Sækja um einkaleyfi á Off Venue á Airwaves

Iceland Airwaves ehf. hefur sótt um einka­leyfi á vöru­merk­inu Iceland Airwaves Off Venue. Fáist leyfið verður ekki hægt að halda Off Venue við­burði með nafn­inu Iceland Airwaves án sam­þykkis Senu.

Iceland Airwaves ehf. hefur sótt um einka­leyfi á vöru­merk­inu Iceland Airwaves Off Venue. Meðfram tón­list­ar­há­tíð­inni Iceland Airwaves, sem haldin er í Reykja­vík á haustin á ári hverju, hafa verið haldnir við­burðir undir „Off Venue“ heit­inu, eða það sem myndi kall­ast utan form­legs vett­vangs hátíð­ar­innar. Tón­leikar sem haldnir eru Off Venue eru þá í raun aldrei hluti af form­legu hátíð­ar­haldi, heldur minni við­burðir sem haldnir eru sjálf­stætt sam­hliða form­legum stór­há­tíðum. Ekki er heldur rukkað inn á Off Venue við­burði. Í sjálfu sér er hug­takið Off Venue því þess eðlis að það að ætla að gera það lög­form­lega að hluta að hátíð er ákveðin þver­sögn.

Nýr fram­kvæmda­stjóri hátíð­ar­innar og for­stjóri Senu Live, Ísleifur Þór­halls­son, lét hafa eftir sér í útvarps­þætt­inum Harma­geddon í febr­úar, að end­ur­skoða þyrfti Off Venue fyr­ir­komu­lag hátíð­ar­innar ef hún ætti að geta lifað áfram.

Ísleifur sagði að gíf­ur­leg aukn­ing hefði orðið á Off Venue hluta Iceland Airwaves en hljóm­sveitir sem bók­aðar eru á hátíð­ina hafi einnig verið að spila á Off Venue við­burðum. Ísleifur sagði að með þessu fyr­ir­komu­lagi væri búið að kenna fólki að það geti upp­lifað lang­flesta af þeim tón­list­ar­mönnum sem eru á Airwaves án þess að borga sig inn á hátíð­ina.

Fáist vöru­merkið skráð verður hægt að banna öðrum að nota Iceland Airwaves Off Venue ein­hvers staðar þar sem verið er að selja veit­ingar, eða í raun og veru á öllum tón­leika­stöðum.

Töluverð umræða skap­að­ist um breytt fyr­ir­komu­lag í Off Venue við­burða­haldi á Facebooksíðu tón­list­ar­manns­ins Svavars Knúts fyrr í þessum mán­uði, þar sem hann greindi meðal ann­ars frá því að Sena Live hafi hækkað gjaldið fyrir þátt­töku Off Venu tón­leika­staða á Iceland Airwaves úr 50 þús­und krónum í 500 þús­und krónur á hvern tón­leika­stað, en fyrir þá fjár­hæð kom­ast við­burð­irnir til dæmis inn á aug­lýsta dag­skrá Airwaves hátíð­ar­innar. Auk þess sem Sena geri kröfu um hlut af áfengs­is­sölu hvers tón­leika­staðar. Svavar segir þetta ekki réttu leið­ina til að hátíðin rétti úr kútnum að hans mati en Svavar hefur und­an­farið valið að spila frekar Off Venue heldur en á hátíð­inni sjálfri þar sem honum líður eins og hann eigi heima.

Svavar Knútur tekur það ítrekað fram að honum þyki vænt um hátíð­ina og að hún sé mikil lyfti­stöng fyrir íslenskt lista­fólk.

Ísleifur Þór­halls­son fram­kvæma­stjóri Senu Live veitti Kjarn­anum ekki við­tal um málið þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

airwaves

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár