Eyþór sigraði örugglega

Eyþór Laxdal Arnalds verður odd­viti sjálf­stæð­is­manna í Reykja­vík eftir odd­vita­próf­kjör sem fram fór í dag. Fékk rúm 60 pró­sent atkvæða. Áslaug Frið­riks­dóttir borg­ar­full­trúi fékk rúm 20 pró­sent.

Eyþór Laxdal Arnalds verður oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Eyþór Laxdal Arnalds verður odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík. Mynd: Håkon Broder Lund.

Eyþór Laxdal Arnalds sigr­aði örugg­lega í odd­vita­próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem fram fór í dag. Loka­tölur voru birtar á vef flokks­ins laust fyrir ell­efu í kvöld.

Alls greiddu 3.826 atkvæði en Eyþór hlaut af þeim 2320, sem gera tæp 61 pró­sent.

Áslaug María Frið­riks­dóttir fékk 788 atkvæði eða 20,2 pró­sent, Kjartan Magn­ús­son 460 atkvæði eða 11,8 pró­sent. Þá fékk Vil­hjálmur Bjarna­son 193 atkvæði eða 4,9 pró­sent og Viðar Guðjohn­sen 65 atkvæði eða 1,6 pró­sent.

Í sam­tali við Kjarnann eftir fyrstu tölur sagði Eyþór að töl­urnar sýni meiri stuðn­ing en hann hefði látið sig dreyma um. „Það eru bara tvær vikur síðan á ákvað að kýla á þetta og það er greini­legt að þær áherslur sem ég er með eiga hljóm­grunn hjá borg­ar­búum,“ segir hann.

Eyþór segir odd­vita­próf­kjörið stórt, margir sem taka þátt og niðu­staðan, verði hún með þessum hætti, sýni vel hvert hugur fólks stefnir í borg­ar­mál­unum. „Ég er bara auð­mjúkur gagn­vart því að hafa fengið svona mikið fylgi í þetta og ætla mér að standa undir þessu trausti eins vel og ég get,“ segir Eyþór.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár