Mesta framboð nýrra íbúða í sjö ár

Nýbygg­ingar stór­fjölga íbúðum á sölu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Alls voru 362 nýjar íbúðir settar á sölu í jan­úar en ekki hafa fleiri nýbygg­ingar verið settar á sölu í einum mán­uði síð­ustu sjö ár.

Íslenski fasteignamarkaðurinn einkennist nú af byggingu nýrra íbúða. Í janúar síðastliðnum komu inn á sölu 362 íbúðir yfir landið allt en ekki hafa fleiri nýbyggingar verið settar á sölu í einum mánuði síðan 2013. Enn fremur var 154 prósent aukning í skráningu nýrra íbúða til sölu í fyrra. Frá þessu er greint í nýrri mánaðarlegri skýrslu Íbúðarlánasjóðs.

Mesta fjölgun íbúða síðan 2008

Í skýrslu Íbúðarlánasjóðs segir að árið 2018 var mesta árlega fjölgun íbúða í tíu ár. Íbúðum á landinu öllu fjölgaði um 2.400 í fyrra og eru þær nú 140.600 talsins. Til samanburðar fjölgaði íbúðum um 1.800 árið 2017. Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði íbúðum um 542. Utan höfuðborgarsvæðisins varð mesta fjölgunin í Reykjanesbæ þar sem 227 íbúðir bættust við.

Þá má nefna að í heildina voru 1.880 íbúðir settar á sölu í janúar á þessu ári en það er mesta framboð íbúða sem mælst hefur á einum mánuði á undanförnum sex árum. Af þeim voru 362 nýjar íbúðir settar á sölu en það er mesti fjöldi nýbygginga í einum mánuði síðan 2013. [adspot]

83 prósent íbúða seldust undir ásettu verði

Í skýrslunni er greint frá því að ásett verð fasteigna á höfuðborgarsvæðinu hefur heilt yfir hækkað með svipuðum takti eða ögn meira en söluverð undanfarin fimm ár. Helsta undantekningin frá því var þó á fyrri hluta ársins 2017 þegar hækkun söluverðs íbúða tók á tímabili fram úr hækkun ásetts verðs. Á undanförnum mánuðum hefur hlutfall viðskipta undir ásettu verði aukist eftir tímabundna fjölgun íbúðakaupa yfir ásettu verði frá júlí til október í fyrra.

Hlutfall íbúða sem seljast yfir ásettu verði hefur ekki mælst lægra síðan í byrjun árs 2013. Aðeins 4 prósent íbúðaviðskipta á höfuðborgarsvæðinu í janúar síðastliðnum áttu sér stað yfir ásettu verði. Mikil meirihluti íbúða seldust undir ásettu verði eða 83 prósent íbúða.

Þegar horft er til kaupsamninga vegna fasteigna sem undirritaðir voru í janúar kemur í ljós að meirihluti þeirra fasteigna hafði verið innan við sex mánuði á sölu. Þetta á jafnt við höfuðborgarsvæðið og utan þess. Um 11 prósent fasteigna sem seldust í janúar á höfuðborgarsvæðinu höfðu verið innan við 30 daga á sölu og 5 prósent voru einn til þrjá mánuði á sölu. Sé horft til íbúðamarkaðar utan höfuðborgarsvæðisins sjást svipuð hlutföll.

16 prósent fjölgun í þinglýstum leigusamningum

Í janúar var alls 756 leigusamningum þinglýst hér á landi en það er 16 prósent fjölgun milli ára. Flestum leigusamningum utan höfuðborgarsvæðisins var þinglýst á Suðurnesjum í janúar. Þar voru þeir alls 78 talsins sem samsvarar 18 prósent fjölgun frá fyrra ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár