inn tíð­ar­anda lið­ins tíma.“

Hvaða verk koma til með að vera á geisla­disknum?

„Hljóð­ritin eru frá ólíkum tímum, Sónata Beethovens op. 109 var hljóð­rituð í Lands­síma­hús­inu við Aust­ur­völl árið 1947, Sónata Mozarts í C dúr í Stúdío 1 á Skúla­götu 4 í júlí 1961 og ýmis smá­verk eftir Fryderyk Chopin í Háskóla­bíói árið 1983. Disk­ur­inn spannar því stóran hluta í starfsævi Árna og inni­heldur verk eftir tón­skáld sem stóðu honum nærri.“

Hvert er mik­il­vægi þess að gefa út ein­leik­inn hans?

„Árni Krist­jáns­son var mik­ils­virtur píanó­leik­ari og -kenn­ari og minn­ast nem­endur og sam­ferða­menn hans með hlý­hug og virð­ingu. Jón Nordal tón­skáld kemst svo að orði í minn­ing­ar­grein árið 2003, “Árni var gæddur fágætri gáfu hins mikla kenn­ara sem sumir telja jafn­vel vera enn sjald­gæfari en sjálf lista­gáfan. Það var ógleym­an­legt að vera í tímum hjá honum þegar hann sveif um geim­inn og hreif nem­endur sína með sér inn í dul­heima list­ar­innar. Það var sann­ar­lega mikið happ fyrir íslenska tón­list þegar hann kom heim árið 1933 eftir sína löngu náms­dvöl erlendis og hóf kennslu við Tón­list­ar­skól­ann í Reykja­vík. Þá urðu þátta­skil og lagður var grunnur að æðra námi í píanó­leik hér á landi. Árni Krist­jáns­son fædd­ist árið 1906 á Grund í Eyja­firði og lést árið 2003. Auk starfa sinna sem flytj­andi og kenn­ari, liggja eftir hann skrif af ýmsu tagi um tón­list og tón­skáld. Hann var einnig virkur í félags­málum tón­list­ar­manna; einn af stofn­endum Félags íslenskra tón­list­ar­manna og var for­maður þess um skeið og for­maður tón­list­ar­nefndar NOMUS. Árni sat einnig í stjórn Sin­fón­íu­hljóm­sveitar Íslands og Banda­lags íslenskra lista­manna. Hann gegndi um ára­bil stöðu Tón­list­ar­stjóra Rík­is­út­varps­ins.“

Hægt er að styrkja verk­efnið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár