ASÍ og BSRB á móti frumvarpi um frítekjumark

Stétt­ar­fé­lögin ASÍ og BSRB gagn­rýndu frum­varp fjár­mála­ráð­herra um hækkun frí­tekju­marks í umsögnum sínum til alþingis. Reykja­vík­ur­borg gagn­rýndi vænta minnkun skatt­tekna vegna frum­varps­ins og lagði til afnám fjár­magnstekju­skatts af sveit­ar­fé­lögum.

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra Mynd: Bára Huld Beck

Alþýðu­sam­band Íslands (ASÍ) og Bandalag starfs­manna ríkis og bæjar (BSRB) leggj­ast gegn frum­varpi fjár­mála­ráð­herra um hækkun frí­tekju­marks og að það myndi ná til arð­greiðslna og sölu­hagnað félaga. Reykja­vík­ur­borg gerir athuga­semd við að frum­varpið gæti minnkað tekjur til sveit­ar­fé­laga og leggur til að sveit­ar­fé­lög þurfi ekki að borga fjár­magnstekju­skatt.

Þetta kemur fram í umsögnum um frum­varpið, sem birtar hafa verið á vef alþingis. Umsagn­irnar voru alls tíu, en til við­bótar við ASÍ, BSRB og Reykja­vík­ur­borg skrif­uðu meðal ann­ars Samtök atvinnu­lífs­ins, Kaup­höllin og Samtök fjár­mála­fyr­ir­tækja umsögn.

Stofninn minnkaður þar sem skatturinn var hækkaður

Frum­varpið myndi leiða til hækkun frí­tekju­marks úr 150 þús­und krónum á ári í 300 þús­und krónur á ári, yrði það að lögum. Enn fremur myndu arðs­tekjur og sölu­hagn­aður félaga sem skráð eru á verð­bréfa­mark­aði eða mark­aðs­torgi fjár­mála­gern­inga falla undir þetta frí­tekju­mark.

Í frum­varp­inu segir að til­efni og nauð­syn þess­arar laga­setn­ingar megi rekja til sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar um að hækkun á fjár­magnstekju­skatti yrði mætt með minni skatt­stofni þess. Rík­is­stjórnin hækk­aði fjár­magnstekju­skatt úr 20 pró­sentum í 22 pró­sent í byrjun árs 2018, en í við­tali við Kjarnann mán­uði fyrr sagði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra að hækk­unin væri liður í upp­bygg­ingu á rétt­látu skatt­kerfi.

„Skilningsleysi“ og „brýtur í bága við skynsemi“

Í umsögnum sínum til Nefnda­sviðs Alþingis leggj­ast stétt­ar­fé­lögin BSRB og ASÍ alfarið gegn þessu frum­varpi. Samkvæmt BSRB lýsa íviln­an­irnar sem fel­ast í frum­varp­inu skiln­ings­leysi á þeim vanda sem ríkið og heim­ili lands­ins standa frammi fyrir þessa stund­ina. Stétt­ar­fé­lagið bætir einnig við að frum­varpið, sem búist er við að muni kosta ríkið 770 millj­ónir króna, hættu á ósjálf­bærum rekstri rík­is­sjóðs og að betra væri að ráð­stafa skatta­lækk­unum til tekju­lægstu hópa sam­fé­lags­ins.

ASÍ tekur í sama streng og segir frum­varpið helst hagn­ast tekju­hæstu tíund­inni af fram­telj­endum vaxta­tekna, þar sem núver­andi fyr­ir­komu­lag verji 90 pró­sent þeirra fyrir áhrifum verð­bólgu nú þegar. Að mati félags­ins brýtur það í bága við almenna skyn­semi að létta sköttum af þeim sem eru helst aflögu­færir þegar rík­is­sjóður þarf að þétta örygg­is­netið til að aðstoða þá sem hafa farið verst út úr efna­hags­sam­drætt­inum.

Vill óbreyttar skatttekjur en ekki borga skattinn

Reykja­vík­ur­borg leggst ekki alfarið gegn frum­varp­inu, heldur gerir hún athuga­semd við að minni skatt­tekjur rík­is­sjóðs gæti leitt til minni tekna til sveit­ar­fé­lag­anna, líkt og Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga (SÍS) full­yrti í umsögn sinni við frum­varps­drög. Taldi sveit­ar­fé­lagið þá eðli­legt að ræða hvort og þá hvernig Jöfn­un­ar­sjóði sveit­ar­fé­laga væri bætt af þessum sökum.

Hins vegar lagði Reykja­vík­ur­borg til að fjár­magnstekju­skattur af sveit­ar­fé­lögum yrði afnum­inn og að þeim yrði veitt hlut­deild í tekjum rík­is­sjóðs af honum. Því til stuðn­ings nefndi sveit­ar­fé­lagið að margir ein­stak­lingar og lög­að­ilar sem þiggja þjón­ustu sveit­ar­fé­lags­ins greiði oft litla eða enga skatta til þess, en dæmi séu um að sveit­ar­fé­lög líði mjög fyrir þetta í tekju­stofnum sínum.

Tekur ekki afstöðu

Í minn­is­blaði sem birt­ist í kjöl­far umsagn­anna sagð­ist Efnahags- og við­skipta­nefnd fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins ekki ætla að taka afstöðu til athuga­semda ASÍ, BSRB og Reykja­vík­ur­borgar, þar sem þær voru sagðar vera almenns eðlis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skattamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár