Martröð Venesúelabúa tekur engan enda

„Ef allt fer á versta veg finnst mér ég alla vega hafa reynt að segja mína sögu,“ segir venes­ú­elski hæl­is­leit­and­inn Isaac Rodríguez. Útlend­inga­stofnun flaug 180 sam­löndum hans úr landi í gær. Lög­reglan tók á móti fólk­inu og færði það í hús­næði þar sem því hefur verið gert að dvelja næstu tvo daga á meðan yfir­heyrslur fara fram.

Regnboginn
Regn­bog­inn „Ef ég fer aftur til Venes­ú­ela get ég ekki tjáð kyn­hneigð mína,“ sagði Isaac Rodríguez. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Þegar venes­ú­elski blaða­mað­ur­inn og hæl­is­leit­and­inn Isaac Rodríguez vakn­aði á Íslandi í morgun var sím­inn hans fullur af skila­boðum. 180 af sam­löndum hans hafði verið flogið úr landi og til Venes­ú­ela. 

Á vell­inum segir fólkið að lög­reglan hafi tekið á móti þeim og að þau hafi verið færð í hús­næði þar sem þeim er gert að dvelja næstu tvo daga. Fólk úr hópnum hefur verið yfir­heyrt ítrekað og þeim gert að skrifa undir fjöl­mörg skjöl án lög­fræði­að­stoðar, sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem Heim­ildin hefur fengið frá fólki á staðnum. 

„Þau eru sökuð um að vera föð­ur­lands­svik­arar vegna þess að þau komu til Íslands og báðu um vernd,“ segir Isaac sem er sjálfur enn á Íslandi.

Væri skelfingu lostinn

Mál hans er á borði kæru­nefndar útlend­inga­mála og því fór hann ekki úr landi í gær. En hann seg­ist mjög áhyggju­fullur eftir að hafa fengið fréttir af mót­tökum Venes­ú­ela­búa í heima­land­inu í gær. 

„Þetta er eins og martröð sem tekur engan enda,“ segir Isaac. „Lög­reglu­menn­irnir eru illir, það er eina lýs­ingin sem ég hef um þá. Ég væri skelf­ingu lost­inn ef ég væri þarna yfir því sem þeir geta gert þér, sér­stak­lega ef þú ert hluti af við­kvæmum hópi og ert til dæmis sam­kyn­hneigður.“

„Ef allt fer á versta veg finnst mér ég alla vega hafa reynt að segja mína sögu“
Isaac Rodríguez
blaða­maður og hæl­is­leit­andi

Isaac er sjálfur sam­kyn­hneigður og vinur hans sem fór með vél­inni í gær er einnig hluti af hinsegin sam­fé­lag­inu. 

Í nýlegum úrskurði kæru­nefndar útlend­inga­mála segir að þrátt fyrir að stjórn­ar­skrá Venes­ú­ela leggi bann við mis­munun á grund­velli kyn­hneigðar og kyn­vit­undar verði hinsegin fólk fyrir mis­munun á atvinnu- og leigu­mark­aði og í mennta- og heil­brigð­is­kerf­inu. Jafn­framt veigri fólk sem verður fyrir ofbeldi vegna kyn­hneigðar sinnar sér við því að leita sér aðstoðar vegna van­trausts í garð lög­reglu­yf­ir­valda.

Frá mót­mælumIsaac ræddi síð­ast við Heim­ild­ina á mót­mælum gegn brott­vís­unum fyrir rúmum mán­uði síðan. Nú er fólk úr mót­mæl­enda­hópnum farið til Venes­ú­ela.

Hefur engu að tapa

Í nokkur ár veittu íslensk stjórn­völd nán­ast öllum þeim Venes­ú­ela­búum sem sóttu hér um hæli við­bót­ar­vernd vegna slæmra aðstæðna í Venes­ú­ela. Fyrr á þessu ári stað­festi kæru­nefnd útlend­inga­mála nokkra nei­kvæða úrskurði Útlend­inga­stofn­unar í málum Venes­ú­ela­búa.

Þessu hafa Venes­ú­ela­búar mót­mælt harð­lega enda eru aðstæð­urnar í Venes­ú­ela enn mjög slæmar, glæpa­tíðnin þar er ein sú hæsta í heimi, fáir hafa aðgengi að heil­brigð­is­þjón­ustu og flestir almennir borg­arar eiga erfitt með að mæta grunn­þörfum sínum.

Fjöldi hæl­is­um­sókna venes­ú­el­skra rík­is­borg­ara hér á landi hefur vaxið gríð­ar­lega á síð­ustu árum – þær fóru úr 14 árið 2018 í 1.209 í fyrra en frá jan­úar til sept­em­ber á þessu ári voru þær enn fleiri: 1.318. Eftir að kæru­nefnd útlend­inga­mála stað­festi nei­kvæða úrskurði Útlend­inga­stofn­unar fór umsókn­unum að fækka.

Venes­ú­elsk stjórn­völd hafa á síð­ustu árum ofsótt póli­tíska and­stæð­inga sína og fólk sem talað hefur gegn þeim. 

Hvers vegna talar þú opin­ber­lega um þetta? 

„Það er góð spurn­ing,“ segir Isaac. „Ég held að ég hafi engu að tapa. Ég er búinn að ganga í gegnum svo margt um ævina. Ef allt fer á versta veg finnst mér ég alla vega hafa reynt að segja mína sögu. Ég reyndi í það minnsta.“

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flóttafólk frá Venesúela

Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.
GreiningFlóttafólk frá Venesúela

Sleppti mál­tíðum til þess að kom­ast frá Ásbrú

„Stans­laust von­leysi vaknar um leið og þú mætir,“ segir ungur venes­ú­elskur hæl­is­leit­andi um Ásbrú. Þar hafi verið ómögu­legt fyrir hann, eða nokkurn mann, að aðlag­ast íslensku sam­fé­lagi – sem er atriði sem stjórn­mála­menn þvert á flokka hafa sagt mik­il­vægt. Félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra hefur sagst vilja fleiri búsetu­úr­ræði á borð við Ásbrú.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár