Býst við að Viaplay hækki verðið þegar íþróttapakkinn stækkar

Magnús Ragn­ars­son fram­kvæmda­stjóri hjá Símanum býst við því að Viaplay hækki verðið á áskriftum sínum þegar íþrótta­pakk­inn þeirra stækkar. „Annað væri bara skað­leg und­ir­verð­lagn­ing,“ sagði Magnús í nýjum þætti af Tækni­varp­inu.

Magnús Ragnarsson framkvæmdastjóri hjá Símanum.
Magnús Ragn­ars­son fram­kvæmda­stjóri hjá Símanum.

„Þeir eru miklu ódýr­ari á Íslandi í dag heldur en á öllum Norð­ur­lönd­unum,“ segir Magnús Ragn­ars­son fram­kvæmda­stjóri afþrey­ing­ar­miðla og sölu hjá Símanum, um nýja keppi­naut­inn á sjón­varps­mark­aði, nor­rænu streym­isveit­una Viaplay.

Magnús seg­ist eiga von á því að Viaplay hækki verðin sam­hliða því sem streym­isveitan stækkar íþrótta­pakk­ann sinn, eins og til stendur, en í haust mun Viaplay byrja að sýna Meist­ara­deild Evrópu í fót­bolta og þá hefur streym­isveitan tryggt sér sýn­ing­ar­rétt­inn á leikjum íslenska lands­liðs­ins frá 2022 til 2028. Fót­bolta­mað­ur­inn Rúrik Gíslason hefur verið ráð­inn til þess að stýra knatt­spyrnu­um­fjöllun Viaplay á Íslandi.[links]

„Það hlýtur bara að vera, annað væri bara skað­leg und­ir­verð­lagn­ing,“ sagði Magnús og bætti við að þetta yrði ekki lengur upp­hæð sem færi fram­hjá fólki á kredit­korta­yf­ir­lit­inu, en Viaplay hefur verð­lagt heild­ar­pakk­ann sinn, sem inni­heldur íþróttir, á 1.599 krónur á mán­uði til þessa.

Magnús ræddi við þá Elmar Torfason og Gunnlaug Reyni Sverr­is­son um fram­tíð sjón­varps á Íslandi í nýjasta þætti Tækni­varps­ins, sem birt­ist í Hlað­varpi Kjarnans í morgun.

Telur innlenda aðila geta búið til meiri verðmæti úr enska boltanum

Í þætt­inum ræddu þeir um vænt­an­lega sam­keppni um sýn­ing­ar­rétt­inn að ensku úrvals­deild­inni í knatt­spyrnu, sem Síminn er með í dag. Þátt­ar­stjórn­endur spurðu Magnús hvort það væri ekki erfitt að keppa við risa eins og Viaplay, sem finndu e.t.v. ekki mikið fyrir því hvort þeir borg­uðu einn millj­arð eða tvo millj­arða fyrir sýn­ing­ar­rétt­inn.

[adspot]

Magnús svar­aði því til að Viaplay vildi „nátt­úr­lega ekki tapa pen­ingum á Íslandi“ og þá yrði spurn­ingin hvort Síminn eða aðrir inn­lendir aðilar gætu búið til meiri verð­mæti úr enska bolt­anum með því að selja enska bolt­ann í pakka með öðrum vörum, eins og Síminn gerir í dag.

„Þannig var gamla 365-mód­elið, þannig er Sýnar-mód­elið, þetta á að vera verð­mæt­ara fyrir okkur en ein­hvern sem kemur að utan og selur bara staka áskriftir,“ sagði Magnús.

„Þannig að þið eruð að fara að bjóða „full-force“ í enska bolt­ann?“

„Jájá,“ sagði Magnús, sem sagði þó allt geta gerst þegar enski bolt­inn yrði boð­inn út. Mögulega gæti farið svo að útsend­ing­ar­rétt­ur­inn á enska bolt­anum hér­lendis myndi deil­ast á fleiri en einn aðila, þar sem varan er boðin út í pökkum.

Premium jafn stórt og Stöð 2 þegar hún var stærst

Magnús sagði að Premium-þjón­ustan væri alltaf að verða stærri og stærri vara hjá Símanum og inn­lend fram­leiðsla væri að aukast í takt við það.

„Við erum komin vel yfir 40 þús­und áskrif­endur. Premium er jafn stór og Stöð 2 var þegar hún var stærst, 2003-2004. Þetta er langstærsta inn­lenda þjón­ustan og þó hún sé ekki dýr­ust er hún farin að búa til veru­legar tekjur fyrir okkur. Það er krafa á okkur að fram­leiða stöðugt efni til þess að halda öllum þessum kúnnum ánægðum.“

Magnús ræddi einnig um þessa fram­leiðslu Símans á eigin efni og meðal ann­ars vænt­an­lega aðra þátta­röð af Stellu Blóm­kvist. Hann ljóstr­aði því upp að hann sjálfur yrði hand­tek­inn í næstu seríu og „færður í böndum út úr Símanum.“

Hann sagði Símann í raun í löngu vera búinn að henda línu­lega mód­el­inu hvað sjón­varps­dag­skrá varðar, þrátt fyrir að vera enn með sjón­varps­rás sína í loft­inu. „Öll okkar áhersla í fram­leiðslu og mark­aðs­setn­ingu er bara á Premium, á streymi­veit­una,“ sagði Magnús.

Í dag kaupir Síminn þátta­ser­íur að utan til sýn­inga á Premium og fær þá einnig rétt til þess að sýna þætt­ina í línu­legri dag­skra á sjón­varps­rás sinni. „Við getum gert þetta [...] en það er ekki módel sem mun lifa til fram­tíðar,“ sagði Magnús.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

tæknivarpið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár