Flugvallarstjórn Kastrup braut eigin reglur

Á rúmu ári hafa fjórum sinnum komið upp á Kastrup flug­velli til­vik þar sem öryggi flug­véla, og far­þega, hefði getað verið stefnt í voða. Flug­vall­ar­stjórn­inni sem er skylt að loka flug­braut­inni sam­stundis þegar slíkt ger­ist aðhafð­ist ekk­ert.

Dag­blaðið Politi­ken komst fyrir nokkrum dögum yfir drög að skýrslu um fjögur svo­nefnd „óör­ugg til­vik“ (usikre for­hold) á Kastrup flug­velli við Kaup­manna­höfn. Skýrslu­drögin hafa vakið mikla athygli og danskir þing­menn heimta nákvæma úttekt á örygg­is­málum flug­vall­ar­ins.

Tilvikin sem um ræðir eru öll sama eðlis, ef svo mætti að orði kom­ast, snú­ast um auka­hluti á flug­brautum vall­ar­ins. Nánar til­tekið svo­nefnd braut­ar­ljós, ljósastikur sem afmarka flug­braut­irnar. Stikur þessar eru yfir­leitt ekki hærri frá jörðu en 35 senti­metrar.

Fyrsta til­vikið er frá 24. sept­em­ber 2018. Þá fannst ljósa­stika á einni flug­braut vall­ar­ins (22L). Starfs­fólk á vell­inum fann stik­una sem ein­hverra hluta vegna hafði losnað, eða hrokkið í sundur og svo að lík­indum fokið inn á braut­ina.

Annað til­vikið er frá 22. ágúst síð­ast­liðnum, þá fannst ljósa­stika á akbraut flug­véla (Taxiway B).

Þriðja til­vikið varð fyrir tveimur mán­uðum, 14. sept­em­ber. Þá fannst ljósa­stika og ýmsir lausa­hlutir (orða­lag skýrslu­höf­unda) á einni og mest not­uðu braut vall­ar­ins (22R).

Fjórða til­vikið, og hið alvar­leg­asta, átti sér stað 15. sept­em­ber. Þá ók flug­vél (eins og segir í skýrslu­drög­unum) á „eitt­hvað“ á einni aðal­braut vall­ar­ins (12/30). Þetta „eitt­hvað“ reynd­ist síðar vera enn ein ljósa­stikan. Þetta til­vik er í flokki A, efsta áhættu­flokki.

Semsagt fjögur til­vik á rúm­lega einu ári og þau tengj­ast öll braut­ar­ljós­unum.

Skapa mikla hættu

Auka­hlutir á flug­brautum, hverju nafni sem nefn­ast, eru ætíð litnir alvar­legum augum enda geta þeir haft mjög alvar­legar afleið­ingar í för með sér. Það var einmitt slíkur hlutur sem olli slysi á Charles de Gaulle flug­vell­inum við París 25. júlí árið 2000, þegar Concorde vél í eigu Air France flug­fé­lags­ins fórst Þegar vélin var í flug­taki ók hún á hlut sem hafði losnað af annarri vél skömmu áður, en ekki hafði upp­götvast. Dekk á Concorde vél­inni sprakk, hluti dekks­ins reif gat á vinstri væng hennar og leki kom að elds­neyt­is­geymi. Eldur braust út og vélin hrap­aði til jarðar. Allir um borð, 109 manns, fór­ust.

Í við­tali við Politi­ken seg­ist Hans Christian Stigaard, fyrr­ver­andi flug­vall­ar­stjóri á Kastrup, gátt­aður á að stjórn flug­vall­ar­ins skuli ekki hafa aðhafst neitt eftir fyrsta til­vikið, í sept­em­ber 2018. „Þegar ljósa­stika losnar og lendir svo á flug­braut­inni liggur beint við, og er í raun skylda flug­vall­ar­stjórn­ar­innar, að yfir­fara allar slíkar stikur á vell­inum. Það var ekki gert og bendir til að flug­vall­ar­yf­ir­völdin hafi ekki tekið þetta alvar­lega“.

Á samstundis að loka brautinni

Samkvæmt vinnu­reglum Kastrup flug­vallar (Aer­odrome Manual) ber þegar í stað, í alvar­legum til­vikum, eins og í þeim fjórum sem að framan getur, að loka við­kom­andi flug­braut meðan rann­sókn og athugun fer fram. Það var ekki gert í neinu áður­nefndra til­vika, þótt regl­urnar mæli fyrir um slíkt.

Í skýrslu­drög­unum kemur fram að flug­vall­ar­yf­ir­völd hafi, síð­ast­liðið haust, látið athuga allar ljósastikur á flug­vell­inum. Sú athugun hafi leitt í ljós að mjög margar (meget højt antal) stikur hafi verið í svo lélegu ástandi að ekki sé um annað að ræða en skipta þeim út.

Hans Christian Stigaard fyrr­ver­andi flug­vall­ar­stjóri, sagði í áður­nefndu við­tali, það mjög erf­iða ákvörðun að loka flug­velli, eða hluta hans. „En þegar um svona alvar­legt mál er að ræða er eina leiðin að loka flug­braut tíma­bundið, meðan við­gerð fer fram. Það var því miður ekki gert.“ Hann sagði að svona alvar­leg til­vik hefðu ekki komið upp á Kastrup síðan í miklu óveðri í des­em­ber 1999.

Starfsmenn segja reglur skorta

Kristian Durhuus, rekstr­ar­stjóri flug­vall­ar­ins, sagði í við­tali við Politi­ken að flug­vall­ar­stjórnin hefði fengið vit­neskju um til­vikið í sept­em­ber í fyrra (fyrsta til­vikið) en litið á það sem sér­stakt til­vik sem ekki þarfn­að­ist sér­stakra við­bragða. Starfs­menn sem sjá um við­hald á bún­aði flug­vall­ar­ins segja vinnu­reglur alltof óljósar, það séu til að mynda engar reglur um reglu­lega yfir­ferð og við­hald ljósa­bún­að­ar­ins.

Þingmenn rasandi og heimta að ráðherra bregðist við

Frétt Politi­ken um til­vikin fjögur á Kastrup hefur vakið mikla athygli í Danmörku og þing­menn eru væg­ast sagt rasandi. Hans Christian Schmidt fyrr­ver­andi ráð­herra sam­göngu­mála segir það með ólík­indum að stjórn flug­vall­ar­ins hafi ekki brugð­ist við og heimtar skýr­ingar. Margir þing­menn tala í sama dúr og krefj­ast þess að ráð­herra sam­göngu­mála bregð­ist við þegar í stað. Til dæmis með því að búa svo um hnút­ana að fjár­magn til eft­ir­lits, við­halds og end­ur­bóta á flug­braut­ar­ljósum og öðrum bún­aði sé tryggt.

Nokkrir þing­menn hafa enn­fremur kraf­ist þess að Danska umferð­ar­stofan (Trafik­styrel­sen) hafi eft­ir­lit með örygg­is­málum á flug­vell­inum. Eins og málum er nú háttað er það stjórn flug­vall­ar­ins sem hefur eft­ir­lit með örygg­is­mál­unum. „Það er aldrei gott fyr­ir­komu­lag að eiga að hafa eft­ir­lit með sjálfum sér en þannig er það núna á Kastrup“ sagði einn þing­maður.

„Þá getur það auð­veld­lega gerst, eins og núna á Kastrup að brotnar séu reglur, sem við­kom­andi hefur sjálfur sett.“ Benny Engelbrecht ráð­herra sam­göngu­mála sagði í við­tali við Politi­ken að hann vildi bíða eftir skýrsl­unni (þeirri sem Politi­ken komst í drögin að) áður en lengra yrði haldið. Skýrslan, sem er unnin á vegum und­ir­stofn­unar Samgöngu og hús­næð­is­mála­ráðu­neyt­is­ins er vænt­an­leg á næst­unni, en form­leg dag­setn­ing hefur ekki verið til­kynnt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár