Meirihluti vill Vinstri græn í nýja ríkisstjórn

Fleiri nefna Vinstri græn, Fram­sókn­ar­flokk­inn og Sam­fylk­ing­una en síð­ustu rík­is­stjórn­ar­flokka þegar spurt er um drauma rík­is­stjórn kjós­enda. Nið­ur­stöður þjóð­ar­púls Gallup verður kynntur í dag.

Gengið verður til atkvæða 28. október næstkomandi. Vinstri græn eiga að vera í næstu ríkisstjórn að matri flestra sem tóku þátt í könnun Gallup.
Gengið verður til atkvæða 28. októ­ber næst­kom­andi. Vinstri græn eiga að vera í næstu rík­is­stjórn að matri flestra sem tóku þátt í könnun Gallup. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Meira en helm­ingur þeirra sem svör­uðu nýjum þjóð­ar­púlsi Gallup segj­ast vilja að Vinstri græn taki sæti í rík­is­stjórn sem tekur við eftir kosn­ing­arnar 28. októ­ber næst­kom­andi.

[links]Fleiri vilja fá annað hvort Fram­sókn­ar­flokk­inn eða Sam­fylk­ing­una en Sjálf­stæð­is­flokk­inn í næstu rík­is­stjórn.

Frétta­stofa RÚV greindi frá nið­ur­stöðum könn­unar Gallup á vefnum í dag. Búast má við að greint verði frá fylgi flokka miðað við könnun Gallup síðar í dag.

Spurt var: Hvaða flokkar, tveir eða fleiri, myndir þú vilja að mynd­uðu nýja rík­is­stjórn? Vinstri græn voru oft­ast nefnd, eða af 57 pró­sent svar­enda. 35 pró­sent nefndu Fram­sókn­ar­flokk­inn, 33 pró­sent vilja Sam­fylk­ing­una, 31 pró­sent vilja Sjálf­stæð­is­flokk­inn, 30 pró­sent sögð­ust vilja fá Pírata að stjórn­ar­borð­inu. Þá nefdu 26 pró­sent Bjarta fram­tíð en 19 pró­sent Viðreisn.

Niðurstöður könnunar Gallup 20. september 2017

Af þeim flokkum sem ekki hafa sæti á Alþingi í dag nefndu 19 pró­sent svar­enda Flokk fólks­ins og Dögun var nefnd af fjögur pró­sent þeirra sem tóku afstöðu til spurn­ing­ar­innar.

Sú sam­setn­ing flokka sem fólk nefndi oft­ast var sam­steypu­stjórn Fram­sókn­ar­flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins. 14 pró­sent þeirra sem svör­uðu nefndu það. Annars sögð­ust sex pró­sent vilja rík­is­stjórn Pírata, Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna.

[adspot]

Fimm pró­sent svar­enda nefndu rík­is­stjórn­ar­sam­starf milli Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna. Fjögur pró­sent svar­enda nefndu Vinstri græn og Bjarta fram­tíð og önnur fjögur pró­sent sögð­ust vilja sjá sam­starf Vinstri grænna og Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Fyrsta könnun Gallup eftir stjórnarslit

Sá þjóð­ar­púls Gallup sem birtur er í dag er fyrsta könnun Gallup síðan Björt fram­tíð sleit rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu í síð­ustu viku. Könnunin var gerð dag­ana 15. til 19. sept­em­ber. 1.143 voru í úrtaki könn­unar og þátt­töku­hlut­fallið rúm­lega 53 pró­sent, að því er kemur fram á vef RÚV.

Búast má við að tíðni kann­ana á fylgi stjórn­mála­flokka muni aukast á næstu vikum, enda er stutt til kosn­inga. Kjarninn mun birta Kosn­inga­spá í sam­starfi við Baldur Héð­ins­son stærð­fræð­ing fyrir þessar kosn­ingar eins og síð­ustu Alþing­is­kosn­ingar og sveita­stjórn­ar­kosn­ingar.

Í kosn­inga­spánni eru kann­anir vigtaðar út frá fyr­ir­fram ákveðnum stuðlum og nið­ur­stöður allra kannna þannig lagðar saman í eina spá um fylgi við stjórn­mála­flokka. Kosn­inga­spáin verður kynnt betur og nið­ur­stöður hennar birtar á Kjarn­anum á næstu dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár