Velkomin heim Valkyrja

Áhöfnin á skútunni Valkyrju sigldi í höfn um hádegisbil á þriðjudag eftir tveggja mánaða­ferðalag. Nú er ferða­laginu lokið og fjöl­skyldur áhafnar­meðlima voru fegnar að fá þá aftur í arma sína.

Á Norður­bugt í Reykja­víkurhöfn ganga Bergþóra Snæbjörns­dóttir og Úa Braga­dóttir niður flot­bryggjuna í átt að skútu­stæði merkt skútunni Valkyrju. Maðurinn hennar Bergþóru og pabbi hennar Úu, Bragi Páll Sigurðarson, er á siglingu rétt við Íslands­strendur og á að koma í höfn hvað úr hverju. Bragi hefur ásamt áhöfn siglt skútunni alla leið frá Sikiley. 

Beggó og Úa

Margrét Arnars­dóttir harmonikku­leikari gengur niður á bryggju, hún ætlar að taka á móti Valkyrju og vinum sínum með hátíð­legum harmonikku­leik. Á einum bátanna á flot­bryggjunni situr maður sem spyr nærstadda út í þessa ævintýra­ferð Valkyrju­manna á meðan hann dittar að bátnum sínum. Oddur Ástráðsson, lögfræðingur og vinur Valkyrju­manna gengur næst niður flot­bryggjuna. Hann á erfitt með að fela hvað hann er spenntur að taka á móti þeim, brosið hans brýst út við hvert tækifæri. Oddur hitti þá seinast á Spáni en …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár