Vantar átta þúsund íbúðir á næstu þremur árum

Hús­næð­is­verð hækk­aði um 15 pró­sent á árinu 2016 og mun halda áfram að hækka mikið á næstu þremur árum. Það vantar mörg þús­und íbúðir en ólík­legt er að það náist að byggja þær. Ofhitnun er í kort­unum á íbúða­mark­aði.

Byggja þarf að minnsta kosti átta þús­und íbúðir á næstu þremur árum til að halda í við fólks­fjölgun hér­lendis og mæta þeirri eft­ir­spurn sem safn­ast hefur upp á und­an­förnum árum. Ólíklegt er að það náist að byggja svo margar íbúðir, að mati grein­ing­ar­deildar Arion banka sem birti í dag nýja skýrslu um íbúða­mark­að­inn.

Í skýrsl­unni kemur fram að hús­næð­is­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafi hækkað um 15 pró­sent á árinu 2016 og að sú hækkun hafi að mestu verið drifin áfram af hag­stæðu efna­hags­á­standi, fólks­fjölgun, kaup­mátt­ar­aukn­ingu, góðu aðgengi að fjár­mögnun og því að of lítið hafi verið byggt af íbúðum á und­an­förnum árum. Grein­ing­ar­deildin spáir því að hús­næð­is­verð hækki um 14 pró­sent á árinu 2017, um 9,7 pró­sent árið 2018 og 7,5 pró­sent árið 2019. Gangi spáin eftir er útlit fyrir að hús­næð­is­verð hækki tals­vert umfram flestrar und­ir­liggj­andi hag­stærðir á borð við kaup­mátt ráð­stöf­un­ar­tekna. Þegar glitti í gul ljós á sumum svæðum þar sem verð hefur hækkað sér­stak­lega mikið og til lengri tíma varar grein­ing­ar­deildin í nið­ur­stöðum sínum við ofhitnun á mark­að­inum.

hækk­unin ekki ein­stök hér­lendis, hefur t.d. hækkað um 29 pró­sent í Svíþjóð á síð­ustu þremur árum sam­hliða lækkun vaxta.

Leiguverð hækkar hægar

Hækkun á hús­næð­is­verði hefur aðal­lega verið drifin áfram af hækk­unum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á und­an­förnum árum, en þar búa um ⅔ hluti þjóð­ar­innar. Í skýrslu Arion banka kemur hins vegar fram að hækk­anir utan þess voru meiri á síð­ustu 12 mán­uðum en innan þess, eða 20 pró­sent. Þær hækk­anir voru aðal­lega drifnar áfram af mik­illi hækkun hús­næð­is­verðs í nágranna­sveita­fé­lögum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Til að mynda eru vís­bend­ingar um miklar hækk­anir á Suð­ur­nesj­unum í fyrra.

Leigu­verð hefur hins vegar hækkað hægar en hús­næð­is­verð síð­ustu tvö ár. Þar er talið að lítið fram­boð af leigu­hús­næði og ótrygg búseta skipti mestu.

Airbnb tekur yfir 3000 íbúðir

Í skýrsl­unni er farið sér­stak­lega yfir það að tekju­mögu­leikar af leigu til ferða­manna hafi líka skipt máli við hækkun hús­næð­is­verðs. Allt að 3.200 íbúðir og her­bergi eru til leigu á Airbnb og í annarri heimagist­ingu ein­hvern tím­ann á næstu mán­uðum. Það er hús­næði sem nýt­ist ekki þeim sem búa hér­lendis á meðan.

Grein­ing­ar­deildin segir að áhrifin af Airbnb og öðru sam­bæri­legu til hækk­unar séu einkum tvenns­konar. fyrsta lagi leiðir aukin hagn­að­ar­von af leigu her­bergis eða íbúðar til þess að fólk er reiðu­búið að greiða hærra kaup­verð. Í öðru lagi dregur Airbnb úr fram­boði á íbúða­mark­aðnum, eins og komið er inn á í kafl­anum um fram­boð.

Lífeyrissjóðir auka hlutdeild

Arion bendir einnig á að hrein ný útlán til íbúð­ar­kaupa hafi numið 95 millj­örðum króna á fyrstu ell­efu mán­uðum árs­ins 2016, sem sam­svarar tæp­lega 130 pró­sent aukn­ingu frá sama tíma árið áður. Íslensku við­skipta­bank­arnir voru umsvifa­mestir með 67 millj­arða króna í hrein ný útlán en líf­eyr­is­sjóðir lands­ins, sem hafa fært sig umtals­vert upp á skaftið að nýju í hús­næð­is­lánum á und­an­förnum árum, koma þar skammt á eftir með 58 millj­arða króna í hrein ný útlán.

Samkvæmt skýrsl­unni er mark­aðs­hlut­deild líf­eyr­is­sjóð­anna þó enn lítil í stóra sam­heng­inu og mæld­ist um tólf pró­sent í lok sept­em­ber 2016. Hún hafði þá farið úr 9,2 pró­sentum á einu ári. Hlut­deild bank­anna er enn mikil, en sam­an­lagt eru þeir með 50 pró­sent af íbúða­lána­mark­aðnum. Önnur fjár­mála­fyr­ir­tæki, sem fyrst og fremst er Íbúða­lána­sjóður, var með 38 pró­sent mark­aðs­hlut­deild.

Flykkjast í verðtryggð lán

Líkt og Kjarninn hefur ítrekað greint frá á und­an­förnum mán­uðum þá er bróð­ur­partur nýrra útlána hér­lendis verð­tryggð lán. Skýrslan stað­festir það. Í henni segir að fram til árs­loka 2015 hafi verið nokkuð jöfn skipt­ing milli verð- og óverð­tryggða lána en að sú þróun hafi algjör­lega snú­ist við á síð­asta ári. Hjá líf­eyr­is­sjóðum lands­ins voru t.d. 77 pró­sent nýrra útlána verð­tryggð.

Ástæðan fyrir því að fólk flykk­ist í verð­tryggð lán er að verð­tryggðir vextir eru ein­fald­lega hag­stæð­ari eins og stendur. Auk þess er greiðslu­byrðin af verð­tryggðum lánum lægri. Líf­eyr­is­sjóðir hafa auk þess getað boðið upp á hag­stæð­ari láns­kjör en við­skipta­bank­arnir. Í skýrsl­unni segir: „ Í þessu sam­hengi verður að hafa í huga að bank­arnir greiða skatta og opin­ber gjöld, önnur en þau sem líf­eyr­is­sjóðir greiða, og ber þar hæst banka­skatt­ur­inn, sem er 0,38 pró­sent af heild­ar­skuldum banka.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár