Leiðtogar stjórnarandstöðu óttast uppgang öfgaafla í Evrópu

Stjórn­ar­and­stöðu­leið­togar ótt­ast upp­gang öfga­afla í Evrópu eftir Brexit. Fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra segir nið­ur­stöð­una engin áhrif hafa á Ísland, sem sé besta þjóð í heimi og standi hvort eð er utan ESB.

Katrín Jakobsdóttir, Oddný Harðardóttir, Benedikt Jóhannesson og Birgitta Jónsdóttir
Katrín Jak­obs­dóttir, Oddný Harð­ar­dóttir, Benedikt Jóhann­es­son og Birgitta Jóns­dóttir

Leið­togar stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna ótt­ast upp­gang öfga­afla í Evrópu eftir Brexit kosn­ing­una í nótt. Ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar eru ekki eins svart­sýnir.

Gunnar Bragi Sveins­son, sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra, seg­ist ekki hafa neinar áhyggjur af afleið­ingum fyrir Ísland eftir að Bretar kusu um að ganga út úr Evr­ópu­sam­band­inu (ESB). Í hádeg­is­fréttum RÚV sagði Gunnar Bragi:

„Nei, ég hef engar áhyggjur. Ísland er utan Evr­ópu­sam­bands­ins, við erum besta þjóð í heimi, bestir í fót­bolta og allt.“

Lilja Alfreðs­dóttir utan­rík­is­ráð­herra sagði í morgun að þó að fólk hefði miklar áhyggjur af stöðu mála megi ekki gleyma því að sam­keppn­is­staða geti líka styrkst með úrsögn. Það sé jákvætt að gefa fólki tæki­færi á að kjós­a.

„Það varð ákveðið bil á milli hins venju­lega manns og ESB, maður sér hvernig atkvæðin dreifast,“ sagði hún. „Það er lands­byggðin sem vill ekki vera í ESB.“

Niðurstaðan ekki skaðleg fyrir Ísland

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra sagði að sama skapi að nið­ur­staðan muni ekki hafa skað­leg áhrif á sam­skipti Íslands og Bret­lands. Nauð­syn­legt sé að leyfa tím­anum að líða til að sjá hvernig Bretar vilji snúa sér í því sam­starfi. Hann segir aðild Íslands að ESB nú fjar­læg­ari hug­mynd heldur en áður.

[adspot]

Óttast að Evrópa sé að brotna

Birgitta Jóns­dóttir, kapteinn Pírata, ótt­ast að Evrópa sé að brotna. Öfgamenn í Hollandi vilji þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu og það sama megi segja um Frakka.

„Ég ótt­ast mest upp­gang öfga­afla í Evrópu og stuðn­ing við ótt­ann. Ég hef alltaf verið mjög gagn­rýnin á skrifræði í Evrópu og það þarf að laga valda­hlut­föllin og færa valdið nær fólk­inu,“ segir Birgitta. „Þetta ætti að vera mjög sterk vís­bend­ing að ef fólki er umhugað um frið í Evrópu þarf að fara í miklar breyt­ingar á ESB. Ég held að þetta hafi rosa­lega mikil áhrif og skynja það hjá vinum mínum Bret­landi. Fólk er bara svo­lítið hrætt og mikið óvissu­á­stand. Það þarf að fara mjög var­lega.“

Íslandi betur borgið utan ESB

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, segir í sam­tali við Kjarnann að Brexit nið­ur­staðan skapi mikla óvissu fyrir Breta og erfitt sé að sjá fyrir hvað ger­ist næst.

„Það lítur út fyrir að þetta hafi mjög mikil áhrif á Bretland, Skotar ætla að kjósa aftur um sjálf­stæði og það eru hreyf­ingar í Norður Írlandi. Það er ljóst að ESB þarf að skoða sína stöðu,” segir Katrín.

Að mati Katrínar er Íslandi betur borgið utan ESB.

„Það er ekki okkar hagur að sækja um aðild,” segir hún. „En ef það á að sækja um aðild verður það ekki gert án aðkomu þjóð­ar­innar og þings­ins.“

Katrín segir það áhyggju­efni hversu áber­andi rök um þjóð­ern­is­hyggju og ótta við inn­flytj­endur hafa verið í umræð­unni um Brexit. „Allir verða að leggj­ast á eitt að leiða þessi mál í frið­saman far­veg. Ég hef auð­vitað áhyggjur af stöð­unni,“ segir hún.

Áhyggjur af hægri öfgahópum og rasisma

Oddný Harð­ar­dóttir, for­maður Sam­fylk­ingar, segir þessi stór­tíð­indi flókið mál og afar vanda­samt fyrir Bretland.

„Nið­ur­stöð­urnar kljúfa þjóð­ina í tvennt. Það verður verkur að sam­eina fylk­ingar og ekki síst unga fólkið sem vildi að Bretland yrði áfram opið og alþjóð­legt,“ segir Oddný. „Svo breytir þetta ESB og sam­vinnu innan Evrópu. Það kemur í ljós á næstu tveimur árum hvernig það verður.“

Oddný hefur veru­legar áhyggjur af því að nið­ur­staðan ýti undir öfga­hópa, öfga­hægriöfl og ras­isma. „Það er mikið áhyggju­efni fyrir okkur öll,“ segir hún. Íslend­ingum sé betur borgið innan ESB, með efna­hags­banda­lagi við Evr­ópu­löndin og ekki síst mynt­banda­lagi. Það eigi þó aldrei að hefja samn­inga­ferli að nýju án þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.

„Við þurfum að meta okkar efna­hags­legu stöðu við þessar breyt­ingar. Og fylgj­ast með því hvaða áhrif þetta hefur á ESB,“ segir hún. „En við munum tala við því að fara aftur í samn­inga­ferli.“

Vond niðurstaða fyrir alla Evrópu

Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, sem ætlar að bjóða fram í kom­andi Alþing­is­kosn­ingum og mælist með tæp tíu pró­sent í skoð­ana­könn­unum, segir nið­ur­stöð­una áfall fyrir Breta og önnur Evr­ópu­ríki, þar með talið Ísland.

„Ég hef mestar áhyggjur af því ef þetta breið­ist út. ESB var stofnað til að varð­veita mann­rétt­indi, frið og frelsi, sem manni finnst einskis virði eins og vatn og loft, nema þegar mann vantar það.“

Ekki náð­ist í Óttarr Proppé, for­mann Bjartrar fram­tíðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár