Off venue-tónleikastöðum fækkar til muna

Off Venue-tón­leika­stöðum fækkar í ár úr 60 í 25 vegna hærra gjalds en það mun hækka úr 60 þús­und krónum í 500 þús­und krónur fyrir alla helg­ina.

Off venue-tón­leik­stöðum hefur verið fækkað úr sex­tíu í tutt­ugu og fimm á Iceland Airwaves í ár. Þetta stað­festir Ísleifur Þór­halls­son, nýr fram­kvæmd­ar­stjóri Iceland Airwaves og for­stjóri Senu Live, í sam­tali við Kjarnann. Greiðslan hefur jafn­framt verið hækkuð fyrir að halda Off Venue-tón­leika úr 60 þús­und krónur fyrir alla helg­ina í 500 þús­und krónur.

[links]Í nýja fyr­ir­komu­lag­inu hjá Iceland Airwaves verða tón­leika­staðir sem halda vilja Off Venue-við­burði rukk­aðir um dags­gjald sem fer hækk­andi er nær dregur helg­inni. Að halda Off Venue-við­burð á mið­viku­deg­inum kostar 50 þús­und krónur, á fimmtu­deg­inum 100 þús­und krónur, föstu­deg­inum 150 þús­und krónur og á laug­ar­deg­inum 200 þús­und krónur.

Þetta þýðir að ef ákveð­inn tón­leika­staður vill halda halda Off Venue-við­burði hjá sér yfir alla hátíð­ina þá þarf að hann að greiða 500 þús­und krónur. Ísleifur tekur þó fram að þeir geri sér­samn­inga við staði sem eru ekki reknir í hagn­að­ar­skyni en eng­inn grein­ar­munur hafi verið gerður á milli staða, stærð þeirra eða hvernig staðir voru reknar síð­ustu ár.

Ísleifur segir að inni­falið í þessu gjaldi sé að Off Venue-tón­leika­stað­irnir og dag­skráin er kynnt sem hluti af hátíð­inni. Það séu þó ákveðnar reglur um tón­leika­hald Off Venue-tón­leika, til dæmis að lista­menn sem spila einnig á hátíð­inni sjálfri megi ekki spila á Off Venue-tón­leikum sama dag.

Hann tekur það jafn­framt fram að Off Venue-dag­skráin sé mik­il­vægur og skemmti­legur hluti af hátíð­inni en fækkun tón­leika­staði sé hluti af því ferli nýrra eig­andi í að end­ur­skipu­leggja hátíð­ina með það að mark­miði að rétta úr kútnum og halda hátíð­inni gang­andi. En sam­kvæmt Ísleifi hefur fjöldi Off Venue-við­burða haft mikil áhrif á miða­sölu hátíð­ar­innar síð­ustu ár og í raun verið mjög slig­andi fjár­hags­lega fyrir hátíð­ina.

Nýir eig­endur Iceland Airwaves von­ast til að með þessum breyt­ingum mun fleiri miðar selj­ast á hátíð­ina. Í ár mun eitt arm­band veitir aðgang inn á alla við­burði hátíð­ar­innar, ólíkt fyrri árum. Ísleifur segir að mark­miðið sé að auka virði arm­bands­ins og sé það gert með því að fækka Off Venue-stöðum en í stað þess mun hátíðin sjálf standa fyrir sér­stökum við­burðum yfir helg­ina. Ísleifur leggur áherslu á, í sam­tali við Kjarnann, hversu alvar­lega þeir taki nýja hlut­verki sínu sem eig­endur Iceland Airwaves. Hann segir hátíð­ina gríð­ar­lega mik­il­væga fyrir íslenska tón­list­ar­senu, sem og Reykja­vík­ur­borg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

airwaves

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár