Getur Facebook haft áhrif á íslenskar kosningar?

Facebook hefur birt hnapp á kjör­dag í kosn­ingum, meðal ann­ars á Íslandi, sem not­endur merkja við þegar þeir hafa greitt atkvæði. Fjöl­miðla­nefnd hefur áhyggjur af áhrifum hnapps­ins. Þingmenn segja mik­il­vægt að fá nán­ari svör um til­gang hans og áhrif.

Facebook birti hnapp á kjör­dag þann 28. októ­ber á síð­asta ári, þegar kosið var til Alþingis. Til­gangur hnapps­ins var sá að not­endur sam­skipta­mið­ils­ins gætu látið fylgj­endur sína vita að þeir hefðu greitt atkvæði í kosn­ing­unum sem og að nálg­ast upp­lýs­ingar um kjör­staði.

Í umfjöllun sem frétta­síðan The Guardian tók saman um hnapp­inn og notkun hans á alþjóða­vísu er meðal ann­ars rætt við þær Heiðdísi Lilju Magn­ús­dóttur og Elfu Ýr Gylfa­dóttur, sem báðar starfa fyrir Fjöl­miðla­nefnd. Þær fylgd­ust báðar með hnappnum á kosn­inga­dag­inn og tóku eftir því að hann birt­ist ein­ungis sumum en ekki öðrum og oft með mis­mun­andi hætti. Stundum var hnapp­ur­inn efst á Facebook-síðu not­and­ans og stundum fyrir miðju.

[links]Elfa, sem er fram­kvæmda­stjóri Fjöl­miðla­nefndar, hafði meðal ann­ars sam­band við Kristínu Edwald, for­mann lands­kjör­stjórnar, sem fer með veiga­mikið hlut­verk við und­ir­bún­ing og fram­kvæmd kosn­inga til Alþingis sem vinna að rann­sóknum á kosn­inga­málum um kosn­inga­fræði sam­kvæmt vef­síðu stofn­un­ar­innar. Hún hafði ekk­ert heyrt um málið. Hið sama átti við um dóms­mála­ráðu­neytið sem fer með umsjón og fram­kvæmd almanna­kosn­inga á Íslandi.

„Allir“ á Íslandi fengu hnappinn

Í sam­tali við Kjarnann seg­ist Elfa hafa leitað skýr­inga hjá Facebook. Eftir dúk og disk í febr­úar á þessu ári náði hún sam­bandi við Janne Elvelid, full­trúa Facebook í Stokk­hólmi í Svíþjóð sem sér einnig um Ísland fyrir hönd fyr­ir­tæk­is­ins. Janne sagði að Facebook hefði sent hnapp­inn til allra not­enda á Íslandi – sem aug­ljós­lega passar illa við það sem Elfa sá sjálf á kjör­dag. En Janne sagði að hægt væri að stilla Facebook þannig að slíkt sæist ekki, því réðu not­endur sjálfir og að Facebook gæti ekki rakið hverjir sjái hnapp­inn.

Elfa segir að Janne hafi ekki getað gefið henni neinar tölu­legar upp­lýs­ingar. Facebook annað hvort búi ekki yfir þeim né séu þær aðgengi­legar þannig að hann geti gefið þær upp. Hann sagð­ist hafa rætt hnapp­inn sím­leiðis við „ein­hvern“ í dóms­mála­ráðu­neyt­inu til að hafa það á hreinu að hnapp­ur­inn myndi örugg­lega birt­ast á réttum degi, það er að segja á kjör­dag og að teng­ill­inn myndi örugg­lega vísa á rétta síðu. En í dóms­mála­ráðu­neyt­inu kann­ast eng­inn við neitt. Elfa seg­ist meðal ann­ars hafa rætt málið við hóp sem vinnur að end­ur­skoðun kosn­inga­lög­gjaf­ar­innar, þar á meðal hvort setja eigi reglur um aug­lýs­ingar á sam­fé­lags­miðlum. Fulltrúi dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins í þeim hópi kom af fjöllum þegar Elfa nefndi hnapp­inn við hana.

Facebook fundaði með stjórnmálaflokkunum

Facebook er ekki með starf­stöð á Íslandi. Janne og annar starfs­maður fyr­ir­tæk­is­ins komu hins vegar til lands­ins fyrir kosn­ing­arnar til fundar við stjórn­mála­flokk­ana til að kynna þeim með hvaða hætti þeir gætu kom­ist í sem best sam­band við mögu­lega kjós­endur í gegnum sam­fé­lags­mið­il­inn. Fund­ur­inn var hald­inn í þing­hús­inu á vegum Sjálf­stæð­is­flokks­ins og aðeins útvaldir fengu að sitja fund­inn gegn fram­vísun skil­ríkja.

Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans segir Þórður Þór­ar­ins­son fram­kvæmda­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks­ins að full­trúar Facebook hafi komið til lands­ins í aðdrag­anda kosn­ing­anna árið 2016. Haft hafi verið sam­band við full­trúa margra eða flestra fram­boða til að bjóða upp á kynn­ingu á notk­un­ar­mögu­leikum Facebook í félags­starfi auk aug­lýs­inga­mögu­leika sem fyr­ir­tækið bjóði upp á. „Þegar boðað var til kosn­inga árið 2017 spurð­umst við fyrir um hvort Facebook myndi efna til sams konar kynn­ingar. Facebook játti því og óskaði eftir því að við myndum boða full­trúa stjórn­mála­flokka sem áttu full­trúa á Alþingi á fund­inn. Það var auð­sótt mál,“ segir Þórður. Fund­ar­boð hafi verið sent til Bjartrar fram­tíðar, Fram­sókn­ar­flokks, Pírata, Sam­fylk­ingar, Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Vinstri grænna og var flokk­unum boðið að senda 2 til 3 full­trúa. Full­trúar flestra eða allra flokka hafi mætt til fund­ar­ins.

Ekkert var minnst á hnapp­inn á fund­inum.

Getur haft áhrif á kosningaþátttöku

Hnapp­ur­inn var fyrst not­aður í Banda­ríkj­unum árið 2008 og síðan aftur árið 2010 og 2012. Í nið­ur­stöðu rann­sóknar Facebook á áhrifum hnapps­ins kemur fram að árið 2010 hafi um 340 þús­und kjós­endur bæst við vegna hnapps­ins. Nið­ur­staðan var í grunn­inn: Hnapp­ur­inn virkar.

Elfa segir ómögu­legt að vita hvaða íslensku kjós­endur fengu að sjá hnapp­inn og hverjir ekki. Eins hvernig þeir voru valdir. „Þeir sem eru skráðir á Facebook eru auð­vitað ákveðið þýði sem hægt er að nálg­ast með þessum hætti,“ segir Elfa. Þeir sem sjái hnapp­inn séu lík­legri til að fara og kjósa og slíkt geti skekkt nið­ur­stöðu kosn­inga.

Jón Steindór Valdi­mars­son, full­trúi Við­reisnar í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd, sem fer með kosn­inga­mál segir eðli­legt að hið opin­bera beiti sér fyrir nákvæm­ari svörum frá Facebook þegar kemur að hnappnum og öðrum aðferðum sem fyr­ir­tækið hafi eða kunni að hafa til að ná til kjós­enda. „Stundum hættir manni til að líta á Facebook ein­fald­lega sem part af umhverf­inu. En þetta er auð­vitað fyr­ir­tæki sem er að selja okkur. Maður þarf að spyrja sig, er eðli­legt að fyr­ir­tæki sé að vekja athygli fólks á kosn­ingum. Af hverju fá ekki allir þessi skila­boð? Er hugs­an­legt að það séu ein­hverjir þarna að baki sem stjórna því hverjir fá það?“ spyr Jón Steindór. Hann bætir því við að þó jákvætt sé að hvetja fólk til að nota atkvæða­rétt sinn þá þurfi að tryggja að slíkt sé gert með hlut­lægum og almennum hætti og setur spurn­inga­merki við að stór alþjóð­leg fyr­ir­tæki geri slíkt, án full­vissu um að þar sé að baki ein­hver sam­fé­lags­leg ábyrgð frekar en fjár­hags­legur ávinn­ingur.

Helga Vala Helga­dóttir, for­maður nefnd­ar­innar, segir að málið snú­ist ekki síður um að kosn­ingar eiga að vera leyni­legar. „Það á ekki að koma neinum við hver er búinn að kjósa. Þannig er hægt að hafa áhrif á nið­ur­stöð­urnar til dæmis með því að senda við­bót­ar­hvatn­ingu á ein­hvern hóp sem ekki hefur skilað sér á kjör­stað. Það skiptir máli hver er hinumegin að fylgj­ast með þessu. Hver er að fá upp­lýs­ing­arnar um það hverjir eru búnir að kjósa?“

Kosningahnappurinn tilraun

Ljóst er að til­raunin sem Facebook er að fram­kvæma með kosn­inga­hnappnum víða um heim, ekki aðeins á Íslandi heldur einnig í Skotlandi, Ítalíu, Þýska­landi og í Brexit-kosn­ing­unum, mun halda áfram.

Traust not­enda til Facebook hefur minnkað eftir að upp komst um notkun grein­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Cambridge Analytica á per­sónu­upp­lýs­ingum um 90 millj­ónir not­enda sam­fé­lags­miðls­ins, sem nýttar voru til að hafa áhrif á kosn­inga­hegðun bæði í Brexit-kosn­ing­unum sem og banda­rísku for­seta­kosn­ing­unum.

Elfa hefur áhyggjur af til­gangi kosn­inga­hnapps­ins. Er hann fjár­hags­legur eða sam­fé­lags­legur? Er hægt að mis­nota hann? Spurn­ingar þing­mann­anna eru einnig rétt­mætar. Hver er ástæðan fyrir því að sumir sjá hnapp­inn en aðrir ekki? Getur verið að hægt sé eða hægt verði í fram­tíð­inni að kaupa aðgang að hnappnum? Hefur það verið gert nú þegar? Mun flokkur sem nýtur til dæmis mik­ils fylgis meðal eldra fólks, eins og til að mynda Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, geta fjár­fest í því hjá Facebook að hnapp­ur­inn birt­ist hjá eldri not­endum mið­ils­ins. Eða munu Píratar, sem oft njóta mik­ils fylgist hjá ungu fólki, geta gert hið sama hjá því þýði?

Þessar vanga­veltur full­trúa Fjöl­miðla­nefndar og Alþings eru rétt­mætar. Og þeim verður að leita svara við hjá Facebook. Fyr­ir­tækið svar­aði ekki fyr­ir­spurn Kjarnans um málið þegar eftir því var leitað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár